Innlent

Fíklar leika á Landlækni

Starfsmenn Landlæknisembættisins hafa ávísað ávanabindandi lyfjum þegar fíklar hafa haft samband, borið sig illa og kvartað undan því að ná ekki í lækni til að fá lyf til að lina kvalirnar. Þetta sagði Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir í Hádegisútvarpinu á Talstöðinni í gær. "Það getur verið að aðgengið að morfíni sé orðið of mikið en það er ekki endilega vegna brotslegs athæfis hjá læknum. Sumir fíklar eru snjallir í því að leika á fólk, lækna jafnt sem aðra. Það hefur komið fyrir að þeir hafi leikið á okkur hjá landlæknisembættinu, sagst ekki ná í nokkurn lækni, vera krabbameinssjúklingar og illa haldnir af verkjum. Kannski hefur það einhvern tímann því miður leitt til þess að við höfum skrifað út örfáar töflur fyrir þetta fólk sem á alls ekki að gera," sagði hann. Matthías kvaðst skilja lækna. Þeir lendi í klemmu þegar mikið sé um frí og fólk beri sig illa. "Fíklarnir ráðast á garðann þar sem hann er lægstur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×