Allra kvenna elst 19. mars 2005 00:01
Hún situr þögul í fallegri stofu, með silfurgráar fléttur langt niður eftir bakinu. Fléttur sem hún fléttar sjálf á hverjum degi, áður en hún hefur fótaferð og silast um á göngugrindinni, eins og hún orðar það sjálf og kímir. "Mér líður ágætlega og spái lítið í að vera orðin elst Íslendinga. Það er ágætt að vera aldraður þegar maður er sæmilega frískur," segir Guðfinna Einarsdóttir, sem í dag er 108 ára og 46 daga og slær þar með Íslandsmet Halldóru heitinnar Bjarnadóttur sem varð 108 ára og 45 daga gömul. Guðfinna fæddist 2. febrúar árið 1897 í Ásgarði í Dalasýslu og bjó í Dalasýslu allt þar til hún flutti til Reykjavíkur árið 1970. "Ég hef alltaf kunnað vel við mig í borginni og hefur liðið vel hjá Jóhönnu dóttur minni. Ég var lánsöm að verða barns auðið, fjölskylda skiptir máli í lífinu. Mig hefur ekki langað á elliheimili, en held að Íslendingar hljóti að hugsa vel um gamla fólkið sitt." Hún segir dagana líða bæði hratt og hægt. "Ég nenni ekkert orðið að gera nema að hlusta á útvarpið. Gæti prjónað en nenni því ekki enda blind á vinstra auga. Ég sef vel, en fæ stundum pirring í fæturna og bið þá Jóhönnu að bera á fæturna smyrsl til að róa þá." Guðfinna hafði talsvert af skáldum að segja í heimasveitinni í gamla daga, en þeir Steinn Steinarr, Stefán frá Hvítárdal og Jóhannes úr Kötlum voru allir listamenn úr sömu sýslu. "Jú, ég þekkti til þeirra allra, en sjálf var ég hrifnust af tónlist. Pabbi söng mikið og bróðir minn spilaði á orgel. Svo hef ég yndi af gestakomum," segir þessi elsta heiðurskona Íslands, sem ætlar ekki að gera sér dagamun í tilefni dagsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira