Erlent

Upptök hermannaveiki fundin

Uppruni hermannaveikifaraldurs í Noregi sem orðið hefur 10 manns að aldurtila og yfir 50 hafa sýkst af hefur verið rakinn til efnaverksmiðju í suðausturhluta landsins. Rannsóknir leiddu í ljós að Legionella bakteríuna var að finna í loftræstikerfi Borregaard verksmiðjunnar í borginni Sarpsborg. "Við erum nær fullviss um að hafa þarna funnið upptök veikinnar," sagði Svein Roensen, læknir á staðnum, við norska fjölmiðla í gær. Fyrstu hermannaveikitilfellin í Noregi greindust 21. maí í Fredrikstad, nærri Sarpsborg. Hermannaveiki er sérstaklega skæð þeim sem veikir eru fyrir, svo sem eldra fólki og sjúklingum, og leggst á öndunarfæri fólks. Bakterían berst gjarnan með loftræstikerfum og vatnskerfum húsa, en smitast ekki á milli manna. Sjúkdómurinn er talinn banvænn í 5 til 30 prósentum tilfella. Sjúkdómurinn dregur nafn sitt af sýkingu sem upp kom árið 1976 í American Legion hótelinu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og varð 29 manns að bana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×