Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lífi dansks ráðherra ógnað Ráðherra innflytjendamála í Danmörku segist vera bæði slegin og reið eftir að kveikt var í bíl hennar og íbúðarhúsi snemma í morgun. Óþekkt samtök segjast vera að refsa Dönum fyrir kynþáttahatur. 8.6.2005 00:01
Fagnaðarefni að mati Læknafélags "Þetta sýnir og sannar hversu lítill hluti læknastéttarinnar er þarna um að ræða og það er fagnaðarefni að Landlæknir geti tekið á málum tengdum þeim er ávísa ávanabindandi efnum í meira mæli en eðlilegt er," segir Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélagsins. 8.6.2005 00:01
Kennurum settir afarkostir Deilurnar í Landakotsskóla halda áfram að magnast. Stjórn skólans sendi sumum kennurum skólans bréf í gær þar sem sagt er að skriflegur stuðningur við stjórnina sé nauðsynlegt skilyrði fyrir því að þeir haldi starfi sínu við skólann. Foreldrar funda með stjórninni í kvöld þar sem afsagnar hennar verður krafist haldist staðan óbreytt. 8.6.2005 00:01
Kjartan stopp í Reykjafirði í gær Kjartan Jakob Hauksson ákvað að halda kyrru fyrir í Reykjafirði í fyrrinótt og í gær vegna hvassviðris. Í mestu hviðunum fór vindurinn upp í 20 m/s. "Veðrið er að detta niður," sagði Kjartan þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gærkvöldi. Hann gerði ráð fyrir því að komast aftur af stað í nótt eða nú í morgunsárið. "Það spáir hæglætisveðri næstu daga." 8.6.2005 00:01
Efla þarf menntun verslunarfólks Aðeins um 40% starfsmanna í smásöluverslunum hér á landi hafa lokið framhaldsskólanámi og í sumum verslunum er hlutfallið mun lægra. Samtök verslunar og þjónustu spurðust fyrir í stærstu verslunarfyrirtækjunum og skoðuðu síðustu launakönnun VR og komust að þessari niðurstöðu. 8.6.2005 00:01
Telur Skerjafjarðarveg óraunhæfan Samgönguráðherra líst illa á hugmyndir Reykjavíkurlistans um hraðbraut yfir Skerjafjörðinn. Álftnesingar segja að borgaryfirvöld hafi ekkert rætt við þau um málið. Ekki er langt síðan hugað var að framkvæmdinni en þá þótti hún óhagkvæm. 8.6.2005 00:01
Ólafur sakaður um málþóf Ólafur F. Magnússon lagði í fyrradag til á borgarstjórnarfundi að heimildir til niðurrifs sjö gamalla húsa yrðu dregnar til baka. Húsin eru milli Smiðjustígs og Vatnsstígs og fimm þeirra eru frá 19. öld. 8.6.2005 00:01
Dagný bendi á dæmi Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að Kristinn H. Gunnarsson flokksbróðir hennar á Alþingi, sé vandamál í Framsóknarflokknum og þingmaðurinn tæti niður mál sem séu flokknum góð og þörf. Þessu hélt Dagný fram í RÚVAK í gær í umræðum um fylgi flokksins og skoðanakannanir. Kristinn H. Gunnarsson segir að orð Dagnýjar þarfnist rökstuðnings. 8.6.2005 00:01
Margir sækjast eftir efsta sætinu Allt eins getur farið að þrír eða fleiri muni keppa um fyrsta sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík í haust. Enginn hefur þó lýst því opinberlega yfir að hann gefi kost á sér til forystu fyrir flokkinn í Reykjavík að undanskildum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, oddvita borgarstjórnarflokksins. 8.6.2005 00:01
Oddvitinn ekki hissa "Ég veit ekki hvað á að segja um framkvæmd sem fer 150 prósent fram úr áætlun annað en að ég er ekki mjög hissa," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. 8.6.2005 00:01
Tignarleg sveitahöll í Borgarfirði Glöggir vegfarendur sem leið eiga um Borgarfjörð hafa efalítið tekið eftir sveitahöllinni að Skarðshömrum sem ekki á sinn líkan í sveitum landsins og þó víðar væri leitað. Hún hefur verið í byggingu síðan í byrjun árs 2003 en nú eru framkvæmdir á lokastigi. 8.6.2005 00:01
Fjallar ekki frekar um bankasölu Löngum fundi fjárlaganefndar með ríkisendurskoðanda og framkvæmdanefnd um einkavæðingu lauk í gær með samþykkt meirihlutans um að nefndin fjallaði ekki frekar um málið. "Það kom margt fram á fundinum sem kallaði á frekari útskýringar," sagði Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar eftir fundinn. 8.6.2005 00:01
Stefnan að hafa álverið á Húsavík Iðnaðarráðuneytið hefur sett stefnuna á Húsavík við undirbúning álvers á Norðurlandi og miðast vinna við val virkjanakosta nú við þá staðsetningu. Gert er ráð fyrir að jarðgufuvirkjanir í innan við fimmtíu kílómetra fjarlægð frá Húsavík geti annað raforkuþörf meðalstórs álvers. 8.6.2005 00:01
Kennedy leitaði lausnar Nýbirt skjöl sýna að John F. Kennedy, forseti Bandaríkjanna, reyndi að finna diplómatíska lausn á Víetnamstríðinu með leynilegum samningaviðræðum við Rússa og Norður-Víetnama. 8.6.2005 00:01
Helmingur nýrra hjóla ólöglegur Nærri helmingur nýrra reiðhjóla hér á landi er ólöglegur þegar þau eru seld út úr búðum. Hvorki Umferðarstofa né lögregla segjast eiga að hafa eftirlit með því að reiðhjól séu fullbúin þegar þau eru seld. 8.6.2005 00:01
Skerjafjarðarbraut þótti óhagkvæm Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu höfnuðu tengingu miðborgar Reykjavíkur og Álftaness með Skerjafjarðarbraut fyrir þremur árum þar sem hún var talin óhagkvæm. 8.6.2005 00:01
Ósætti í fjárlaganefnd Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti í dag, í trássi við vilja stjórnarandstöðunnar, að hætta athugun á einkavæðingu bankanna. Stjórnarandstaðan segir mörgum spurningum enn ósvarað. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður segir að stjórnarandstaðan muni nú íhuga hvort þess verði krafist að þing verði kallað saman vegna málsins. 8.6.2005 00:01
Síldin komin inn í lögsöguna Íslensk og færeysk skip eru nú að veiðum skammt út af Austfjörðum en þar hefur norsk-íslenska síldin veiðst vel frá því íslensku skipin héldu til veiða eftir sjómannadag. 8.6.2005 00:01
Örnum vex ásmegin Arnarstofninn á Íslandi telur nú yfir 60 varppör og telja starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands að stofninn hafi ekki verið stærri í um hálfa öld eða frá því að farið var að fylgjast reglulega með arnarstofninum. 8.6.2005 00:01
Snjóframleiðsla hefst næsta haust Skíðafélag Dalvíkur stefnir á að hefja snjóframleiðslu í Böggvisstaðafjalli í haust. Kostnaðurinn er talinn vera um 21 milljón króna og segir Óskar Óskarsson, formaður félagsins, að fjármögnun gangi vonum framar. 8.6.2005 00:01
Kennurunum settir afarkostir Skólastjórn Landakotsskóla sendi nokkrum kennurum skólans bréf í gær þar sem sagt er að skriflegur stuðningur við stjórnina sé skilyrði fyrir því að þeir haldi starfi sínu við skólann. Foreldrar funda með stjórninni í kvöld þar sem afsagnar hennar verður krafist lagist staðan ekki. 8.6.2005 00:01
Krabbameinssjúklingar selja lyfin Algengt er að fíklar útivegi sér morfín og önnur ávanabindandi efni með því að falsa lyfseðla, að sögn Matthíasar Halldórssonar aðstoðarlandlæknis. 8.6.2005 00:01
Kalt í Evrópu Þótt júní sé genginn í garð þá er kalt í Evrópu. Þegar íbúar í austurrísku Ölpunum vöknuðu í gærmorgun blasti við þeim fjörtíu sentímetra jafnfallinn snjór. 8.6.2005 00:01
Menningarsetur í Svarfaðardal Sparisjóður Svarfdæla og Kaupfélag Eyfirðinga hafa ákveðið, í samstarfi við Dalvíkurbyggð, að hafa forystu um stofnun menningar- og náttúrufræðaseturs á Húsabakka í Svarfaðardal. Verið er að skipa starfshóp þessara aðila til að fylgja verkefninu eftir. Rekstur setursins verður í höndum sérstaks félags. 8.6.2005 00:01
Aukin framlög vegna neyðar Búist er við að George Bush Bandaríkjaforseti tilkynni í dag um ríflega 43 milljarða króna framlag til neyðaraðstoðar í Afríkuríkjum eftir að hafa blásið á hugmyndir breska stjórnvalda um að afskrifa skuldir ríkjanna. 7.6.2005 00:01
Fimm ákærðir vegna banaslyss Ríkissaksóknari hefur ákært fimm menn fyrir vanrækslu þegar banaslys varð við Kárahnjúka í mars á síðasta ári. Málið var þingfest í Héraðsdómi Austurlands í morgun. 7.6.2005 00:01
Rækjan nærri hruni fyrir vestan Rækjustofninn veiðist vart lengur á Íslandsmiðum og er nánast hruninn í Ísafjarðardjúpi. Hafrannsóknarstofnunin leggur til að upphafsafli úthafsrækju verði minnkaður um þriðjung á næsta fiskveiðiári. 7.6.2005 00:01
Nítján látnir í árásum í Írak Ekkert lát er á ofbeldisverkum uppreisnarmanna í Írak sem þó er svarað af fullri hörku af herflota bandamanna í landinu. Á fáeinum mínútum létust að minnsta kosti nítján í fjórum árásum uppreisnarmanna í norðurhluta landsins í morgun. Sjálfsmorðssprengjuárás var gerð við herstöð Bandaríkjamanna, við írakska herstöð, við markað og við landamærastöð. 7.6.2005 00:01
Séra Hjalti verði ráðinn aftur Foreldrar barna í Landakotsskóla skora á stjórn skólans að ráða séra Hjalta Þorkelsson aftur sem skólastjóra og veita honum fullt og óskorað umboð til að stjórna skólanum. Foreldrar lýsa yfir þungum áhyggjum af ástandinu í skólanum. 7.6.2005 00:01
Kanna jarðhita á Grænlandi Iðnaðarráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun samstarfssamning sem gerður hefur verið við Grænland um orkumál. Samningurinn fylgir í kjölfar þess að sveitarfélag á Diskó-eyju á Grænlandi óskaði eftir samstarfi um það hvort og hvernig væri hægt að nýta 19 gráðna heitt vatn sem fundist hefur á eynni. Iðnaðarráðuneytið hefur falið Íslenskum orkurannsóknum að kanna jarðhitann og hefjast jarðfræðirannsóknir í ágúst næstkomandi. 7.6.2005 00:01
Stífla brast í Sandá í gær Verulegt tjón varð þegar stífla brast í Sandá við Eyvindartungu, skammt frá Laugarvatni, í gærkvöldi. Tvær rafmagnsvirkjanir í ánni, sem eru í einkaeigu, urðu óvirkar vegna óhappsins og þótti mildi að ekki urðu slys á fólki. Efri virkjunin var tekin í notkun í mars síðastliðnum en neðri stöðin árið 2003. 7.6.2005 00:01
Ræða þrískiptingu ríkisvalds Hvernig á að tryggja þrískiptingu ríkisvaldsins? Það er spurningin sem Þjóðarhreyfingin veltir upp á fundi í kvöld að gefnu tilefni og á fundarstað sem ekki er valinn af handahófi. 7.6.2005 00:01
Hálshöggnir fyrir morð Tveir Jemenar voru í dag teknir af lífi í Sádi-Arabíu fyrir að hafa drepið konu. Mennirnir voru hálshöggnir í Asir-héraði í suðurhluta landsins en þeir voru sakfelldir fyrir að hafa bundið konuna og kyrkt hana í ránsferð inn á heimili hennar. Alls hafa 44 verið teknir af lífi í arabaríkinu það sem af er árinu, fjórum fleiri en allt árið í fyrra. 7.6.2005 00:01
Lúxemborgarar tekjuhæstir í Evrópu Lúxemborgarar eru tekjuhæstir Evrópubúa og gnæfa yfir önnur Evrópulönd þegar þjóðarframleiðsla á mann er metin. Samkvæmt tölum evrópsku hagstofunnar var þjóðarframleiðsla á hvern íbúa Lúxemborgar árið 2004 ríflega tvöfalt meiri en að jafnaði í ríkjum Evrópusambandsins. 7.6.2005 00:01
Prófkjör síðla hausts Prófkjör vegna uppstillingar á lista Sjálfstæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar 27. maí 2006 verður haldið mánaðamótin október nóvember næstkomandi. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Varðar fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var í dag og verður prófkjörið lagt til við fulltrúaráðsfund í byrjun september. 7.6.2005 00:01
Varað við símasölu netfyrirtækis Tölvu- og netþjónustan Snerpa varar fólk við símasölu frá erlendu netfyrirtæki. Í tilkynningu frá Snerpu segir að fyrirtækið hafi síðustu daga fengið ábendingar um símasöluherferð netfyrirtækisins þar sem hringjandinn segist vera að aðstoða við skráningu á nafni viðkomandi í lénaskrá. 7.6.2005 00:01
Norðmenn fagna sambandsslitum Norðmenn fagna því í dag, 7. júní, að nákvæmlega hundrað ár eru liðin frá því norska Stórþingið samþykkti formlega sambandsslitin við Svíþjóð. Mikið er um hátíðarhöld í Osló, höfuðborg Noregs, í tilefni af tímamótunum og fara meðal annars fram stórtónleikar helstu hljómsveita og listamanna landsins á torginu fyrir framan ráðhús borgarinnar. 7.6.2005 00:01
Eimskip semur um smíði skipa Eimskipafélag Íslands hefur gert samninga um smíði tveggja fullkominna frystiskipa og hefur félagið auk þess möguleika á fjórum skipum til viðbótar. Kaupverð skipanna tveggja er um 2,6 milljarðar íslenskra króna. Forráðamenn Eimskipafélagsins segja að samningarnir séu liður í áætlunum félagsins um að verða leiðandi flutningafyrirtæki á sviði frysti- og kæliflutninga á Norður-Atlantshafi. 7.6.2005 00:01
Fjölbýlishús hrynur í Egyptalandi Lítið barn lét lífið þegar íbúðarblokk hrundi til grunna í borginni Alexandríu í Egyptalandi í dag. Óttast er að fleiri hafi farist og séu grafnir undir húsarústunum, en sextán manns slösuðust. Byggingin sem hrundi var upprunalega þriggja hæða en að sögn lögerglunnar í Alexandríu hafði aukahæðum verið bætt við hana án tilskilinna byggingaleyfa. 7.6.2005 00:01
Sýknaðir af ákæru um pyntingar Líbískur dómstóll sýknaði í dag níu lögreglumenn og lækni sem sakaðir voru um að þvinga fimm búlgarskar hjúkrunarkonur til þess að játa að hafa að þær hefðu viljandi smitað á fimmta hundrað barna af HIV-veirunni á sjúkrahúsi í Líbíu. Hjúkrunarkonurnar hafa ásamt palestínskum lækni verið dæmd til dauða fyrir verknaðinn en þau hafa setið í fangelsi í Líbíu í sex ár vegna hans. 7.6.2005 00:01
Læknar átaldir fyrir morfínávísun Landlæknisembættið hefur að undanförnu átalið hóp lækna fyrir óeðlilegar ávísanir á morfínlyf og önnur ávanabindandi lyf. Sumir hafa fengið áminningu. Sérstaklega er tekið í lurginn á þeim sem hagnast með þessum hætti. Nytsemi nýs lyfjagagnagrunns er farin að skila sér. 7.6.2005 00:01
Hálft ár fyrir skjalafals 45 ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir skjalafals. Maðurinn seldi Íslandsbanka skuldabréf þann 27. ágúst í fyrra fyrir tvær og hálfa milljón króna en hann gaf bréfið út sama dag og hafði jafnframt falsað áritun á nafni konu í reit fyrir samþykki sjálfskuldarábyrgðarmanns. Ákærði játaði brot sitt fyrir dóminum. 7.6.2005 00:01
Segir aðgerðir munu skila árangri Stjórn Landakotsskóla telur að þær aðgerðir sem gripið hafi verið til til lausnar fjárhags- og stjórnunarvanda skólans eigi eftir að skila árangri og tryggja grundvöll starfseminnar til framtíðar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn skólans sendi frá sér í dag, en undir hana skrifar Gunnar Örn Ólafsson, formaður stjórnar Landakotsskóla. 7.6.2005 00:01
Mikið spurt eftir líknarskrá Mikið er spurt eftir líknarskrá, sem er í vinnslu hjá landlæknisembættinu, að sögn Sigurðar Guðmundssonar landlæknis. 7.6.2005 00:01
Reyni að hylma yfir fjöldamorð Bandarísku mannréttindasamtökin Human Rights Watch sökuðu í dag úsbeksk stjórnvöld um að reyna að hylma yfir fjöldamorð í bænum Andijan í síðasta mánuði, en þar er talið er að mörg hundruð manns hafi fallið fyrir byssukúlum stjórnarhersins í kjölfar mótmæla. Samtökin birtu í dag skýrslu um atburðina Andijan 13. maí síðastliðinn en hún byggist á viðtölum við vitni sem mörg hver flýðu til nágrannaríkisins Kirgisistans í kjölfar uppþotanna. 7.6.2005 00:01