Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Atli Ísleifsson skrifar 25. júní 2025 07:03 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra rita greinina í tilefni þess að á leiðtogafundi NATO í Haag í Hollandi í dag muni leiðtogar aðildarríkja sammælast um að efla sameiginlegar varnir ríkjanna til muna á næstu árum. Vísir/Anton Aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin verða áfram grunnstoðir í utanríkisstefnu Íslands og ekki verður eðilsbreyting á sambandi Íslands og NATO. Þá verður ráðist í að styrkja innviði hér á landi sem styðja við öryggi og varnir landsins og er markmiðið að árið 2035 verði 1,5 prósent af vergri landsframleiðslu varið til að styðja við öryggi og varnir landsins á ýmsan hátt.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í grein formanna stjórnarflokkanna sem birtist á Vísi í morgun. Þar segjast þær Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra að ríkisstjórnin sé staðráðin í að styrkja öryggi og varnir Íslands auk þess að lögð er áhersla á mikilvægi þess að standa vörð um traust og samheldni í íslensku samfélagi. Greinin er skrifuð í tilefni þess að á leiðtogafundi NATO í Haag í Hollandi í dag muni leiðtogar aðildarríkja sammælast um að efla sameiginlegar varnir ríkjanna til muna á næstu árum. Þær Kristrún, Þorgerður Katrín og Inga segja það jákvætt í ljósi aðstæðna. „Við Íslendingar höfum búið við öryggi og frið frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Samfélagið okkar er meðal þeirra öruggustu og friðsælustu í heimi og hér ríkir traust og samheldni sem gerir Ísland að frábæru landi og fyllir okkur stolti. Nú er stríð í Evrópu, átök í Mið-Austurlöndum og ófriður víða í heiminum. Nýjar ógnir hafa komið fram sem felast ekki aðeins í hefðbundnum hernaði eða hryðjuverkum. Með skipulegum hætti er grafið undan upplýstri umræðu og lýðræði auk þess sem unnin eru skemmdarverk á mikilvægum samfélagslegum innviðum landa í okkar heimshluta,“ segir í greininni. Skýr skilaboð á óróatímum Formennirnir segja að það séu óróatímar í heimsmálum og að þá sé frumskylda ríkisstjórnar að standa vörð um þjóðaröryggi. „Og það mun ríkisstjórnin gera af heilum hug og hollustu við Ísland.“ Þær segja að á þessum óróatímum vilji formenn ríkisstjórnarflokkanna senda þjóðinni skýr skilaboð til þjóðarinnar. Aðild okkar að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin verða áfram grunnstoðir í utanríkisstefnu Íslands. Það verður engin eðlisbreyting á sambandi Íslands við NATO. Við styrkjum innviði hér heima sem styðja við öryggi og varnir Íslands. Þannig eflum við getu okkar til að vinna með bandalagsríkjum. Saman stöndum við vörð um traust og samheldni í íslensku samfélagi. Það er okkar sterkasta vörn gegn áföllum og árásum í nútímavæddum heimi. Um þetta er algjör samstaða í ríkisstjórn. Og allt fer þetta vel saman við stefnu ríkisstjórnarinnar í innanlandsmálum.“ Áfram verðugur bandamaður Þær Kristrún, Þorgerður Katrín og Inga segja að Ísland muni áfram vera verðugur bandamaður annarra NATO-ríkja á borgaralegum forsendum. „Staða okkar innan bandalagsins er óbreytt frá því sem verið hefur síðan Ísland gerðist eitt af stofnríkjum þess árið 1949. Og því hefur verið haldið til haga á öllum okkar fundum með fulltrúum bandalagsríkja á undanförnum misserum. Framlag okkar til sameiginlegra varna NATO-ríkja hefur alltaf falist í öðru en beinum fjárframlögum til hermála. Við höfum ekki her og njótum skilnings á þeirri stöðu. Enda væri það ekki skynsamleg nýting á okkar fjármagni og framlagi. Hins vegar fylgjum við áfram Norðurlöndum og öðrum NATO-ríkjum þegar kemur að stuðningi okkar við varnarbaráttu Úkraínu í innrásarstríði Rússa. En fyrst og fremst munum við styrkja stöðu Íslands sem bandalagsríkis með því að einbeita okkur að því sem við þekkjum, kunnum og getum hér heima. Þannig tryggjum við hagsmuni Íslands,“ segir í greininni. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur harðlega gagnrýnt Evrópuríki og segir þau ekki hafa lagt nægilega mikið að mörkum til NATO. Myndin er tekin í Haag í gær.AP 1,5 prósent af vergri landsframleiðslu Í aðdraganda leiðtogafundarins í Haag hefur mikið verið fjallað um þá áætlun að bandalagsríki verji fimm prósent af vergri landsframleiðslu til öryggis- og varnarmála. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þannig harðlega gagnrýnt Evrópuríki á síðustu árum fyrir að hafa ekki lagt nægilega mikið til varnarsamstarfsins. Í grein leiðtoga ríkisstjórnarinnar segir að landfræðileg lega Íslands hafi mikla þýðingu og að styrkleikar Íslands sem bandalagsríkis felist ekki síður í áreiðanleika í samstarfi, öflugum innviðum og áfallaþoli. „Hér heima höfum við aðstöðu til að taka á móti bandamönnum okkar og til þátttöku í sameiginlegum æfingum á sviði varnarmála. Við leggjum til búnað og mannskap til að sinna loftrýmisgæslu og eftirliti á eigin nærsvæði í Atlantshafinu. Þá sjáum við um leitar- og björgunaraðgerðir á hafi umhverfis landið. Á sviði áfallaþols búum við yfir þekkingu og kunnáttu. Þar eru almannavarnir og björgunarsveitirnar okkar í broddi fylkingar. En einnig er þörf á að efla Landhelgisgæslu Íslands, eftirlit á landamærum, netöryggi, löggæslu og aðra þætti í réttarvörslukerfinu. Þá er nauðsynlegt að auka áfallaþol með því að byggja upp og verja innviði sem snúa að orku, fjarskiptum og samgöngum. Ísland mun leggja sitt af mörkum til NATO með því að styrkja þessa þætti hér heima. Þarna getum við gert betur og þarna ætlum við að gera betur. Markmiðið er að árið 2035, eftir tíu ár, verjum við 1,5% af vergri landsframleiðslu til að styðja við öryggi og varnir á þennan hátt – en gróflega áætlað stöndum við nú þegar undir helmingnum af þessu viðmiði. Ríkisstjórnin hefur gengið í verkið með fjármálaáætlun um öryggi og innviði Íslands. Einnig er unnið að mótun öryggis- og varnarmálastefnu með fulltrúum allra stjórnmálaflokka á Alþingi sem verður lögð fram á þingi í haust,“ segir í greininni. Tekið er fram að allar ákvarðanir um fjárfestingar og framlög verði eftir sem áður teknar endanlega á Alþingi í fjárlögum. „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin.“ Formennirnir segja að allar ákvarðanir um fjárfestingu og framlög verði eftir sem áður teknar endanlega á Alþingi í fjárlögum.Vísir/Anton Brink Traust og samheldni Þriðja atriðið sem nefnt er í greininni er að nauðsynlegt sé að standa vörð um það einstaka traust og samheldni sem ríki í íslensku samfélagi. „Þetta er okkar pólitík. Traustið og samheldnin er líka okkar öflugasta vörn gegn áföllum og árásum af ýmsum toga. Í nútímavæddum heimi er ráðist að frjálslyndum lýðræðissamfélögum með fjölbreyttum aðferðum. Það er ekki aðeins gert með beinum hætti og hefðbundnum hernaði. Nú hafa óbeinar árásir færst í aukana sem er ætlað að grafa undan upplýstri og lýðræðislegri umræðu. Það er meðal annars gert með skipulagðri dreifingu á falsfréttum, netárásum og öðrum fjölþáttaógnum. Svarið við slíku felst ekki aðeins í því að fjárfesta í netöryggi og fjarskiptainnviðum og að vinna gegn falsfréttum. Það er ekki síður brýnt að huga að félagslegum þáttum sem auka traust og samheldni – með því að hlúa að fólkinu okkar og rjúfa félagslega einangrun. Þannig sköpum við sterkt samfélag. Ríkisstjórnin er meðvituð um þetta. Þegar öllu er á botninn hvolft þá snúast aðgerðir okkar í varnar- og öryggismálum um að vernda það sem skiptir okkur mestu í daglegu lífi. Síðast en ekki síst stöndum við alltaf með gildum okkar um lýðræði, mannréttindi og virðingu fyrir alþjóðalögum. Við stöndum með saklausum borgurum sem líða þjáningar vegna stríðsátaka – hvort sem það er í Úkraínu, Palestínu eða annars staðar – og við stöndum alltaf með friði,“ segir í greininni.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Utanríkismál NATO Almannavarnir Landhelgisgæslan Björgunarsveitir Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira