Fækkun banaslysa minni á Íslandi 13. október 2005 19:01 MYND/Einar Ólason
Fækkun banaslysa hefur verið minni hér á landi síðustu ár en hjá nágrannalöndum okkar samkvæmt nýrri skýrslu Umferðarstofu. Umferðarverkfræðingur segir ýmsar skýringar vera á þessu eins og langt vegakerfi og fáir bílar. Í skýrslu Umferðarstofu fyrir umferðarslys síðasta árs kemur fram að átta af hverjum hundrað þúsund Íslendingum létust í banaslysum. Á sama tíma létust sex af hverjum hundrað þúsund í Noregi og Svíþjóð og sjö í Danmörku og Finnlandi. Haraldur Sigþórsson, umferðarverkfræðingur hjá Línuhönnun og ráðgjafi rannsóknarnefndar Umferðarslysa, segir tölur sem þessar vera breytilegri hér en annars staðar á Norðurlöndunum þar sem við minni íbúafjölda verði meiri sveiflur. Þrátt fyrir það hefur banaslysum fækkað minna hér. Haraldur segir væntanlega margar skýringar á því, t.d. þær að hér á landi er tiltölulega langt vegakerfi, fáir bílar sem nota það og vegirnir byggðir upp af vanefnum. Umhverfi vega sé ekki hreinsað, skortur er á vegriðum og of mikið af einbreiðum brúm, auk þess sem ökumenn eigi til að keyra of hratt vegna hinnar litlu umferðar. Haraldur segir að 2+1 vegir gætu aukið umferðaröryggi hér á landi til muna, og þá með vegriði á milli aksturstefna, fyrir utan aukna löggæslu og áróður.
Fréttir Innlent Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Sjá meira