Innlent

Haraldur hárfagri til Noregs

Haraldur hárfagri og Gyða kona hans eru í Garðabæ en fara fljótlega til Noregs í góðra vina hópi. Ný útflutningsgrein er að verða til. Það virðist vera fjölmennara inni í aðstöðu Sögusafnsins í Garðabæ en er í raun og veru því þar eru brúður eða gínur sem eru vægast sagt líflegar. Fyrir utan starfsmenn voru þarna Stórhaugsfurstinn svokallaði sem fannst heygður í Noregi, Haraldur hárfagri og Gyða kona hans. Þau eru að fara til Noregs, en nýtt safn sem á að opna þar í vor pantaði myndirnar. Ernst J. Backman, auglýsingateiknari og annar stofnenda Sögusafnsins, segir að þetta sé fyrsta stóra pöntunin sem leikmyndagerð Sögusafnsins fái og verið sé að gera sex gínur sem verði á safni við Aðalsnes í Noregi. En það eru ekki bara Norðmenn sem hafa áhuga á að fá gínur frá Sögusafninu heldur hafa fyrirspurnir komið víðar að. Ernst segir að átta manna sendinefnd frá Færeyjum hafi heimsótt hann um daginn og kynnt sér gínugerðina. Þá hafi Þjóðverjar einnig sýnt þessu áhuga þannig að áhuginn fari vaxandi. Ernst segir að þarna sé um að ræða fólk sem komið hafi á Sögusafnið og tekið ákvörðun eftir það. Þetta verkefni er styrkt af Nýsköpunarsjóði og er þróunarverkefni en svo virðist sem á laggirnar sé komin ný útflutningsgrein. Ernst segir að miðað við móttökurnar sem verkefnið hafi fengið eigi gínugerðin framtíð fyrir sér. Það megi segja að þetta sé vandað og flott, íslenskt handverk. Ernst segir aðferðina sem Sögusafnið notar frábrugðna þeim sem notuð er á hefðbundnum vaxmyndasöfnum. Þetta er tímafrekt enda tekur 3 til 4 vikur að setja bara hárið á gínurnar. Allar eru þær gerðar eftir fyrirmyndum og er auðvelt að ruglast á þeim og lifandi fólki. Ernst segir að honum bregði sjálfum reglulega þegar hann komi inn í hönnunarherbergið. Safnið þar sem myndin af Haraldi hárfagra, hinum gamla konungi Noregs, verður til sýnis opnar Haraldur núverandi Noregskonungur í maí.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×