Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Flýja vegna hugsanlegs eldgoss Hundruð manna flýðu heimili sín í þorpum í hlíðum eldfjallsins Karthala á stærstu eyjunni í Kómoreyjaklasanum í dag eftir að svartur reykur liðaðist upp úr gíg fjallsins. Óttast er að fjallið fari að gjósa og að sögn yfirvalda á staðnum hefur jörð skolfið og sprungur myndast í fjallið í dag. 17.4.2005 00:01
Frímerki seld fyrir 120 milljónir Erlendir frímerkjasafnarar kaupa íslensk frímerki fyrir um 120 milljónir króna á ári. Níu starfsmenn vinna í sérstakri deild Íslandspóst sem þjónustar safnara. </font /></b /> 17.4.2005 00:01
Uppselt í lúxusferð Ingólfs Þau þrjátíu sæti sem voru í boði í mánaðarlanga hnattreisu með Ingólfi Guðbrandssyni í haust, seldust upp á kynningarfundi á fimmtudagskvöld. 17.4.2005 00:01
Fleiri látnir í rútuslysi Að minnsta kost tíu manns eru nú látnir eftir að rúta steyptist ofan í gil í Suðvestur-Sviss í morgun. Rútan var á leið frá Bern í Sviss til Genúa á Ítalíu þegar hún rann út af veginum milli Martigny og Sankti Bernhardsskarðs og féll um 150 metra, en mikil snjókoma var í héraðinu í nótt. Björgunarmenn og þyrlur áttu í erfiðleikum með að komast að rútunni bæði vegna legu hennar og veðurs, en 28 voru í rútunni, líklega flestir Svisslendingar. 17.4.2005 00:01
Sakar al-Qaida um mannrán í Madaen Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, sakar al-Qaida hryðjuverkasamtökin um að standa á bak við mannránið í bænum Madaen skammt frá Bagdad, en þar eru súnnítar sagðir halda allt að 150 sjítum. Allawi sagði í dag að með þessu reyndu hryðjuverkasamtökin að efna til trúabragðastríðs og koma í veg fyrir framfarir í landinu. 17.4.2005 00:01
Ríkið sé ekki í fjölmiðlarekstri Ungir sjálfstæðismenn hvetja til þess í ályktun sem þeir hafa sent frá sér að ríkið hætti afskiptum af fjölmiðlum. Þeir mótmæla því að á sama tíma og settar séu fram hugmyndir um að skerða möguleika á fjármögnun einkarekinna fjölmiðla með óviðunandi skilyrðum um eignaraðild að þeim liggi fyrir frumvarp sem tryggi Ríkisútvarpinu rétt til aukinna umsvifa á markaðnum og tryggi því meira fjármagn til reksturs úr vösum skattgreiðenda. 17.4.2005 00:01
Vandræði í Frakklandi vegna snjós 145 þúsund heimili í Suðaustur-Frakklandi eru án rafmagns eftir að rafmagnslínur skemmdust í mikilli ofankomu um helgina. Rafmagnsveitur hafa kallað út fimm hundruð manns til að gera við línurnar og búist er við að tvö til þrjú hundruð til viðbótar komi að verkinu. 17.4.2005 00:01
Veðjað á Ratzinger í veðbönkum Nú þegar aðeins tæpur sólarhringur er þangað til kardínálar kaþólsku kirkjunnar loka sig af í Sixtínsku kapellunni til að velja páfa keppast menn við að veðja um hver verði fyrir valinu. Ef mið er tekið af veðbönkum má búast við að hinn 78 ára Joseph Ratzinger, kardínáli frá Þýskalandi, verði kjörinn páfi. 17.4.2005 00:01
Rispaði bíla í þágu listarinnar Menn taka sér ýmislegt fyrir hendur í nafni listarinnar. Bretinn Mark McGowan hefur nú komist í fréttirnar fyrir heldur vafasamt uppátæki en hann rispaði lakkið á hátt í 50 bílum í Lundúnum og Glasgow með lykli í þágu listarinnar. Slík skemmdarverk á bílum eru ekki óalgeng nú til dags og segist McGowan einmitt hafa fengið hugmyndina þegar bíll systur hans var rispaður með þessum hætti. 17.4.2005 00:01
Biðjast ekki afsökunar á mótmælum Deilur Kínverja og Japana eru enn í hnút eftir fund utanríkisráðherra landanna í Peking í dag. Li Zhaoxing, utanríkisráðherra Kína, lýsti því yfir í dag að Kínverjar þyrftu ekki að biðjast afsökunar á mótmælum gegn japönskum stjórnvöldum í Kína undanfarnar þrjár helgar. Þar hafa æfir Kínverjar ætt um götur vog mótmælt nýrri japanskri kennslubók í sögu og segja að þar sé reynt að breiða yfir grimmdarverk Japana gagnvart Kínverjum í síðari heimsstyrjöldinni. 17.4.2005 00:01
Hjálparstarfsmaður lést í árás Þrír létust, þar á meðal starfsmaður mannúðarsamtaka, í sjálfsmorðssprengjuárás á herbílalest á hættulegasta vegi Íraks, veginum til alþjóðaflugvallarins í Bagdad. Hjáparstarfsmaðurinn, 27 ára bandarísk kona, var í bílalest á veginum þegar bílsprengja sprakk nærri bíl hennar með fyrrgreindum afleiðingum, en konan hafði bæði starfað í Írak og Afganistan. 17.4.2005 00:01
Wolfensohn til Miðausturlanda James Wolfensohn, fráfarandi forstjóri Alþjóðabankans og nýskipaður fulltrúi hins svokallaða kvartetts í Miðausturlöndum, hyggst heimsækja Ísrael og Palestínu í næstu viku. Frá þessu greindi hann í dag. Wolfensohn hefur m.a. verið falið að fylgjast með brottflutningi ísraelskra landnema frá Gasasvæðinu og þá hyggst hann beita sér fyrir efnahagslegri og félagslegri uppbyggingu á svæðum Palestínumanna. 17.4.2005 00:01
Sex létust í átökum í Tógó Að minnsta kosti sex létust í átökum stuðningsmanna stjórnar og stjórnarandstöðu í Lome, höfuðborg Afríkurríkisins Tógó, í gær. Þá slösuðust 150 á bardögunum sem blossuðu upp í kjölfar kosningafunda, en boðað hefur verið til þingkosninga í landinu eftir viku eftir þrýsting á alþjóðavettvangi. 17.4.2005 00:01
Rúta ofan í gljúfur í Sviss Tólf manns fórust og fimmtán slösuðust þegar rúta með 27 ferðamenn innanborðs rann 250 metra niður í gljúfur á svissneskum fjallavegi í gær. 17.4.2005 00:01
Vilja efla viðskiptin Leiðtogar Indlands og Pakistans samþykktu að efla viðskipti sín á milli á fundi sem var haldinn í Nýju Dehlí á Indlandi. 17.4.2005 00:01
Um sjö þúsund nýir félagar Ætla má að um sjö þúsund manns hafi skráð sig í Samfylkinguna áður en kjörskrá fyrir formannskosningarnar var lokað. Það þýðir að Samfylkingarmönnum hafi fjölgað um helming frá áramótum. Eftir því sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í <em>Silfri Egils</em> skráðu 3.154 sig í flokkinn á kosningaskrifstofu hennar, um tvö þúsund á starfsstöð Össurar Skarphéðinssonar og svipaður fjöldi á skrifstofu flokksins. 17.4.2005 00:01
Minnast 25 ára sjálfstæðisafmælis Stjórnvöld í Zimbabwe minnast þess í dag að 25 ár eru liðin síðan landið öðlaðist sjálfstæði frá Bretlandi. Mikil athöfn verður haldin á Rufaro-fótboltaleikvanginum þar sem sjálfstæði Rhódesíu var lýst yfir árið 1980 og nafni landsins breytt í Zimbabwe.. 17.4.2005 00:01
Fríar hringingar í heimasíma Fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone hefur hrundið af stað nýrri þjónustu sem nefnist Og1, sem stuðlar að lækkun á símakostnaði heimila. 17.4.2005 00:01
Páfakjör hefst á morgun Rottweiler guðs gæti orðið næsti páfi sé eitthvað að marka sögusagnir í Róm. Hundrað og fimmtán kardínálar eru leikmennirnir í valdatafli sem fram fer í Páfagarði milli íhaldssamra og frjálslyndari kaþólikka. 17.4.2005 00:01
60 ár liðin frá frelsun Hundruð manna sem komust lífs af úr "vinnubúðum" nasista í Ravensbrück, Bergen-Belsen, og Sachsenhausen í Þýskalandi, tóku þátt í minningarathöfn í gær í tilefni þess að 60 ár eru liðin frá því að búðirnar voru leystar upp. 17.4.2005 00:01
Upplýsingar Vilhjálms hafa áhrif Upplýsingar Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar um örlög gyðinga í Danmörku hafa sífellt meiri áhrif. Nú hafa afkomendur gyðinga sem dönsk stjórnvöld vísuðu úr landi krafist opinberrar afsökunarbeiðni. 17.4.2005 00:01
Tókst á við hákarl og hafði betur Karlmennska eða fífldirfska er spurningin sem vaknar þegar brimbrettakappinn Simon Letch er annars vegar. Hann var á brettinu sínu skammt undan ströndum Bronte Beach í Sydney í Ástralíu í gær þegar hákarl réðst á hann. Letch barðist við tveggja metra langan hákarlinn og hafði betur. Hann lét lífsreynsluna ekki mikið á sig fá heldur fór heim og kom aftur hálftíma síðar með nýtt bretti og skellt sér í brimið. Hitt brettið hafði hákarlinn bitið í sundur. 17.4.2005 00:01
Ræða um viðbrögð við dólgslátum Forráðamenn Iceland Express ætla að ræða við yfirmenn Leifsstöðvar og Icelandair um hvernig koma megi í veg fyrir dólgslæti eins og urðu í vél félagsins á leið til Kaupmannahafnar í gær. Þrír voru handteknir við komuna þangað og verður málið væntanlega fært lögreglunni á Íslandi. 17.4.2005 00:01
Ástandið í Madain óljóst Helmingur gísla sem haldið var í bæ í Írak fékk frelsi að lokinni hernaðaraðgerð í dag. Hvorki íbúar né lögreglan í bænum kannast hins vegar við að nokkrum hafi verið rænt. 17.4.2005 00:01
Sakar Biblíufélagið um falsanir Guð er orðinn gamall og hallærislegur í augum þjóðkirkjunnar, segir Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. Hann gagnrýnir harðlega Hið íslenska Biblíufélag fyrir að falsa ritningarnar í nýrri þýðingu og segir ýmsa vilja koma að nýrri útgáfu þar sem Guðs orð fái að njóta sannmælis. 17.4.2005 00:01
Stefnir borginni vegna málverka Barnabarn Jóhannesar Kjarvals hefur stefnt Reykjavíkurborg fyrir að hafa tekið yfir fimm þúsund verk meistarans ófrjálsri hendi. Málið verður þingfest eftir helgi. 17.4.2005 00:01
Ótrúlegur bati eftir aðgerð Bati fertugrar einstæðrar, þriggja barna móður sem greindist með illkynja æxli í spjaldhryggnum á síðasta ári þykir ótrúlegur. Spjaldhryggurinn var tekinn úr Borghildi Svavarsdóttur og er hún fyrsti Íslendingurinn sem gengst undir slíka aðgerð. 17.4.2005 00:01
Á höttunum eftir spurningaliði Framhaldsskólarnir keppa um hylli greindustu grunnskólanemendanna. Á heimasíðu pilts úr sigurliði Hagaskóla í spurningakeppni grunnskólanna segir að piltar tengdir spurningaliði Verzlunarskóla Íslands hafi boðið þeim í heimsókn. 17.4.2005 00:01
Bitist um Kjarvalsverkin Mál Ingimundar Kjarval gegn Reykjavíkurborg verður þingfest í héraðsdómi á morgun. Borginni er gefið að sök að hafa sölsað undir sig yfir 5.000 verk Jóhannesar Kjarval í trássi við erfingja hans. 17.4.2005 00:01
Hreyfilistaverk frumsýnt í húsi OR Þvottavélatromlur, keilur, GSM-símar, steinull, svampur, klósettpappír og reiðhjólagjarðir voru meðal þess sem gekk í endurnýjun lífdaga í hreyfilistaverki sem frumsýnt var í Orkuveitu Reykjavíkur í dag. Bandaríski myndlistarmaðurinn Arthur Ganson vann verkið með hópi íslenskra barna. Hann heillaðist af hugmyndaauðgi barnanna. 17.4.2005 00:01
Bæði hvatt til sparnaðar og eyðslu Á sama tíma og Landsbankinn ýtir undir aukinn sparnað landsmanna hvetur hann þá til að eyða meiru og jafnvel taka lán til að fara í ferðalög og kaupa sumarhús. Framkvæmdastjóri markaðssviðs bankans viðurkennir að ef til vill sé of langt gengið að hvetja menn til að taka ferðalán. 17.4.2005 00:01
Almenningur ehf. stofnsett í dag Í dag hyggst fjárfestahópurinn sem áformar að taka þátt í kaupum á Símanum stofna einkahlutafélag utan um verkefnið. 17.4.2005 00:01
Áhlaup til frelsunar gísla Íraskar öryggissveitir, studdar af bandarískum hermönnum, umkringdu í gær bæinn Madain suður af Bagdad, þar sem að sögn yfirvalda voru gerð áhlaup til að frelsa um fimmtán fjölskyldur sjía-múslíma sem var haldið í gíslingu af herskáum súnní-múslímum. 17.4.2005 00:01
Virkjað í Albaníu Landsvirkjun áformar að reisa 70 megavatta vatnsaflsvirkjun í Albaníu. Samningsdrög við þarlend stjórnvöld liggja fyrir en albanska þingið á eftir að leggja blessun sína yfir framkvæmdina. 17.4.2005 00:01
Vaxtabætur skornar niður Vaxtabætur hluta framteljenda skerðast umtalsvert milli ára. Áhrifin eru þó talin minnst á fólkið sem skuldar mest. Samdrátturinn er til kominn bæði vegna breytinga á skattalögum og eins breytts fasteignamats. </font /></b /> 17.4.2005 00:01
Íbúarnir komast ekki leiðar sinnar Enn syrtir í álinn hjá íbúum svonefnds Gestshúss í vesturbæ Hafnarfjarðar en það hefur stórskemmst vegna holræsaframkvæmda sem bærinn hefur staðið fyrir í götunni að undanförnu. 17.4.2005 00:01
Kjörfundur hefst í Páfagarði Kardínálarnir 115, sem kjósa munu arftaka Jóhannesar Páls II páfa, tíndust í gær með persónulegar föggur og hver sína sýn á framtíð kaþólsku kirkjunnar inn á hótelið í Páfagarði, næst Sixtínsku kapellunni, þar sem þeir munu sitja á rökstólum bak við luktar dyr næstu sólarhringana. 17.4.2005 00:01
Algjör viðsnúningur ráðuneytisins Bæjarstjórar spyrna við fótum vegna fyrirætlana um sameiningu heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu. Ráðherra segir málið í kynningu og telur að þjónusta heilsugæslunnar ætti að batna í kjölfarið. </font /></b /> 17.4.2005 00:01
Þjóðernissinnar sigra í Baskalandi Flokkur þjóðernissinna í Baskalandi, sem stefna að því að ná samkomulagi við Spánarstjórn um aukin sjálfstjórnarréttindi héraðsins, virtist hafa unnið sigur í kosningum þar í gær, án þess þó að ná hreinum meirihluta á héraðsþinginu. 17.4.2005 00:01
Huga þarf að heimildum í lögum Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig í fyrirætlunum um að koma upp "svörtum lista" yfir flugdólga. Hún segir þó ekkert koma í veg fyrir að flugfélög komi sér upp slíkum lista.<b> </font /> </b> 17.4.2005 00:01
Á ekki heima með föndrinu Í burðarliðnum er sýning á málverkum Halldórs G. Dungals, sem verið hefur blindur í fimm ár. Verkin eru ný, máluð eftir að hann missti sjónina. 17.4.2005 00:01
Talat nýr forseti Kýpur-Tyrkja Kýpur-Tyrkir kusu í gær nýjan forseta lýðveldis síns, sem Tyrkland, eitt ríkja heims, viðurkennir sem sjálfstætt ríki. Sigurvegarinn er Mehmet Ali Talat, en hann hefur það á stefnuskránni að sjá til þess að hinn tyrkneski hluti eyjarinnar fái líka aðild að Evrópusambandinu eins og gríski suðurhlutinn. 17.4.2005 00:01
Kínverjar og Japanar kljást Kínverski utanríkisráðherrann Li Zhaoxing tjáði japönskum starfsbróður sínum í gær að kínversk stjórnvöld hefðu ekkert að biðjast afsökunar á, en japanskir ráðamenn hafa farið fram á að kínversk stjórnvöld biðji Japana afsökunar á and-japanskri múgæsingu í Kína. 17.4.2005 00:01
Haider kjörinn formaður nýs flokks Austurríski popúlistinn Jörg Haider var í gær kjörinn formaður nýs stjórnmálaflokks sem vill vera meiri miðjuflokkur en Frelsisflokkurinn, sem Haider fór lengi fyrir en hann yfirgaf í byrjun þessa mánaðar. 17.4.2005 00:01
Kasparov barinn með taflborði Garry Kasparov, besti skákmaður heims um rúmra tveggja áratuga skeið, var barinn í höfuðið með taflborði á samkomu í Moskvu. Kasparov slapp við meiðsl en var brugðið og sagði atvikið til komið vegna stjórnmálaþátttöku sinnar. 17.4.2005 00:01