Erlent

Ungum sagt upp fyrst

MYND/Vísir
Það eru ungu starfsmennirnir, ekki þeir eldri, sem fyrstir fá uppsagnarbréf þegar dönsk fyrirtæki draga saman seglin eða flytja starfsemi til annarra landa. Þetta kemur fram í nýrri könnun danska atvinnumálaráðuneytisins. Á móti kemur að þeir yngri eru yfirleitt snöggir að finna aðra vinnu. Ef eldri starfsmaður missir vinnuna á annað borð tekur það yfirleitt mun lengri tíma, og ekki síður ef viðkomandi er innflytjandi. Könnunin er liður í átaki atvinnumálaráðuneytisins til að fjölga störfum og koma fleiri Dönum í vinnu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×