Fleiri fréttir

Hundrað kennarar ræða sérsamninga

Margir grunnskólakennarar vilja skoða sérsamninga á meðan aðrir telja þá ganga þvert á niðurstöðu síðustu kjaraviðræðna, segir skólastjóri Sjálandsskóla í Garðabæ. Um hundrað kennarar mættu á málstofu Kennarafélags Reykjavíkur um bókun fimm í kjarasamningnum sem gefur svigrúm til sérsamninga í eitt ár.

Láglaunafólk dýrast í Frakklandi

Hvergi í heiminum er starfsmaður á lágmarkslaunum jafn dýr fyrir atvinnurekendur eins og í Frakklandi. Þegar allt er tekið með í reikninginn kostar starfsmaður á lágmarkslaunum um 54 prósent af kostnaði við starfsmann með meðaltekjur í Frakklandi.

Loðfílaleifar finnast

Fornleifafræðingar í Kaliforníu í Bandaríkjunum fundu í vikunni mjög heillegar leifar af loðfíl sem talið er að verið hafi uppi fyrir um fimm hundruð þúsund árum. Leifar fílsins fundust á byggingarsvæði og þykja hafa varðveist óvenju vel.

Fimm sækja um hjá RÚVAUST

Fimm umsækjendur eru um starf forstöðumanns svæðisútvarps RÚV á Austurlandi sem auglýst var nýlega.

200 manns látnir á þremur vikum

Nú hafa fjórtán manns í viðbót látist í Angóla úr Marburg-veirunni sem er skyld hinni skæðu E-bóla veiru. Alls hafa tæplega 200 manns látist síðan útbreiðsla hennar hófst fyrir þremur vikum.

80% háskólamenntaðra flytja

Meira en áttatíu prósent af háskólamenntuðu fólki á Jamaíka og í Gvæjana flytjast til hinna auðugu ríkja OECD, þ.e. þeirra sem eru meðlimir í Samtökum olíuframleiðsluríkja. Á Trínidad og Haítí er brottfluttningur meira en sjötíu prósent.

50% hærra olíuverð fyrir fiskiskip

Meðalverð á olíu til fiskiskipa er fimmtíu prósentum hærra í dollurum talið það sem af er mánuðinum en það var að meðaltali í fyrra og horfa útvegsmenn jafnvel fram á tap af úthafskarfaveiðum og kolmunnaveiðum. 

Gamalt fólk lamið og bitið

Allir öldrunarlæknar á landinu hafa séð dæmi um ofbeldi gagnvart sjúklingum sínum. Algengast sé að reynt sé að hafa af þeim fé. Öldrunarlæknir segir að fólk þurfi að átta sig á að líkamlegu ofbeldi linni ekki þótt eftirlaunaaldri sé náð.</font /></b />

Fjölmennasta jarðarför sögunnar?

Milljónir manna tóku þátt í útför páfa í Róm í morgun sem er líklega fjölmennasta jarðarför sögunnar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að athöfnin hafi einkennst bæði af sorg og gleði; það hafi meðal annars komið sér á óvart þegar klappað var við athöfnina.

Fækkun banaslysa minni á Íslandi

Fækkun banaslysa hefur verið minni hér á landi síðustu ár en hjá nágrannalöndum okkar samkvæmt nýrri skýrslu Umferðarstofu. Umferðarverkfræðingur segir ýmsar skýringar vera á þessu eins og langt vegakerfi og fáir bílar.

Ýmsar skýringar á verðbreytingunum

Stóru olíufélögin þrjú, Essó, Skeljungur og Olís, sem nýverið hækkuðu verð á bensíni, drógu svo hækkuninina til baka og hækkuðu svo aftur í gær, gefa upp ýmsar skýringar á þessum verðbreytingum, ýmist að þær megi rekja til verðs á heimsmarkaði eða til markaðsaðstæðna á innanlandsmarkaði.

Enginn þarf að taka við styrkjum

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra sagði á aðalfundi landssambands kúabænda í dag að enginn væri neyddur til að taka við styrkjum frá ríkinu. Jafnframt sagði hann ekki vera bann við framleiðslu á ostum utan framleiðslukerfisins en miklar umræður hafa verið um nýja mjólkursamlagið, Mjólku ehf., sem hyggst framleiða osta án styrkja ríkisins.

Stöðvuðu grunsamlega flugvél

Flugvél sem stefndi á Rómarborg var neydd til að lenda fyrir utan borgina í morgun á meðan útför Jóhannesar Páls páfa II fór fram. Grunur lék á að sprengja væri um borð í vélinni en að sögn talsmanns innan ítalska hersins kom í ljós eftir að leitað var í vélinni að grunurinn reyndist ekki á rökum reistur.

Fengu frí vegna útfararinnar

Fjöldi kaþólikka hér á landi fylgdist með útför páfa í dag. Öllum kaþólskum starfsmönnum Síldarvinnslunnar í Neskaupsstað var gefið frí frá störfum í dag vegna útfararinnar og vinnslan er því keyrð á lágmarks afköstum þar sem stór hluti starfsmanna er pólskur.

Brýtur blað í sögunni

Pálína Ásgeirsdóttir hefur brotið blað í sögu íslenskra hjúkrunarfræðinga hjá Rauða krossinum. Hún verður fyrst þeirra til að setjast í stól yfirmanns spítalahjúkrunarþjónustu Alþjóða Rauða krossins í Genf. Hún tekur við starfinu um mánaðamót og hlakkar til. </font /></b />

Falsaðar happaþrennur til lögreglu

Fölsun á happaþrennum er ein leið sem óprúttnir reyna til að svíkja út fjármuni. Þrjár slíkar falsanir voru nýlega kærðar til lögreglunnar í Reykjavík. Mest er um að svikararnir reyni að svíkja út fimm þúsund króna vinninga. </font /></b />

Þrír létust í Kaíró

Þrír létust í sprengjuárás á útimarkaði í Kaíró í Egyptalandi í gær. Markaðurinn er vinsæll meðal ferðamanna og í sprengingunni létust bandarískur maður, frönsk kona og sá sem grunaður er um sprenginguna.

Ágreiningur um Íbúðalánasjóð

"Þegar menn tala um að Íbúðalánasjóður eigi að einbeita sér að einhvers konar félaglegum lánum þá finnst mér skorta upplýsingar um hvað menn eiga við með þessu", segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra.

Ágreiningur um Íbúðalánasjóð

"Þegar menn tala um að Íbúðalánasjóður eigi að einbeita sér að einhvers konar félaglegum lánum þá finnst mér skorta upplýsingar um hvað menn eiga við með þessu", segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra.

Pólverjar á Íslandi syrgja páfa

Gera má ráð fyrir að meginþorri allra Pólverja á Íslandi hafi tekið sér frí frá störfum í gær til að geta fylgst með sjónvarpsútsendingum frá útför Jóhannesar Páls páfa annars.

Grefur ekki undan kerfinu

Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, telur að starfsemi og tilvist Mjólku, sem hyggst starfa utan við greiðslumarkskerfið, grafi ekki undan kerfinu hjá kúabændum.

Leita veggjakrotara með þyrlum

Yfirvöld í Þýskalandi hafa fengið sig fullsödd af þeim sem stunda veggjakrot, eða svokallað „graffiti“, í borgum og bæjum landsins og hafa nú gripið til stórtækra aðgerða. Þýska lögreglan er nefnilega byrjuð að leita uppi veggjakrotarana í skjóli nætur með þyrlum og myndavélum sem hægt að er að nota í myrkri.

Vill setja skilyrði

Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda, telur koma til greina að setja skilyrði um að vextir á lánum kúabænda hjá Lánasjóði landbúnaðarins verði ekki hækkaðir upp fyrir ákveðið mark fyrstu árin eftir sölu skuldabréfanna og að skuldararnir geti fært skuldabréfin annað ef þeir telja vextina ekki nógu hagstæða.

Óska Mjólku velfarnaðar

Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra telur að starfsemi nýja mjólkurbúsins Mjólku standist lög. "Mér sýnist að bændum sé heimilt að standa utan við kerfið. Það er ekkert sem bannar framleiðslu á ostum utan greiðsulmarks," segir hann.

Hlýnar á landinu

Hlýnað hefur á öllu landinu síðasta sólarhring nema á Norðausturlandi; þar er snjókoma. Ekki er hægt með vissu að segja til um hvort komi annað kuldakast en samkvæmt dagatalinu og ferðum lóunnar er vorið komið.

Stjórnarskráin tilbúin í ágúst

Búist er við að ný stjórnarskrá fyrir Írak verði tilbúin um miðjan ágúst. Þetta var haft eftir hinum nýkjörna forseta landsins, Jalal Talabani, í dag. Tíu vikur eru liðnar síðan kosningar fóru fram í Írak og enn á eftir að mynda ríkisstjórn. Stefnt er að nýjum þingkosningum í lok þessa árs.

Stjórnvöld samþykki dagskrárstefnu

Fjölmiðlanefnd leggur til að ljósvakamiðlum verði gert að fá samþykki opinbers stjórnvalds fyrir dagskrárstefnu sinni og að slíkt samþykki verði skilyrði leyfisveitingar. Stjórnarformaður Og Vodafone kallar þetta „yfir-ritstjórn“ ríkisins og efast um að það standist prentfrelsisákvæði stjórnarskrárinnar.

Milljónir við útför páfa

Jóhannes Páll páfi II var jarðsettur í dag í grafhvelfingu undir Péturskirkjunni í Róm í langfjölmennustu trúarlegu athöfn seinni tíma. Milljónir tóku þátt í athöfninni, þar á meðal Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sem upplifði bæði sorg og gleði í útförinni.

Helstu auðlindir Íslands?

Fimm kílómetra djúpar borholur með um sex hundrað gráðu heitri gufu gætu orðið helstu auðlindir Íslands ef tilraunaboranir Landsvirkjunar og samstarfsfyrirtækja ganga vel.

6 milljarða niðurskurður

Ný samgönguáætlun, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi, felur í sér nærri sex milljarða króna niðurskurð á kosningaloforðum sem gefin voru fyrir tveimur árum. 

Hættulegar aukaverkanir gigtarlyfs

Gigtarlyfið Bextra verður tekið af markaði á næstunni vegna gruns um hættulegar aukaverkanir. Fyrir hálfu ári var gigtarlyfið Vioxx innkallað af sömu ástæðu.

Ókeypis búslóðir

Tíminn er að renna út fyrir þá sem komu búslóðinni sinni einhvern tímann í geymslu í húsnæði að Skeifunni 5. Ef eigendurnir vitja ekki eigna sinna um helgina, verða þær gefnar. 

Heimsmeistari í uppstoppun

Íslendingar hafa eignast heimsmeistara í uppstoppun fiska. Íslensku keppendurnir tveir komu til landsins í morgun. Við komuna til Bandaríkjanna, þar sem keppnin var haldin, eyðilögðu tollverðir uppstoppaða fugla annars þeirra. 

Vitleysa að stunda sauðfjárbúskap

Það er hagfræðileg vitleysa að stunda sauðfjárbúskap á Íslandi, segir formaður sauðfjárbænda. Fjórtán prósenta söluaukning kindakjöts innanlands á síðasta ári skapar þó von um betri hag en um leið áhyggjur af skorti á kjöti fyrir vaxandi markaði erlendis.

Blair vill bjarga Rover

Breska ríkisstjórnin lagði á það áherslu í gær að hún væri að gera allt sem í hennar valdi stæði til að afstýra gjaldþroti MG Rover bílaverksmiðjanna, í von um að afstýra með því að kjósendur refsuðu henni fyrir meint aðgerðarleysi í þingkosningunum 5. maí.

Akureyri sótt heim

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og forsetafrúin, Dorrit Moussaieff, verða í opinberri heimsókn á Akureyri á mánudag og þriðjudag en á miðvikudag sækja forsetahjónin íbúa Eyjafjarðarsveitar heim.

Ein fjölmennasta útför sögunnar

Milljónir manna fylgdust með útför Jóhannesar Páls II páfa í gær. Margir líkfylgdargesta kölluðu eftir því að hann yrði tekinn í dýrlingatölu. </font /></b />

Jóakim og Alexandra skilin

Lögskilnaður Jóakims Danaprins og Alexöndru prinsessu var í gær staðfestur af konunglegum dómstól. Þar með lauk lögformlega tíu ára hjónabandi þeirra, en þetta er fyrsti skilnaðurinn í dönsku konungsfjölskyldunni í nærri 160 ár.

Íslandskynning í hartnær öld

Nýlega birtist í þýska vikuritinu Die Zeit nokkuð ítarleg og lofsamleg grein um rithöfundinn Jón Sveinsson, Nonna, bæinn hans Akureyri og fleira tengt Íslandi.

Fær ekki starfslokasamning

Útvarpið skýrði frá því í gær að Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri hefur hafnað beiðni lögmanns Auðuns Georgs Ólafssonar um viðræður um starfslokasamning við Ríkisútvarpið.

Lækkun fimmta daginn í röð

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í gær, fimmta daginn í röð. Við lokun markaða hafði verðið á olíufatinu lækkað um fjóra Bandaríkjadali frá því í byrjun vikunnar.

Brúðkaup eftir jarðarför

Kominn beint úr jarðarför páfa gengur Karl Bretaprins í dag að eiga Camillu Parker Bowles í borgaralegri hjónavígslu í Windsor vestur af Lundúnum. Sjónvarpað verður frá kirkjulegri blessunarathöfn í kapellu Windsor-kastala í framhaldi af vígslunni.

Prinsessa fæðist

Martha Lovísa Noregsprinsessa og eiginmaður hennar, rithöfundurinn Ari Behn, eignuðust í gær dóttur sem gefið hefur verið nafnið Leah Isadora.

Liggur mikið á hjarta

Alþýðusambandið ætlar að hefja átak gegn félagslegum undirboðum og ólöglegum ráðningum útlendinga í byrjun maí. Daglega hringja margir til að koma með ábendingar um ólöglega starfsemi og undirboð.

11 milljónir barna deyja

Áætlað er að ellefu milljónir barna fimm ára og yngri deyi í ár vegna einhvers sem koma má í veg fyrir. Þetta kom fram á fundi á Nordica hótelinu í gær, sem haldinn var í tilefni af Alþjóðaheilbrigðisdeginum.

Sjá næstu 50 fréttir