Fleiri fréttir

Átök sjíta og súnníta á Indlandi

Til átaka kom á milli sjíta og súnníta í héraðinu Uttar Pradesh í norðurhluta Indlands í dag með þeim afleiðingum að þrír létust og 13 særðust. Deilurnar milli trúarhópanna snerust um það hvaða leið ganga á vegum sjítanna ætti að fara, en þeir halda um Ashura-trúarhátíðina hátíðlega um þessar mundir eins og sjítar í öðrum löndum.

Fleiri finnast látnir í Bangladess

Nú hafa 74 fundist látnir og rúmlega 120 er enn saknað eftir að áætlunarferja með um 200 manns sökk á fljótinu Buriganga í suðurhluta Bangladess í dag. Ferjan var á leiðinni frá borginni Dhaka þegar hún lenti óveðri með þeim með afleiðingum að henni hvolfdi og í kjölfarið sökk hún.

Fíll í dýragarði drepur mann

Starfsmaður í dýragarðinum í Vínarborg í Austurríki lést í dag eftir að fíll í garðinum stakk hann á hol. Starfsmaðurinn var að sprauta vatni á fílinn þegar hann trylltist og rak aðra skögultönnina í gegnum maga mannsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dýr í garðinum verður manni að bana því fyrir þremur árum réðst jagúar á starfsmann og drap hann frammi fyrir gestum í garðinum.

Sagðir ræða um frið

Bandarískir erindrekar og yfirmenn í leyniþjónustu Bandaríkjanna eiga í leynilegum viðræðum við uppreisnarmenn súnníta í Írak til þess að reyna að binda enda á árásir þeirra í landinu. Frá þessu greinir tímaritið Time í dag og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum í Washington og Írak.

Manntjón í snjóflóðum á Indlandi

Mikið fannfergi í Kasmír-héraði á Indlandi hefur kostað 21 mann lífið og 28 er saknað, en þar hafa snjóflóð fallið á afskekkt þorp. Ekki hefur snjóað jafnmikið í héraðinu í nær tvo áratugi og hafa margir bæir í Himalajadalnum verið einangraðir í þrjá daga þar sem vegir eru lokaðir og víða er rafmagns- og símasambandslaust.

Grunuðum ræningjum sleppt

Karlmönnunnum tveimur sem lögregla handtók á miðnætti, grunaða um vopnað lyfjarán í Árbæjarapóteki í gær, hefur verið sleppt. Mennirnir, sem báðir hafa komið við sögu lögreglu áður, voru handteknir í heimahúsi og voru yfirheyrðir í dag en sleppt að þeim loknum og er málið er enn í rannsókn.

Ísraelar hyggjast lengja múrinn

Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti að lengja enn frekar aðskilnaðarmúr sinn á Vestubakkanum til þess að innlima Gush Etzion landnemabyggðirnar inn í Ísraelsríki. Þetta gerði hún um leið og ákveðið var að flytja gyðinga frá öllum landnemabyggðum á Gaza-svæðinu og litlum hluta byggða á Vesturbakkanum.

Dræm þátttaka í þjóðaratkvæði

Þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu á Spáni um stjórnarskrá Evrópusambandsins virðist ætla að verða mjög dræm en samkvæmt Reuter-fréttastofunni hafði tæpur þriðjungur kosningabærra manna, 32,5 prósent, nýtt sér atkvæðisrétt sinn nú klukkan fimm.

12 ára í níu ára fangelsi

Tólf ára drengur í Ohio, Bryan Christopher Sturm, var á laugardag dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að hafa myrt bæði frænku sína og ömmu. </font />

Vilja yfirráð í Asíu

Japanar eru eingöngu í samkrulli við Bandaríkjamenn með það að markmiði að ráða ríkjum í Asíu um alla framtíð að mati ríkisdagblaðs Norður-Kóreu sem vísar alfarið á bug að þörf sé á viðræðum um vopnaeign landsins.

Á reki í gúmbát í sjö vikur

Ástralska strandgæslan skýrði frá því um helgina að tekist hefði að bjarga þremur mönnum sem höfðu verið á reki í opnum gúmmíbát í alls sjö vikur.

Gyðingar yfirgefa Gaza í júlí

Ríkisstjórn Ísraels samþykkti á fundi í gær áætlun Ariels Sharon um brottflutning hermanna og gyðinga frá Gazasvæðinu og Vesturbakkanum. Brottflutningur mun hefjast í júlí næstkomandi

Óttast árásir á hjálparstarfsmenn

Allir þeir erlendu hjálparstarfsmenn sem að störfum eru í Indónesíu til aðstoðar þeim er urðu hvað verst úti eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi eru í alvarlegri hættu því líklegt er að íslamskir ofsatrúarmenn séu að skipuleggja hryðjuverkaárás á þá fljótlega.

Sprenging í kannabisinnflutningi

Mikil sprenging hefur orðið í innflutningi á kannabisefnum á Bretlandseyjum. Að sögn breskra dagblaða er ástæðan sú að lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum settu kókaín og heróín sem algjör forgangsmál í byrjun síðasta árs.

Ábyrgð hjá fleirum á markaðnum

Fasteignaheildsalar, auðvelt aðgengi að lánum fyrir almenning og lóðaskortur eru helstu ástæður stórhækkunar á fasteignaverði á suðvesturhorninu. </font /></b />

Vann 25 milljónir

Vinningurinn í Lottóinu á laugardaginn síðasta var fimmfaldur.

Tveir yfirheyrðir um rán og sleppt

Tveggja sem rændu Árbæjarapótek klæddir samfestingum og með grímu er enn leitað. Tveir menn um tvítugt sem handteknir voru í íbúð í austurhluta Reykjavíkurborgar um miðnætti aðfaranótt sunnudags var sleppt um miðjan dag í gær.

Lögreglufréttir

Innbrot í Sandgerði Þremur myndavélum, vídeóupptökuvél, sérríflösku og peningaveski var stolið úr húsi við Klapparstíg í Sandgerði að morgni sunnudags.

Slasast eftir ofsahraðakstur

Karlmaður um þrítugt var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala-háskólasjúkrahúss eftir bílveltu innanbæjar í Þorlákshöfn. Hann er ekki í lífshættu að sögn vakthafandi lækni.

Læknar sviptir án kæru

243 kærur og kvartanir bárust til Landlæknisembættisins á síðasta ári. Þá voru tveir læknar sviptir lækningaleyfi, en ekki vegna einstakra mistaka. </font /></b />

Páfi ávarpaði lýðinn í dag

Jóhannes Páll páfi annar virtist við ágæta heilsu þegar hann ávarpaði trúaða í dag í annað sinn eftir að hann útskrifaðist af sjúkrahúsi fyrir tíu dögum. Páfinn, sem er orðinn 84 ára, hélt stutta ræðu en talaði skýrri röddu. Hann þjáist af Parkinsonsveiki og er slæmur í mjöðm og hnjám. Hann var lagður inn á sjúkrahús vegna öndunarerfiðleika fyrir nokkrum vikum.

Ernu farnast vel

Frelsun Ernu tókst framar björtustu vonum. Össunni var sleppt við Álftavatn í gær og svo var fylgst með henni gegnum útvarpssendi. Hún var tiltölulega fljót að átta sig í náttúrunni og flaug svo styrkum vængjatökum út í Arnarhólma sem er gamalt arnarvígi.

Yfirlýsingar skaða Landsvirkjun

Yfirlýsingar iðnaðarráðherra um einkavæðingu Landsvirkjunar skaða fyrirtækið og grafa undan lánstrausti þess að mati Álfheiðar Ingadóttur, stjórnarmanns í Landsvirkjun. Borgin geti ekki verið áfram í ábyrgð fyrir sextíu milljörðum króna verði fyrirtækið einkavætt. Það rýri verðmæti fyrirtækisins að missa þessar ábyrgðir.

Vonar að börn sjá ekki myndbandið

Móðir ungs manns sem lést eftir líkamsárás í Hafnarstræti segist ekki skilja hvers vegna fólk dreifi myndum af árásinni á Netinu. Hún vonar að börn sjái ekki þessar myndir.

Líkur á samþykkt stjórnarskrár

Spánverjar greiddu í dag atkvæði um nýja stjórnarskrá Evrópusambandsins. Kosningaþátttaka var dræm en kannanir benda til að stjórnarskráin verði samþykkt.

Herteknum svæðum skilað

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fyrirskipaði í dag að landnemabyggðum gyðinga á Gaza-svæðinu og á fjórum stöðum á Vesturbakkanum yrði lokað. Það yrði í fyrsta sinn í sögu Ísraels sem hertekin svæði Palestínumanna yrðu yfirgefin.

Stjórnarskrá samþykkt á Spáni

Yfirgnæfandi meirihluti Spánverja samþykkti stjórnarskrá Evrópusambandsins í kosningum sem fram fóru í landinu í gær samkvæmt útgönguspám.

Haraldur hárfagri til Noregs

Haraldur hárfagri og Gyða kona hans eru í Garðabæ en fara fljótlega til Noregs í góðra vina hópi. Ný útflutningsgrein er að verða til.

Eldur í skipinu Valur

Eldur kom upp við stakkageymslu á millidekki í skipinu Vali GK-185 í Sandgerðishöfn upp úr klukkan átta í gærkvöldi.

Nýtt þorp á Reykjanesi

Þorp hefur risið á Reykjanesi í tengslum við nýja virkjun Hitaveitu Suðurnesja. Þar búa um 40 manns að staðaldri en verða um 300 í sumar þegar framkvæmdir standa sem hæst.

Heimurinn gleymi ekki fórnarlömbum

Það er mikilvægt að heimurinn gleymi ekki fórnarlömbum hamfaranna í Suðaustur-Asíu og aðstoði þau áfram við að koma lífi sínu á réttan kjöl, segja tveir fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna sem eru í heimsókn á flóðasvæðunum.

Krefjast milljónatuga bóta

Eigendur tveggja jarða í Reyðarfirði krefjast hárra bóta fyrir það land sem fer undir Fljótsdalslínur 3 og 4. Iðnaðarráðuneytið hefur heimilað eignarnám þriggja jarða. Sextán landeigendur höfðu áður samþykkt boðnar bótafjárhæðir.

Einn fórst í bílsprengjutilræði

Einn meðlimur íröksku öryggissveitanna fórst í morgun þegar bílsprengja sprakk í Bakúba-borg í norðurhluta Íraks. Tveir særðust. Árásir sem þessar eru orðnar nær daglegt brauð í Írak. Öfgahópar súnnímúslima í Írak réðu að minnsta kosti 27 sjítamúslima af dögum í gær og árásir súnníta fara vaxandi dag frá degi.

Clinton og Bush eldri safna fé

Tveir fyrrverandi forsetar Bandaríkjanna heimsóttu hamfarasvæðin í Suðaustur-Asíu í dag. Bill Clinton og George Bush eldri táruðust næstum þegar þeir ræddu við fréttamenn um taílensk börn sem misstu foreldra sína í flóðunum. Bush yngri valdi þá til að stýra fjáröflun til hjálpar fórnarlömbum hamfaranna.

Ákærur á hendur England mildaðar

Ákærur á hendur bandaríska hermanninum Lynndie England hafa verið mildaðar, en hún er sökuð um misþyrmingar á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu. Í stað þess að eiga yfir höfði sér tæplega fjörtíu ára fangelsisvist eru það rúm sextán ár nú. Saksóknari útskýrði ekki hvers vegna ákærunni hefði verið breytt.

Flest skíðasvæði landsins opin

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið í dag til klukkan sex. Allar lyftur eru opnar og skíðafæri er ágætt og unnið harðfenni. Það er léttskýjað og suðvestan einn til þrír metrar á sekúndu. 5 og 10 kílómetra gönguskíðabrautir eru tilbúnar.

Snarpur skjálfti við Indónesíu

Yfirborð sjávar við Indónesíu hækkaði um fjóra metra þegar jarðskjálfti varð á hafsvæðinu þar í kring í morgun. Skjálftinn mældist 6,5 á Richter.

Gjafir ungmenna ekki skertar

Gjafir, sem ungmenni eru hvött til að gefa Hjálparstarfi kirkjunnar með nýrri söfnunarleið, það er að segja með SMS-skilaboðum úr farsíma, verða ekki skertar framvegis þótt símafyrirtækin ætli sér áfram sinn skerf.

Áframhaldandi árásir súnníta

Öfgahópar súnnímúslima í Írak halda áfram að ráða sjítamúslima af dögum og eru árásir sem snerta óbreytta borgara orðnar nær daglegt brauð í landinu.

Hyggilegra að fresta undirskrift

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri - grænna, segir á heimasíðu sinni að borgaryfirvöld hefðu betur frestað því að skrifa undir viljayfirlýsingu um sölu á hlut sínum í Landsvirkjun til ríkisins þar sem fyrirhuguð einkavæðing fyrirtækisins stríði gegn stefnu Vinstri - grænna. Hætta sé því á að R-listinn í Reykjavík gangi sundraður til þessara verka.

Stefnir í skattastríð í Danmörku

Skattastríð er í uppsiglingu innan nýju dönsku ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í gær. Stuðningsflokkur stjórnarflokkanna tveggja ætlar ekki að styðja þá í að hrinda í framkvæmd einu af fyrstu kosningaloforðunum.

Eignarnámsbeiðni Landsnets hafnað

Iðnaðarráðuneytið hefur hafnað beiðni Landsnets um eignarnám á tveim jörðum í Reyðarfirði, Seljateigshjáleigu og Áreyjum, vegna lagningar Fljótsdalslína 3 og 4 milli Kárahnjúkavirkjunar og álvers Fjarðaráls í Reyðarfirði. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Vopnað rán í Árbæjarapóteki

Vopnað rán var framið í Árbæjarapóteki um hádegisbil í dag. Tveir hettuklæddir menn í samfestingum vopnaðir hnífum komu inn í apótekið og ógnuðu starfsfólki án þess þó að meiða neinn. Þeir létu greipar sópa í lyfjaskápum apóteksins en komust ekki í peningakassa.

Ellefu látnir í árásum í Írak

Að minnsta kosti 11 hafa látist og 90 særst í sjálfsmorðsárásum og sprengingum í hverfum sjíta í Bagdad í dag, en Ashura-trúarhátíð þeirra nær hámarki í dag. Maður á mótorhjóli sprengdi sjálfan sig í loft upp við jarðarför í mosku sjíta í morgun með þeim afleiðingum að að fjórir létust og tæplega 39 særðust.

Sjá næstu 50 fréttir