Erlent

CIA endurskoðar öryggiskröfur

Stjórnendur bandarísku leyniþjónustunnar CIA eru nú að endurskoða strangar öryggiskröfur sem gerðar eru til túlka og þýðenda sem ráðnir eru til starfa hjá stofnuninni. Leyniþjónustuna bráðvantar arabískumælandi fólk en þarf að hafna mjög mörgum umsækjendum vegna þess að þeir eru börn innflytjenda, svonefnd fyrsta kynslóð, og eiga því iðulega fjölmarga ættingja í löndum sem ekki eru hátt skrifuð hjá Bandaríkjastjórn. Þeir standast því ekki allar öryggiskröfurnar sem gerðar eru til þeirra sem starfa fyrir CIA. Eins er óttast að hægt væri að kúga starfsmenn með því að hóta ættingjum á erlendri grund, ef fréttist að einhver úr fjölskyldunni væri farinn að vinna fyrir leyniþjónustuna. Verið er að vinna í að finna einhvern milliveg svo hægt sé að fylla í allar þær stöður sem nú eru lausar fyrir arabískumælandi Bandaríkjamenn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×