Erlent

Tveir hermenn felldir í Afganistan

Tveir bandarískir hermenn dóu og átta særðust í sprengjuvörpuárás á herstöð í austurhluta Afganistans í gær, að því er fram kom í tilkynningu Bandaríkjahers. Herstöðin er í austurhluta Paktika-héraðs, nærri landamærum Pakistans. Í fyrstu sagði herinn að aðeins einn hefði látist, en talsmaður hersins leiðrétti þær upplýsingar síðar. Hermennirnir sem urðu fyrir árásinni voru að afferma CH-47 Chinook þyrlu. Leitað var að árásarmönnunum úr lofti en þeir fundust ekki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×