Fleiri fréttir

Óskað eftir skýringum

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur farið þess á leit við íslenska ríkið að það skili greinargerð um mál karlmanns sem var dæmdur fyrir að verða barni að bana með því að hrista það. Maðurinn var dæmdur til fangelsisvistar eftir að barn sem hann og kona hans höfðu í umsjá sinni lést.

Yfir fimmtíu óku of hratt

Mikil umferð var um Blönduós um helgina og hafði lögreglan á svæðinu varla undan við að stoppa ökumenn fyrir hraðakstur. "Fólk verður að fara að gera sér grein fyrir því á hvaða svæði það er að keyra," segir Vilhjálmur Stefánsson, lögreglumaður á Blönduósi. "Það er að keyra á besta hraðahindrunarsvæði landsins."

Berlusconi hótar að rjúfa þing

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hótar að rjúfa þing og efna til nýrra þingkosninga takist ekki að halda ríkisstjórn hans starfhæfri. Í gær hætti einn flokkur stjórnarsamstarfinu og leiðtogar annars stjórnarflokks hafa lýst þeirri skoðun sinni að efna beri til nýrra kosninga í ljósi hörmulegs gengis stjórnarflokkanna í héraðskosningum fyrir viku.

Braut rúðu í lögreglubíl

Maður braut afturrúðu í lögreglubíl í miðbæ Reykjavíkur á fimmta tímanum í nótt eftir að hafa kastað flösku í bílinn. Tveir lögreglumenn voru í bílnum en sakaði hvorugan þeirra. Maðurinn hljóp á brott og náðist hann ekki. Biður lögreglan þá sem urðu vitni að atburðinum að hafa samband við lögregluna í Reykjavík.

Auka kvóta úr sameiginlegum stofni

Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær einhliða að auka kvóta íslenskra skipa til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum. Fá íslensku skipin á þessu ári að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld. Ekki náðist samkomulag við Norðmenn um veiðarnar og hafa báðar þjóðir því í reynd tekið einhliða ákvörðun í málinu.

Össur og Ingibjörg á Akureyri

Össur Skarphéðinsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru á meðal ræðumanna á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins á Akureyri í hádeginu. Fundurinn ber yfirskriftina <em>Ekki gera eins og mamma þín segir þér!</em> - klár tilvísun í þá félaga Karíus og Baktus. Þetta er í fyrsta sinn sem þau Ingibjörg og Össur mæta á sameiginlegan fund frá því að baráttan um formannsembættið í Samfylkingunni tók að harðna.

Áfram mótmæli gegn Japan í Kína

„Japanskir innrásarhermenn deyi!“ hrópuðu þúsundir æstra mótmælenda í austurhluta Kína í morgun. Þeir köstuðu grjóti og flöskum að japönsku ræðismannsskrifstofunni í Shanghai. Stjórnvöld virðast hins vegar ekki lengur jafn ánægð með mótmælin. Þau vöruðu meðal annars námsmenn við að taka þátt í þeim og óeirðalögregla stöðvaði mótmæli í Guanhzhou og Chongqing.

Rafmagnstruflanir á Vesturlandi

Rafmagnstruflanir hafa verið á Vesturlandi í morgun og fór rafmagn af í Kjósinni klukkan 10 í morgun. Vinnuflokkur RARIK frá Borgarnesi hefur hafið vinnu við bilanaleit.

Hart tekið á klámmyndasendingum

Hver sá sem dreifir klámmyndum um farsíma má eiga von á allt að þúsund svipuhöggum, tólf ára fangelsi og tæplega tveggja milljóna króna sekt, nái lagafrumvarp fram að ganga í Sádi-Arabíu. Frumvarpið var lagt fram eftir að þrír karlmenn voru dæmdir til þess að þola tólf hundruð svipuhögg og sitja af sér fangelsisdóm fyrir að taka upp nauðgun með farsímamyndavél og senda vinum sínum.

Hvalfjarðargöng lokuð til þrjú

Hvalfjarðargöngin verða lokuð í dag til klukkan þrjú vegna almannavarnaæfingar. Hægt verður að aka fyrir Hvalfjörðinn eins og aðra daga.

Vanhanen í framboð til forseta

Matti Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, lýsti því yfir í dag að hann hygðist bjóða sig fram til forseta landsins í kosningum í byrjun næsta árs. Frá þessu greinir finnska fréttastofan STT. Vanhanen hefur setið í stóli forsætisráðherra í tvö ár en samkvæmt STT mun hann hafa tjáð flokksfélögunum sínum í Miðjuflokknum að hann vilji fremur gegna forsetaembættinu sem er æðsta og virtasta embætti landsins.

Sextíu manns í gíslingu í Írak

Mannræningjar í Írak halda sextíu manns í gíslingu skammt frá Bagdad og hóta að drepa alla gíslanna yfirgefa ekki allir sjítar svæðið þegar í stað.

Innanlandsflug liggur niðri

Allt innanlandsflug liggur niðri frá Reykjavíkurflugvelli vegna veðurs og á næst að athuga með flug klukkan hálftvö.

Óttast að mótmæli fari úr böndunum

„Japanskir innrásarhermenn deyi!“ hrópuðu þúsundir æstra mótmælenda í austurhluta Kína í morgun. Kínversk stjórnvöld virðast nú hafa af því nokkrar áhyggjur af mótmælin geti farið úr böndunum.

Vísar ábyrgðinni annað

Bandaríkjamenn og Bretar bera stóran hluta ábyrgðarinnar á því að Saddam Hussein gat smyglað olíu og stórgrætt á því, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Æfa viðbrögð við hópslysi

Fjölmenn almannavarnaæfing hefur staðið yfir í Hvalfjarðargöngunum frá því snemma í morgun og er göngunum lokað af þeim sökum. Marinó Tryggvason öryggisfulltrúi Spalar segir afar mikilvægt að fá tækifæri til að æfa viðbrögð yrði hópslys í göngunum.

Miklir þurrkar í Portúgal

Miklir þurrkar hafa verið í Portúgal síðustu mánuði og hefur vatnsbúskapur landsins ekki verið lakari í aldarfjórðung. Þurrkarnir hafa áhrif á yfir helming landsins og segir Veðurstofa Portúgals að úrkoma frá því október í fyrra sé innan við 65 prósent af meðaltalsúrkomu á sama tímabili á árunum 1961-1990.

Tvíburar í æðstu embætti Póllands?

Svo gæti farið að eineggja tvíburar settust í sæti forseta og forsætisráðherra Póllands á þessu ári, en þá eiga að fara fram bæði þing- og forsetakosningar. Bræðurnir Jaroslaw og og Lech Kaczynski hafa látið mikið að sér kveða í pólskum stjórnmálum að undanförnu. Samkvæmt skoðanakönnunum sem birtar voru í gær nýtur íhaldsflokkur, sem Jaroslaw fer fyrir, mest fylgis allra flokka og því gæti hann hugsanlega sest í forsætisráðherrastól eftir kosningar.

Sjö létust í árás á veitingahús

Sjö manns - fimm óbreyttir borgarar og tveir lögreglumenn - létust í sprengjuárás á vinsælan veitingastað í Baquba í Írak um hádegi í dag. Fimm slösuðust í árásinni, en veitingastaðurinn var þéttsetinn þegar sprengjan sprakk. Árásum á lögreglu og borgara í Írak hefur fjölgað aftur undanfarna daga eftir að dregið hafði úr þeim í kjölfar þingkosninga í landinu í lok janúar.

Björn fagnar áræði Agnesar

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra vonar að Agnes Bragadóttir blaðamaður og félagar hennar hafi erindi sem erfiði í baráttu sinni fyrir því að almenningur eignist sem stærstan hlut í Símanum. Þetta segir Björn á heimasíðu sinni í dag og fagnar áræði Agnesar sem og dugnaði.

Háhraðavæðing fyrir árið 2007

Fjarskiptaáætlun fyrir tímabilið 2005-2010 gerir ráð fyrir að öll heimili, stofnanir og fyrirtæki landsins verði orðin háhraðavædd fyrir árið 2007 sem muni skipa Íslandi í fremstu röð þjóða í upplýsingatækni. Áætlunin gerir ráð fyrir að ein sjónvarpsstöð hið minnsta verði send stafrænt út um gervihnött fyrir landið allt og næstu mið strax á þessu ári og að í boði verði stafrænt sjónvarp um háhraðanet.

Gagnrýna lóðaútdrátt í Lamabaseli

Niðurstöður happadrættisins um lóðirnar 30 í Lambaselinu í Reykjavík sem fram fór á fimmtudag eru stórlega dregnar í efa í grein sem birtist á <em>Vefþjóðviljanum</em> í dag. Greinarhöfundar benda á að umsókn númer 545 var dregin út í 14. drætti og umsókn númer 546 í 15. drætti. Þykir þeim ólíklegt að tvær samliggjandi umsóknir úr svo stórum bunka séu dregnar út í röð.

Arabar og lögregla tókust á í Íran

Að minnsta kosti einn lést í átökum araba og öryggissveita í borginni Ahvaz í suðurvesturhluta Írans í dag. Samkvæmt IRNA-fréttastofunni gengu arabar, sem eru minnihlutahópur í Íran, um götur borgarinnar og létu ófriðlega en lögregla svaraði þeim með því að skjóta á hópinn og beita táragasi. Talið er að arabarnir hafi verið að berjast fyrir sjálfstæði Khuzestan-héraðs sem hefur að geyma margar af bestu olíulindum Írans.

Margrét Danadrottning 65 ára

Margrét Þórhildur Danadrottning fagnar í dag 65 ára afmæli sínu. Hún tók við heillaóskum frá þegnum sínum í dag þegar hún kom ásamt manni sínum Hinriki prins, syninum Jóakim og sonarsonunum Nikolaj og Felix út á svalir Amalienborgar. Þúsundir voru saman komnar á torginu við höllina í góðu veðri og veifuðu dönskum fánum og var konungsfjölskyldan klöppuð fram á svalirnar í þrígang.

Elur barn í galleríi

Par í Þýsklandi hefur ákveðið að fara óvenjulega og listræna leið þegar það eignast frumburðinn í lok mánaðarins. Konan mun ala barnið í galleríi í Berlín og er búist að 30 manns verði viðstaddir fæðinguna auk föðurins. Þýska blaðið <em>Bild</em> hefur eftir föðurnum að gjörningurinn sé gjöf til mannkyns en parið vill andæfa hefðbundnum gildum samfélagsins.

Ítalir vilja ítalskan páfa

Ítalir vilja aftur ítalskan páfa og eru hræddir um að ef svo verður ekki muni kaþólska kirkjan loka dyrunum á þá fyrir fullt og allt í þeim málum. Í 455 ár var Ítali valinn í stól páfa eða þar til Jóhannes Páll annar, sem var pólskur að uppruna, var valinn, en hann sat á stóli í alls 26 ár.

Tími Ingibjargar ekki kominn

Það er ekkert sem bendir til þess að tími Ingibjargar Sólrúnar muni ekki koma einhvern tíma en það verður þó að bíða betri tíma. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson á opnum fundi um stjórnmál unga fólksins sem haldinn var fyrir norðan í dag undir yfirskriftinni <em>Ekki gera eins og mamma þín segir þér</em>. Þá sagðist Össur sjálfur vera best til þess fallinn að leiða flokkinn í næstu kosningum.

Musharraf til Indlands

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, kom í dag í heimsókn til Indlands í fyrsta sinn í fjögur ár. Ríkin hafa lengi deilt um yfirráð í Kasmír-héraði og verið á barmi styrjaldar en undanfarið ár hafa staðið yfir friðarviðræður sem m.a. leiddu til þess að í síðustu viku voru áætlunarferðir á milli indverska og pakistanska hluta Kasmír í fyrsta sinn í tæpa sex áratugi.

Hafi erindi sem erfiði

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segist vona að Agnes Bragadóttir og félagar hennar í átaki til að koma saman hópi lítilla fjárfesta til að kaupa hlut í Símanum hafi erindi sem erfiði. Hann furðar sig hins vegar á því að hún geri Alþingi að blóraböggli.

Hundar bönuðu konu

Tveir hundar réðust á og bönuðu eiganda sínum, 74 ára gamalli konu á eftirlaunum. "Ég hef séð hundsbit áður en ég hef aldrei séð neitt þessu líkt," sagði James Peacock, lögreglustjóri í Wheeler-sýslu í Georgíuríki.

Skaut konu sína og börn

Karlmaður skaut konu sína og þrjú ung börn til bana á heimili þeirra í hollenska bænum Hilversum. Að því búnu skaut hann sjálfan sig. Börnin eru öll innan við tíu ára gömul.

Tugir teknir í gíslingu

Súnnískir uppreisnarmenn tóku tugi sjíamúslima í gíslingu í bænum Madain, nærri Bagdad, og hótuðu að myrða þá alla ef sjíar hefðu sig ekki allir á brott frá borginni.

Varðist árás hákarls

Brimbrettamanni í Ástralíu tókst í dag að verjast árás tveggja metra hákarls með réðst á hann undan Bronte-strönd í Sydney. Maðurinn mun hafa stokkið af brimbrettinu sínu þegar hákarlinn réðst á hann og tókst að halda sig frá honum með brettinu, en hákarlinn beit tvisvar í brettið áður en hann hvarf á braut.

Heita leynd um kjör páfa

Ekkert spyrst út um hver verður næsti páfi fyrr en formlega verður tilkynnt um hver tekur við af Jóhannesi Páli II páfa. Þessu hétu yfirmenn öryggismála í Vatíkaninu, sem hafa það verkefni að tryggja að fjölmiðlar komist ekki að því hvað gerist í páfakjörinu nema eftir opinberum leiðum.

Lifa ekki af án breytinga

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fór hörðum orðum um Sameinuðu þjóðirnar og réttlætti umdeilt val sitt á nýjum sendiherra með því að hann væri besti maðurinn til að koma nauðsynlegum breytingum í gegn.</font /></b />

Ungbarnadauði alvarlegasti vandinn

Mary Robinson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, hvetur til alþjóðlegs átaks gegn ungbarnadauða. Hann samsvarar í viku hverri öllum þeim sem fórust í flóðunum í Asíu um áramótin.

Ákvæði stangast á við skýringar

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri telur að ákvæði í frumvarpi að nýju lögum um RÚV stangist á við skýringar með frumvarpinu.

Íhuga að ráðast gegn mannræningjum

Yfirvöld í Írak íhuga nú að beita hervaldi til að frelsa 60 sjíta sem haldið er í borginni Madaen, en samningaviðræður við gíslatökumennina, sem eru súnnítar, hafa ekki skilað neinum árangri. Þetta hefur Reuters-fréttastofan eftir ónefndum embættismanninn innan íröksku stjórnarinnar.

Segir alla sitja við sama borð

Yfir 30 áhugasamir kaupendur hafa þegar fengið eða fá á næstu dögum tilboðsgögn í tengslum við sölu Símans. Formaður einkavæðingarnefndar segir alla sitja við sama borð.

Óprýði af rusli af Norðlingaholti

Heldur ófögur sjón blasti við vegfarendum á Breiðholtsbrautinni á milli Selásbrautar og Suðurlandsvegar í dag. Verktakar sem byggja hús í nýja hverfinu við Norðlingaholt virðast ekki hafa gengið nægilega vel frá plastumbúðum sem fuku í rokinu í morgun og liggja nú eins og hráviði í gróðrinum í nágrenninu.

Í nýja herbúninga fyrir ferðamenn

Varðaskipti voru í hádeginu í dag við Kreml og ugglaust telja menn það ekki miklar fréttir. Það sem fréttnæmt er við varðaskiptin er að engir verðir af þessu tagi hafa þrammað við Kremlarmúra síðan síðasti Rússakeisari var drepinn árið 1918. Búningarnir sem verðirnir klæðast í dag eiga að minna á búningana sem verðir Nikulásar keisara klæddust á árunum 1907 til 1913.

Handtekinn eftir ólæti í flugvél

Sex íslenskir farþegar voru færðir í hendur lögreglu og var einn þeirra handtekinn við komuna til Kaupmannahafnar í morgun eftir að flugstjóri Iceland Express hafði gert lögreglu viðvart. Farþegarnir höfðu hótað hver öðrum og meðlimum í áhöfn vélarinnar líkamsmeiðingum.

Gagnrýndi ómálefnalega umræðu

Tími Ingibjörgar Sólrúnar sem leiðtogi Samfylkingarinnar er ekki kominn sagði Össur Skarphéðinsson, formaður flokksins, á opnum stjórnmálafundi á Akureyri í dag. Ingibjörg Sólrún gagnrýndi Össur og stuðningsmenn hans fyrir ómálefnalega umræðu.

Gagnrýni ákvæði um RÚV

Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri segist ekki sjá nein rök fyrir ákvæði í frumvarpi að nýjum lögum um Ríkisútvarpið, þar sem kveðið er á um að stjórn stofnunarinnar eigi að setja reglur um fréttaflutning og auglýsingar og gæta þess að reglum sé fylgt.

Sjá næstu 50 fréttir