Erlent

Skotinn úr bíl á ferð

37 ára gamall maður var skotinn utan við leikskóla í Helsingjaborg í Suður-Svíþjóð um helgina. Komu skotin úr Audi-bifreið sem ók hjá. Vitni tók niður bílnúmerið og leiddi það lögreglu á spor hins grunaða, sem er góðkunningi lögreglunnar. Það er fórnarlambið reyndar einnig og er talið líklegt að mennirnir þekkist. Hinn skotni var lagður inn á spítala og að sögn sænsku lögreglunnar er ástand hans stöðugt. Lögregla leitar nú ástæðna fyrir skotárásinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×