Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Saurmengun langt yfir mörkum Saurmengun í Arnarneslæk í Garðabæ er langt yfir þeim mörkum sem teljast fullnægjandi, samkvæmt nýlegri mælingu Heilbrigðiseftirlitsins. Talið er að annað hvort sé klóakið vitlaust tengt í einhverju húsi eða þá að stífla hafi myndast í holræsakerfinu svo að klóakið fari í lækinn um yfirfallið þar sem yfirleitt á aðeins að fara regnvatn. 8.6.2005 00:01
Þrjú fíkniefnamál í nótt Þrjú fíkniefnamál komu upp í Reykjavík í nótt. Að sögn lögreglu eru þau þó ekki stór. Málin voru ýmist í heimahúsum eða á götu úti og eru í frekari rannsókn. 8.6.2005 00:01
Sprengdu upp flutningabílalest Að minnsta kosti sjö manns létust er uppreisnarmenn sprengdu upp flutningabílalest sem var á leið að herstöð Bandaríkjamanna með vörubirgðir um 80 kílómetra frá Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. 8.6.2005 00:01
EFTA úrskurði um ÁTVR Hæstiréttur vill fá úrskurð EFTA-dómstólsins um það hvort ÁTVR sé heimilt að krefjast þess að víninnflytjendur afhendi vöruna á tilteknum vörubrettum og hvort að ÁTVR sé með því að beita mismunun. Auk þess skuli verðmæti vörubrettanna vera innifalið í vöruverði.. 8.6.2005 00:01
Skuldir Afríkuríkja afskrifaðar George Bush Bandaríkjaforseti og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, greindu frá því eftir fund þeirra í Washington í gær að þeir væru að leggja drög að áætlun um að allar skuldir fátækustu ríkja Afríku, sem talin væru fylgja umbótastefnu, yrðu afskrifaðar. 8.6.2005 00:01
Kveikt í bíl dansks ráðherra Kveikt var í bíl danska innflytjendamálaráðherrans í morgun í mótmælaskyni við hert innflytjendalög stjórnvalda. Ráðherrann, Rikke Hvilshoj, sakaði ekki en hún og fjölskylda hennar voru inni í húsi sínu og bíllinn stóð í bílskúr þar við. 8.6.2005 00:01
N-Kóreumenn gefa eftir Norður-Kóreumenn eru reiðubúnir að mæta á ný til sex ríkja viðræðna um framtíð kjarnorkuáætlunar sinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem bandaríska utanríkisráðuneytið sendi frá sér í gær. 8.6.2005 00:01
Skjálftavirkni eykst aftur Skjálftavirkni hefur aukist aftur suður af landinu. Frá því á miðnætti hefur orðið tæpur tugur skjálfta suður af Eldeyjarboða á Reykjaneshrygg, sá öflugasti 3,7 á Richter. Fyrir nokkrum vikum var gríðarmikil skjálftavirkni á þessum slóðum. Sérfræðingar töldu virknina þá ekki fyrirboða eldgoss eða annarra hamfara. 8.6.2005 00:01
Mótmælin í Bólivíu halda áfram Þrátt fyrir að forseti Bólivíu, Carlos Mesa, hafi sagt af sér í gær eftir að hafa gegnt embætti í aðeins 19 mánuði halda mótmæli í landinu áfram. Fólkið krefst þjóðnýtingar á gasiðnaði í landinu en því var Mesa mótfallinn. 8.6.2005 00:01
25 þúsund manns sagt upp hjá GM Bandaríski bílaframleiðslurisinn General Motors hyggst segja upp 25 þúsund manns í Bandaríkjunum fyrir árið 2008 og ætlar fyrirtækið jafnframt að loka nokkrum verksmiðjum sínum fyrir þann tíma. Í dag starfa um 111 þúsund manns hjá fyrirtækinu. 8.6.2005 00:01
Trygging ekki skilyrði fyrir láni Tryggingamiðstöðin hefur afnumið þau skilyrði lánveitinga félagsins til ökutækjakaupa að þau skuli tryggð hjá félaginu. TM er þannig eina tryggingafélagið sem veitir lán til kaupa á ökutækjum og ekki gerir kröfu um að ökutækið sé tryggt hjá sama félagi. 8.6.2005 00:01
Lyfjakostnaður aukist um þriðjung Íslendingar eyða um 200 þúsund krónum á mann í heilbrigðismál á ári hverju. Aðeins fjögur lönd í heiminum eyða meiru en útgjöld til heilbrigðismála hafa aukist í öllum OECD-löndunum. Lyfjakostnaður hefur að meðaltali aukist um rúman þriðjung á fimm árum. 8.6.2005 00:01
Setur ofan í við umboðsmann Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi. 8.6.2005 00:01
Tillaga um vítur á Barroso felld Evrópuþingið felldi í dag tillögu um vítur á forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jose Manuel Barroso, fyrir að fara í siglingu á snekkju grísks auðjöfurs. 589 greiddu atkvæði gegn henni en aðeins þrjátíu og fimm með, auk þess sem þrjátíu og fimm sátu hjá. 8.6.2005 00:01
Kjalvegur opnaður á morgun Kjalvegur verður opnaður fyrir umferð á morgun samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Leiðin inn í Kverkfjöll var opnuð í dag en helstu hálendisvegir landsins eru óðum að verða færir þessar vikurnar. 8.6.2005 00:01
10-15 læknar fá áminningu árlega Tíu til fimmtán læknar fá tiltal eða áminningu á hverju ári vegna þess að þeir ávísa of miklu af ávanabindandi lyfjum. Landlæknir segir upplýsingar úr lyfjagagnagrunninum hafa gagnast eftirliti með þessum málum vel en hann hefur einnig nýst á hinn veginn - til að eyða gróusögum um lækna sem sagðir voru of ávísanaglaðir. 8.6.2005 00:01
Ungum sagt upp fyrst Það eru ungu starfsmennirnir, ekki þeir eldri, sem fyrstir fá uppsagnarbréf þegar dönsk fyrirtæki draga saman seglin eða flytja starfsemi til annarra landa. Þetta kemur fram í nýrri könnun danska atvinnumálaráðuneytisins. 8.6.2005 00:01
Ökumönnum umbunað út frá ökuritum Vátryggingafélag Íslands ætlar að bjóða ungum ökumönnum að hafa ökurita í bílum sínum í sumar. Besti ökumaðurinn verður svo valinn í sumarlok út frá þeim upplýsingum sem ökuritinn hefur skráð um aksturslagið. 8.6.2005 00:01
Heilu þorpin þurrkuð út Enn heldur áfram að rigna í mið- og suðurhluta Kína og hafa flóð þurrkað út heilu þorpin síðan á föstudag. Alls hafa um 200 manns látist vegna flóðanna en nú gengur yfir rigningartímabil í landinu. 8.6.2005 00:01
Unnið gegn heimilisofbeldi Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur falið verkefnisstjórn um heilsufar kvenna að skoða ákveðna þætti í heilbrigðisþjónustunni til að vinna gegn heimilisofbeldi og bæta þjónustu og stuðning við þolendur heimilisofbeldis. 8.6.2005 00:01
Leikskólinn á Súðavík gjaldfrjáls? Hreppstjórn Súðavíkur veltir nú fyrir sér að gera leikskólann á staðnum gjaldfrjálsan. Gjald fyrir átta tíma dvöl á dag er nú tæpar tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði með fæði. Einnig er möguleiki að byggingarlóðir verði ókeypis og húsbyggjendum verði gefinn kostur á byggingarframlagi frá sveitarfélaginu. 8.6.2005 00:01
Fjölskylda finnst látin í Moskvu Lögreglan í Moskvu fann lík fjögurra manna fjölskyldu í íbúð í fjölbýlishúsi þegar hún réðist þar til inngöngu eftir kvartanir frá nágrönnum um að þau hefðu ekki greitt hita- og rafmagnsreikninga í tvö ár. Það undarlega er þó að fólkið hafði allt látist á mismunandi tíma. 8.6.2005 00:01
Nær 50 nýir morfínfíklar í fyrra Á síðasta ári greindust 47 nýir morfínfíklar á Vogi, að sögn yfirlæknisins þar. Að meðaltali hefur þeim fjölgað um rúmlega fjörutíu á ári undanfarin ár. Síðastliðin tíu ár hafa verið skráðir á Vogi samtals 272 morfínfíklar sem sprauta sig í æð. Af þeim eru fjórtán látnir. </font /></b /> 8.6.2005 00:01
Brýr og krónur greiddar niður Aldraðir og öryrkjar með 75 prósent örorkumat geta nú fengið greiddan niður kostnað við föst tanngervi, það er brýr og krónur, um 40 - 80 þúsund krónur á hverju almanaksári 8.6.2005 00:01
Innra eftirlit verði hert Heilbrigðisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til heilbrigðisstofnana að herða innra eftirlit til varnar fjölómæmu bakteríunnni, MÓSA, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra. 8.6.2005 00:01
Hveitipokaveggur í París Franskir bændur fjölmenntu í miðborg Parísar í dag og byggðu vegg úr hveitipokum til að þrýsta á nýju ríkisstjórnina um breytingar á landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins. Þeir segja stefnu sambandsins leiða til alltof lágs verðs á kornmarkaðnum og notuðu því fimm tonn af hveitipokum til að leggja áherslu á mál sitt. 8.6.2005 00:01
Óvissa um staðarval loðnubræðslu Ólafur Örn Ólafsson, bæjarstjórinn í Grindavík, bindur vonir við að Síldarvinnslan ákveði að byggja upp starfsemi sína í bænum. 8.6.2005 00:01
Vonbrigði með lítinn árangur Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri í Raufarhafnarhreppi, segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með lítinn stuðning stjórnvalda, en þau gáfu vilyrði fyrir aðstoð þegar staðurinn gekk í gegnum mikla erfiðleika. 8.6.2005 00:01
Leiðtogaþing í Reykholti Leiðtogaþing lútherskra kirkna í Evrópu hófst í gær í Reykholti í Borgarfirði, en evrópudeild Lútherska heimssambandsins stendur fyrir þinginu. 8.6.2005 00:01
Starfsmenn Landlæknisembættisins hafa ávísað ávanabindandi lyfjum þegar fíklar hafa haft samband, borið sig illa og kvartað undan því að ná ekki í lækni til að fá lyf til að lina kvalirnar. Þetta sagði Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir í Hádegisútvarpinu á Talstöðinni í gær. 8.6.2005 00:01
Kveikt í bíl ráðherrans Kveikt var í bíl danska innflytjendaráðherrans Rikke Hvilshøj í Hróarskeldu í fyrrinótt. Bíllinn sjálfur er gjörónýtur auk þess sem bruninn olli nokkrum skemmdum á húsi ráðherrans. Ráðherran og fjölskylda hennar slapp þó án þess að verða fyrir meiðslum. 8.6.2005 00:01
Skotinn úr bíl á ferð 37 ára gamall maður var skotinn utan við leikskóla í Helsingjaborg í Suður-Svíþjóð um helgina. Komu skotin úr Audi-bifreið sem ók hjá. Vitni tók niður bílnúmerið og leiddi það lögreglu á spor hins grunaða, sem er góðkunningi lögreglunnar. Það er fórnarlambið reyndar einnig og er talið líklegt að mennirnir þekkist. 8.6.2005 00:01
Tugir skotnir í Eþíópíu í gær Að minnsta kosti tuttugu og tveir létust í skothríð öryggissveita eþíópísku ríkisstjórnarinnar í höfuðborginni Addis Ababa í gær. 8.6.2005 00:01
Kveikt á nýja gosbrunninum Kveikt verður formlega á nýjum gosbrunni í Tjörninni í Hljómskálagarðinum á morgun. Ákveðið var að kaupa nýjan gosbrunn í Tjörnina til að lífga upp á borgarmyndina en gamli gosbrunnurinn, sem gefinn var af þáverandi sendiherra Bandaríkjanna skömmu fyrir 1980, var búinn að skila sínu og gott betur að sögn Þórólfs Jónssonar, garðyrkjustjóra. 8.6.2005 00:01
Fer hægt en örugglega af stað "Sumarið fer hægt en örugglega af stað," segir Páll Þór Ármann, framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Páll segir að það hafi samtals veiðst tólf laxar í Norðurá sem opnaði nú 1. júní og Blanda sem opnaði 5. júní hafi líka farið ágætlega af stað og þar hafi sextán laxar veiðst hingað til. 8.6.2005 00:01
CIA endurskoðar öryggiskröfur Stjórnendur CIA eru nú að endurskoða strangar öryggiskröfur sem gerðar eru til túlka og þýðenda sem ráðnir eru til starfa hjá stofnuninni. Leyniþjónustuna bráðvantar arabískumælandi fólk en þarf að hafna mjög mörgum umsækjendum vegna þess að þeir eru börn innflytjenda, svonefnd fyrsta kynslóð, og eiga því iðulega fjölmarga ættingja í löndum sem ekki eru hátt skrifuð hjá Bandaríkjastjórn. 8.6.2005 00:01
Rafrænt vegabréf skilyrði Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna sendi í dag út tilkynningu þar sem minnt er á að enginn ferðamaður komist inn í landið án vegabréfsáritunar nema hann framvísi rafrænu vegabréfi frá og með 26. júní nk. Flugfélög sem flytja farþega án tilskilinna ferðapappíra mega eiga von á sekt upp á rúmar 200 þúsund krónur. 8.6.2005 00:01
Fjölmiðlaeinokun aflétt? Sýrlensk yfirvöld lýstu því yfir í dag að til greina kæmi að aflétta einokun Baath-flokksins á fjölmiðlum. Ríkið á nú og rekur þrjú dagblöð á arabísku, eitt sem kemur út á ensku, einu sjónvarpsstöðina og einu útvarpsstöðina sem leyft er að útvarpa pólitísku efni. 8.6.2005 00:01
Ráðherrar gefa 2/3 mánaðarlauna Ráðherrarnir í ríkisstjórn Afríkuríkisins Níger hafa lofað að gefa tvo þriðju mánaðarlauna sinna til hungraðra í landinu. Það eru um sextíu og fimm þúsund krónur. Forsætisráðherrann ætlar að gefa tvöfalda þá upphæð. 8.6.2005 00:01
Birgðastöðvum lokað í Noregi Varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna og Noregs rituðu á miðvikudag undir samkomulag þess efnis að herstöðvum sem geyma birgðir fyrir Bandaríkjaher verði fækkað úr fimm í tvær. Þá gerir samkomulagið ráð fyrir því að breytingar megi gera á tegund vopnanna og birgðanna sem geymdar eru í landinu fyrir flotadeild Bandaríkjahers. 8.6.2005 00:01
Fundu óþekkt sönglag Bachs Fundið er í Þýskalandi áður óþekkt aría eftir Jóhann Sebastían Bach. Sagnfræðingar fundu nóturnar innan um bókasafnspappíra í borginni Weimar í Austur-Þýskalandi, að því er fram kom í tilkynningu á vef Bach-safnsins í Leipzig í gær. 8.6.2005 00:01
Tveir hermenn felldir í Afganistan Tveir bandarískir hermenn dóu og átta særðust í sprengjuvörpuárás á herstöð í austurhluta Afganistans í gær, að því er fram kom í tilkynningu Bandaríkjahers. Herstöðin er í austurhluta Paktika-héraðs, nærri landamærum Pakistans. 8.6.2005 00:01
Samningum lokið í næsta mánuði? Þriðju samningalotu fríverslunarviðræðna EFTA-ríkjanna og Suður-Kóreu er lokið. Í vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir að gerlegt eigi að vera að ljúka samningum í næstu lotu sem verður í Seúl í byrjun júlí. 8.6.2005 00:01
Upptök hermannaveiki fundin Uppruni hermannaveikifaraldurs í Noregi sem orðið hefur 10 manns að aldurtila og yfir 50 hafa sýkst af hefur verið rakinn til efnaverksmiðju í suðausturhluta landsins. Rannsókn leiddi í ljós að Legionella bakteríuna var að finna í loftræstikerfi Borregaard verksmiðjunnar í borginni Sarpsborg. 8.6.2005 00:01
Fullnægingarvandi bundinn erfðum Breskir vísindamenn telja sig hafa fundið út að fullnægingarvandi kvenna kunni að tengjast erfðum. Breska ríkisútvarpið, BBC, greinir frá rannsókn tveggja vísindamanna á 4.000 kvenkyns tvíburum á aldrinum 19 til 83 ára sem leiðir í ljós að fullnæging kvenna er ekki einvörðungu tengd sálarlífi og félagslegum þáttum líkt og sumir hafa haldið fram. 8.6.2005 00:01