Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn og aftur námuslys í Kína Sautján námumenn létust og 52 er saknað eftir enn eitt námuslysið í Kína í morgun. Talið er að gassprenging hafi orðið í námunni, sem er kolanámuhéraðinu Shanxi í norðurhluta Kína. Tveimur mönnum hefur verið bjargað en 52 eru sagðir fastir inni í námunni. 19.3.2005 00:01
Klappað fyrir ráðherra vegna ganga Klappað var á Siglufirði í dag þegar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra lýsti því yfir að borun Héðinsfjarðarganga hæfist eftir sextán mánuði. Göngin eiga að vera tilbúin í lok árs 2009. 19.3.2005 00:01
Enn við störf að Kárahnjúkum Lettarnir fjórir sem hafa starfað fyrir GT verktaka að Kárahnjúkum án atvinnu- og dvalarleyfa eru enn við störf. Meira en mánuður er liðinn frá því Vinnumálastofnun sendi kæru vegna mannanna til sýslumannsins á Seyðisfirði. 19.3.2005 00:01
Hengdur upp á höndunum Þrenn handjárn voru sett á Bobby Fischer og hann hengdur upp á höndunum eftir að hann sló fangavörð, að sögn Sæmundar Pálssonar. Hann segir Íslendinga ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að Fischer geti ekki framfleytt sér hér á landi. 19.3.2005 00:01
Mótmæltu stríði á Ingólfstorgi Nokkur hundruð manns söfnuðust saman á Ingólfstorgi í dag til að krefjast þess að Bandaríkjastjórn dragi herlið sitt út úr Írak. Tilefnið? Jú, í dag eru liðin tvö ár frá því Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra, þar á meðal Íslendingar, ákváðu að koma Saddam Hussein frá völdum í Írak. 19.3.2005 00:01
Gjaldeyristekjur verði tífaldaðar Samtök upplýsingatæknifyrirtækja hafa gert viðskipta- og iðnaðarráðherra tilboð um að auka gjaldeyristekjur Íslendinga úr fjórum í 40 milljarða fyrir árslok 2010. Þetta vilja þau gera í samstarfi við stjórnvöld. 19.3.2005 00:01
Tímamótasamningur Kjarasamningur Félags framhaldsskólakennara hefur 21 prósents heildaráhrif á samningstímanum, sem er til 2008. Samningurinn felur í sér sömu hækkanir og á almennum vinnumarkaði. Stofnanasamningur verður gerður innan hvers framhaldsskóla. Atkvæðagreiðslan fer fram í lok mars. 19.3.2005 00:01
Ánægð með tilboðið Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er ánægð með tilboð Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja enda gert ráð fyrir að verkefnið, sem það gengur út á, geti gefið ríkissjóði 3 milljarða króna í auknar skatttekjur. 19.3.2005 00:01
Mikil vonbrigði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir það mikil vonbrigði að Margrét Hólm Valsdóttir, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga, hafi ekki náð kjöri í aðalstjórn Sparisjóðabankans. 19.3.2005 00:01
Handahófskennd vinnubrögð Ríkisborgararéttur skákmeistarans Bobby Fischers verður tekinn til umræðu á Alþingi eftir helgina og má búast við að hann verði afgreiddur á mánudagskvöld. Sæmundur Pálsson, vinur Fischers, ætlar að vera á þingpöllunum. Ragnar Aðalsteinsson telur vinnubrögð Alþingis handahófskennd. 19.3.2005 00:01
Opinber embætti eign þjóðarinnar Pólitískum ráðningum hefur fjölgað undanfarin ár, mögulega vegna langrar valdasetu núverandi stjórnvalda. Þetta sagði Ómar H. Kristmundsson, lektor í opinberri stjórnsýslu á fundi Félags stjórnmálafræðinga um pólitískar stöðuveitingar á laugardag. 19.3.2005 00:01
Stórslysaæfing læknanema Tæplega hundrað manns tóku þátt í stórslysaæfingu Hjálparsveita og læknanema úr Háskóla Íslands sem fram fór á Malarhöfða í Reykjavík í gær. Sett var á svið neyðarástand sem átti að hafa skapast í kjölfar jarðskjálfta. Fyrsta árs nemar fengu það hlutverk að leika sjúklingana og voru því meðal annars ataðir kindablóði. Sá sem skilaði hlutverki sínu best fékk svo páskaegg í verðlaun og að sögn Davíðs Þórs Þorsteinssonar sem situr í kennslu- og fræðslunefnd læknanema var leikur þess besta nokkuð sannfærandi ef frá er talinn púls og blóðþrýstingur. </font /> 19.3.2005 00:01
Bíll valt á Þjóðvegi eitt Flutningabíll með krana á festivagni valt á Þjóðvegi eitt rétt við Vatnsdalsbrú um ellefuleytið á föstudagskvöld. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Talið er að hann hafi viðbeinsbrotnað en einnig skarst hann á líkama. Loka þurfti Þjóðvegi eitt seinnipartinn í gær meðan verið var að reisa flutningabílinn við en hann lá á vegarkantinum og lokaði helmingi akreinarinnar. </font /></font /> 19.3.2005 00:01
Íslenskir þingmenn grýttir "Þeir reyndu bara að grýta okkur," sagði Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður, en hópur íslenskra þingmanna sem var í heimsókn í Hebron í Palestínu varð fyrir grjótkasti ísraelskra landnema í gær. Þingmennirnir voru á ferð með friðargæslumönnum og nýkomin úr heimsókn frá palenstínskri fjölskyldu þegar grjótum og hrópum rigndi yfir þá. Magnús sagði að þetta hefðu verið oddhvassir grjóthnullungar sem hent var af miklu afli og því mesta mildi að ekki urðu meiðsl á mönnum. </font /> 19.3.2005 00:01
Sex handteknir Sex voru handteknir á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags í Keflavík í þremur fíkniefnamálum. Um tíuleytið stöðvaði lögreglan bíl og við eftirgrennslan fundust þrjú grömm af meintu amfetamíni. Viðurkenndu tveir menn að eiga efnin. </font /> 19.3.2005 00:01
Líkamsárásir á Ísafirði Lögreglan á Ísafirði var kölluð út fjórum sinnum í sama partíið þar í bæ aðfaranótt laugardags. Fyrst var það vegna slagsmála milli húsráðanda og annars aðila og var gesturinn handtekinn og öðrum ögrandi gesti hent út. Sá lét sig þó ekki alveg hverfa og var lögreglan kölluð út skömmu síðar til að skakka slagsmál milli hans og húsráðandans. Slagsmálin höfðu borist út á götu þegar lögreglan kom. Þurfti hún að beita táragasi og kylfum við handtökuna en annar mannanna var vopnaður hnífi. Þurfti að flytja annan manninn á sjúkrahús með höfuðmeiðsl en þau reyndust ekki vera alvarleg.</font /> 19.3.2005 00:01
Allra kvenna elst "Mér líður ágætlega og spái lítið í að vera orðin elst Íslendinga. Það er ágætt að vera aldraður þegar maður er sæmilega frískur," segir Guðfinna Einarsdóttir, sem í dag er 108 ára og 46 daga og slær þar með Íslandsmet Halldóru heitinnar Bjarnadóttur sem varð 108 ára og 45 daga gömul. 19.3.2005 00:01
Vopnið fjörugt ímyndunarafl Jóhann R. Benediktsson sýslumaður á Keflavíkurflugvelli segir frammistöðu tollvarða sem handtóku 64 ára gamla konu með 800 grömm af kókaíni í hárkollu þann 12. mars vera framúrskarandi og á heimsmælikvarða. 19.3.2005 00:01
Fjölmenn mótmæli víða um heim Það var ekki bara á Íslandi sem þess var minnst í dag að tvö ár eru liðin frá innrásinni í Írak. Tímamótanna var minnst um allan heim og fjölmennust urðu mótmælin í þeim löndum sem eiga hermenn í Írak. 19.3.2005 00:01
Íslendingum ekki sama um stríðið Í dag eru tvö ár liðin frá innrás Bandaríkjanna og bandalagsþjóða þeirra í Írak. Af því tilefni efndu íslenskir friðarsinnar til mótmæla gegn stríðinu. Aðgerðin sýnir að Íslendingum er ekki sama, að mati fundarstjóra. 19.3.2005 00:01
Nýr meirihluti á Blönduósi Sjálfstæðismenn og H-listi vinstri manna og óháðra á Blönduósi hafa myndað nýjan meirihluta í bæjarstjórn en fyrri meirihluti H-lista og Á-lista, bæjarmálafélagsins Hnjúka, sprakk í vikunni. Valgarður Hilmarsson verður áfram forseti bæjarstjórnar og Jóna Fanney Friðriksdóttir áfram bæjarstjóri en nýr formaður bæjarráðs verður Ágúst Þór Bragason frá D-lista. 19.3.2005 00:01
Ekki borgunarmaður skaðabóta Hákon Eydal, sem í gær var dæmur fyrir morðið á Sri Rahmawati í fyrra, er ekki borgunarmaður fyrir skaðabótum til barnanna hennar og ríkissjóður ábyrgist aðeins lítinn hluta þeirra. Réttargæslumaður barna Sri telur tímabært að endurskoða lög um þetta. 19.3.2005 00:01
Háskólasetur stofnað á Ísafirði Háskólasetur á Ísafirði er stórt skref í menntamálum Vestfirðinga en þar verður boðið upp á fjölbreytt nám sem tengist atvinnugreinum á Vestfjörðum. 19.3.2005 00:01
Hundaþjálfun á Botnsheiði Það var líf og fjör á Botnsheiði við Súgandafjörð á dögunum þar sem hundar og eigendur þeirra voru þjálfaðir í snjóflóðaleit. Veðrið lék við bæði hunda og menn. 19.3.2005 00:01
Rafmagnslaust á Austurlandi Rafmagnsstaurar tóku að brotna hér og þar á Austurlandi undir morgun og er rafmagn meira og minna farið af í fjórðungnum. Þar er mikil ísing sem sligað hefur línur og ýmist slitið þær eða staurar hafa brotnað undan farginu. Starfsmaður RARIK á Egilsstöðum sagðist fyrir stundu ekki hafa við að taka við tilkynningum um rafmagnsleysi eða slitnar línur og brotna staura. 18.3.2005 00:01
Sýrlandsher fari fyrir kosningar Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir að allur herafli Sýrlendinga verði að vera farinn frá Líbanon í lok apríl þegar þingkosningar verða haldnar í landinu. Í yfirlýsingu frá Annan segir að kosningarnar verði að vera lausar við erlenda íhlutun og ekki sé rétt að fresta þeim. Annan tók sérstaklega fram að leyniþjónusta Sýrlendinga ætti að hverfa frá Líbanon á sama tíma og herlið landsins. 18.3.2005 00:01
Hafa áhyggjur af málum í Nepal Sameinuðu þjóðirnar vara við því að neyðarástand kunni að skapast í Nepal. Síðan konungur landsins hrifsaði öll völd í sínar hendur í febrúar hafa uppreisnarmenn ítrekað gert árásir og munu almennir borgarar líða mest fyrir það ef ástandið verður óbreytt. Vegna þess hve eldfimt ástandið er komast matar- og sjúkrabirgðir oft ekki til borgara landsins. 18.3.2005 00:01
Wolfowitz býður fram sáttahönd Paul Wolfowitz, sem var tilnefndur bankastjóri Alþjóðabankans í vikunni, segist þurfa að hlusta á góð ráð margra manna áður en hann geti sett mark sitt á stefnu bankans. Tilnefning Wolfowitz hefur vakið hörð viðbrögð enda hefur hann hingað til þótt einn mesti stríðshaukurinn í liði Bush Bandaríkjaforseta. 18.3.2005 00:01
Margir teknir fyrir ölvunarakstur Óvenju margir ölvaðir ökumenn voru á ferðinni í gærkvöldi og í nótt. Einn var tekinn í Reykjavík, annar í Kópavogi, sá þriðji í Keflavík, þrír á Akureyri frá því síðdegis í gær og fram á nótt og einn í Hveragerði. Á Akureyri olli einn þeirra árekstri með því að virða ekki biðskyldu og aka í veg fyrir bíl á aðalbraut en engin slys hlutust af. 18.3.2005 00:01
N-Kórea: Aftökur sagðar viðgangast Opinberar aftökur virðast eiga sér stað í Norður-Kóreu enn þann dag í dag. Á myndum sem japönsk netfréttastofa segist hafa náð þann 1. mars sést þegar aftökusveit skýtur mann til bana fyrir framan fjölda fólks. Þá náði fréttastofan einnig óljósari myndum af því þegar tveir menn voru skotnir til bana á sama hátt daginn eftir. 18.3.2005 00:01
Fundað um uppbyggingarstarf Hvernig verður sex milljörðum bandaríkjadala best varið til uppbyggingar á hamfarasvæðunum í Asíu? Embættismenn frá löndunum fimm sem verst urðu úti í hamförunum funda í dag með yfirmönnum hjálparstofnana þar sem reynt verður að finna svar við þessari spurningu. Aðalvandinn er að samræma uppbyggingarstarfið og koma í veg fyrir að spilling eigi sér stað. 18.3.2005 00:01
Rafmagn komið á á Egilsstöðum Rafmagn er aftur komið á á Egilsstöðum og verið er að reyna að tengja á ný til Vopnafjarðar, Norðfjarðar og Berufjarðar, eftir að rafmagnslaust varð víða eystra í morgun vegna bilana í raflínum sem slitnuðu vegna ísingar. Viðgerðarmenn vinna við mjög erfiðar aðstæður, mikið hvassviðri og slyddu, en sums staðar hafa rafmagnsstaurar brotnað undan farginu. 18.3.2005 00:01
Langmest kvartað vegna Landspítala Ríflega þriðjungur allra þeirra kæra og kvartana sem bárust landlæknisembættinu á árinu 2004 voru vegna Landspítala háskólasjúkrahúsi, að því er fram kemur í yfirliti frá embættinu. 18.3.2005 00:01
Hrímnir, Esmeralda og Ísmey leyfð Nöfnin Hrímnir, Esmeralda og Ísmey fengu fyrr í mánuðinum samþykki Mannanafnanefndar og hafa verið færð í mannanafnaskrá. Þá var nafnið Haralds tekið til greina sem millinafn samkvæmt þeirri beiðni sem lá fyrir hjá nefndinni en það ekki fært í mannanafnaskrá. 18.3.2005 00:01
Yfirheyrir hermann vegna tilræðis Lögregla í Rússlandi yfirheyrir nú fyrrverandi sérsveitarmann í tengslum við morðtilraun á Anatolí Tsjúbaís, forstjóra rússneska ríkisolíufyrirtækisins og einum þekktasta umbótasinna Rússlands. Tsjúbaís slapp ómeiddur þegar árásarmenn sprengdu sprengju við hlið bifreiðar hans í gærmorgun og skutu úr sjálfvirkum rifflum á bílalestina hans. 18.3.2005 00:01
Bætir GSM-kerfi sitt á Vesturlandi Og Vodafone hefur tekið í notkun GSM-senda í Hvalfjarðargöngum, en um er að ræða lokahluta verkefnis sem staðið hefur yfir frá því í fyrra og felur í sér helmingsfjölgun á sendum á GSM-dreifikerfi Og Vodafone á Vesturlandi. Í tilkynningu frá félaginu segir að markmiðið hafi verið að efla og þétta kerfið á þessu landssvæði, sérstaklega við þjóðveg 1. 18.3.2005 00:01
Póstmenn samþykkja kjarasamning Félagsmenn í Póstmannafélagi Íslands hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning PFÍ við Íslandspóst. Þetta kemur fram á vefsíðu BSRB. 57,7 prósent þeirra sem greiddu atkvæði um samninginn samþykktu hann en 40 prósent höfnuðu honum. Samningurinn gildir til þriggja ára eða til ársloka 2007 og nær til um 1100 félagsmanna Póstmannafélagsins. 18.3.2005 00:01
Þroskaþjálfar hafa samið Þroskaþjálfafélag Íslands skrifaði undir kjarasamninga við Launanefnd sveitarfélaga þann 25. febrúar og við Reykjavíkurborg þann 4. mars síðastliðinn. Atkvæðagreiðsla hefur farið fram og voru báðir samningarnir samþykktir með miklum meirihluta atkvæða. 98,1 prósent samþykktu samninginn við Launanefnd sveitarfélaga og 82,6 prósent samninginn við Reykjavíkurborg. 18.3.2005 00:01
Rafmagn fór eystra vegna ísingar Rafmagnsstaurar tóku að brotna hér og þar á Austurlandi vegna mikillar ísingar undir morgun og fór rafmagn víða af í fjórðungnum í kjölfar þess. Bálhvasst var á landinu í gærkvöld og voru björgunarsveitir víða um land kallaðar út. 18.3.2005 00:01
Taka Brown fram yfir frumvarp Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, mælti í gær fyrir fjárlagafrumvarpi bresku ríkisstjórnarinnar. Grannt var fylgst með enda segja stjórnmálaskýrendur víst að þar hafi næsti forsætisráðherra látið til sín heyra. 18.3.2005 00:01
Seldu Íran og Kína stýriflaugar Úkraínumenn hafa viðurkennt að hafa selt tólf stýriflaugar til Írans og sex til Kína, samkvæmt fréttum <em>Financial Times</em>. Töluverður þrýstingur var á Úkraínustjórn að greina frá sölunni, en stýriflaugarnar voru seldar árið 2001. Ekki fylgdu þó kjarnaoddar með í kaupunum en stýriflaugarnar sem um ræðir geta borið kjarnorkusprengjur. 18.3.2005 00:01
Engar bætur fyrir varðhaldsvist Hæstiréttur sýknaði í gær íslenska ríkið af skaðabótakröfum manns sem sat saklaus í gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði, en hann var grunaður um að eiga þátt í innflutningi á fíkniefnum. Maðurinn krafðist skaðabóta eftir að ríkissaksóknari tilkynnti honum að mál á hendur honum hefði verið fellt niður. 18.3.2005 00:01
Meirihluti vill sameina bæi Talsverður meirihluti almennings er hlynntur sameiningu sveitarfélaga, samkvæmt könnun sem IMG Gallup gerði fyrir félagsmálaráðuneytið. 66 prósent eru hlynnt eða mjög hlynnt sameiningu, ríflega 22 prósent eru andvíg og 11 prósent eru óákveðin. Athygli verkur að stuðningur við sameiningu er afgerandi meiri meðal fólks í þeim sveitarfélögum sem nýlega hafa verið sameinuð öðrum. 18.3.2005 00:01
Tvö og hálft ár fyrir ýmis brot Hæstiréttur dæmdi mann í gær í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir rán, akstur án ökuréttinda, ölvunarakstur og fíkniefnabrot og lengdi þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um hálft ár. Maðurinn framdi ránið vopnaður barefli í verslun 10-11 við Barónsstíg í byrjun febrúar í fyrra. 18.3.2005 00:01
Nýta sjávarfang til lyfjagerðar Stefnt er að því að hefja byggingu á lyfjaverksmiðju á Húsavík. Norskt fyrirtæki stendur á bak við verkið en til stendur að unnin verði efni til lyfjagerðar úr sjávarfangi. 18.3.2005 00:01