Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reynt verði að frysta loðnu Töpuð útflutningsverðmæti vegna stórbrunans í Grindavík í gær geta numið allt að sjö hundruð milljónum króna. Forstjóri Samherja segir að reynt verði að halda áfram að frysta loðnu í Grindavík. 10.2.2005 00:01
Pressuball á morgun Blaðamannaverðlaunin 2004 verða afhent á Pressuballi Blaðamannafélags Íslands á Hótel Borg á morgun. Verðlaununum var komið á fót á síðasta ári og um leið var lífi blásið í Pressuböllin, sem þóttu með fínustu böllum bæjarins í eina tíð. Heilsteikt nautalund verður hryggjarstykkið í þrírétta málsverði. Hljómsveitin Vax leikur fyrir dansi. </font /></b /> 10.2.2005 00:01
Egill, Erlingur og Eyjólfur veikir Fyrirtækið Eldaskálinn er lokað vegna veikinda starfsmanna. Eigandinn vonar að viðskiptavinir fyrirgefi honum þó hann þurfi að loka. 10.2.2005 00:01
Fólk lætur lengja sig á Akureyri Fólki sem finnst eitthvað vanta uppá líkamshæð sína hefur hingað til þurft að sætta sig við fötlun sína. Nú eru stundaðar umfangsmiklar lengingar á fólki á Akureyri. 10.2.2005 00:01
Sagði vinnubrögð niðurlægjandi Formanni Vinstri - grænna var brugðið yfir viðtali við forsætisráðherra á Stöð tvö í gær og segir að vinnubrögðin, sem hann lýsti varðandi stuðninginn við innrásina í Írak, hafi verið niðurlægjandi fyrir íslensku þjóðina. Stjórnarliðar hvöttu stjórnarandstöðuna til að snúa sér að öðru. 10.2.2005 00:01
Vandamál vegna kynhegðunar "Þetta er raunverulegt vandamál sem þarf að fjalla um í samfélaginu," segir Sigurður Guðmundsson landlæknir. Mikil aukning hefur orðið á því að ungar stúlkur leiti sér hjálpar vegna sárinda í endaþarmi -- afleiðingu endurtekinna endaþarmsmaka. 10.2.2005 00:01
Rumsfeld reiddist vegna þotna Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, brást reiður við og fannst hann sniðgenginn þegar George Bush Bandaríkjaforseti og Colin Powell, þáverandi utanríkisráðherra, ákváðu að fresta því að kalla orrustuþoturnar fjórar heim frá Keflavíkurflugvelli. „Þetta var dramatískt,“ segir forsætisráðherra. 10.2.2005 00:01
25-30 milljarðar vegna geðsjúkdóma Kostnaður vestrænna samfélaga vegna geðsjúkdóma nemur um þremur til fjórum prósentum af þjóðarframleiðslu samkvæmt útreikningum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar. Þetta jafngildir því að kostnaður íslenska þjóðfélagsins vegna þeirra sé um 25 til 30 milljarðar á ári. Einungis brot af þessu er kostnaður vegna meðferðar eða endurhæfingar. 10.2.2005 00:01
Óvenju snjóþungur vetur Óvenju mikið hefur snjóað það sem af er vetri. Aðeins draumkonur geta sagt til um hvernig veturinn verður þegar allt kemur til alls, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. 10.2.2005 00:01
Sjómenn gæðavottaðir Stýrimanna- og vélskólinn hefur sótt um gæðastaðalinn ISO-9001. Fáist vottun útskrifast nemendur með alþjóðaskírteini. 10.2.2005 00:01
Talstöðin FM 90,9 í loftið Ný útvarpsstöð, Talstöðin, hefur útsendingar í dag. Útvarpsstöðin sendir út á tíðininni FM 90,9. 10.2.2005 00:01
Sjálfstæðismenn vilja úttekt Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja að Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar geri úttekt á þeim stjórnkerfisbreytingum sem staðið hafa yfir frá því sumarið árið 2002. Tillaga þessa efnis var lögð fyrir borgarráð í gær en afgreiðslu hennar frestað. 10.2.2005 00:01
Laug um dauða eiginmannsins Fjölmiðlar í Colorado í Bandaríkjunum sögðu nýlega sorglega sögu af 24 ára gamalli konu sem lýsti því á harmrænan hátt hvernig eiginmaður hennar lést í átökum í Írak. 10.2.2005 00:01
Sýknaður af ákæru um kynferðisbrot Hæstiréttur hefur sýknað karlmann af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á árunum 1990 til 1994 en þá var stúlkan 9 til 13 ára gömul. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt manninn í tveggja ára fangelsi og til að greiða 800 þúsund krónur í bætur. 10.2.2005 00:01
Embættismanni rænt í Írak Uppreisnarmenn í Írak rændu í morgun hátt settum embættismanni innan bráðabirgðastjórnarinnar í Írak. Maðurinn var numinn á brott úr bíl sínum í suðurhluta Baghdad. Þá bárust fregnir af því að fréttamaður sjónvarpsstöðvar, sem Bandaríkjamenn fjármagna í Írak, hefði verið myrtur í borginni Basra í morgun. 9.2.2005 00:01
Níu látnir í kolanámuslysi Níu manns hafa fundist látnir og sautján er saknað eftir sprengingu í kolanámu í Rússlandi í morgun. Þrjátíu manns voru inni í námunni til þess að kanna orsök reyks sem frá henni barst. Fjórir sluppu með minni háttar meiðsl. 9.2.2005 00:01
Lykketoft segir af sér Mogens Lykketoft, oddviti stjórnarandstöðunnar í Danmörku, hefur sagt af sér í kjölfar kosninganna í Danmörku í gær, en þar hélt ríkisstjórn Anders Foghs Rasmussens, formanns Venstre, velli. Undir stjórn Lykketofts fengu Jafnaðarmenn eitt minnsta fylgi í áratugi. Lykketoft sagði afsögn hafa verið sinn eina kost í stöðunni. 9.2.2005 00:01
Óvíst með frekari leit Ekkert hefur verið ákveðið um frekari leit að skipverjunum tveimur sem enn er saknað eftir að Jökulfellið sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld. Leitarskilyrði á svæðinu eru slæm vegna veðurs og verður staðan metin aftur þegar líður á daginn. 9.2.2005 00:01
Rán í öðrum söluturni Enn var framið vopnað rán í söluturni seint í gærkvöldi og nú í söluturni í Mjódd. Ræninginn var hettuklæddur með sólgleraugu og lét skína í einhvers konar barefli. Að kröfu hans lét afgreiðslumaðurinn hann hafa reiðufé og hvarf hann á braut með það. Hann er ófundinn. Í fyrrakvöld var framið svipað rán í söluturni í Grafarholti og er ræninginn þaðan líka ófundinn. 9.2.2005 00:01
Enn finnast fórnarlömb í Indónesíu Meira en þúsund lík hafa fundist að undanförnu í Indónesíu í kjölfar hamfaranna á annan í jólum, að sögn þarlendra stjórnvalda. Þar með er staðfest að meira en 115 þúsund manns hafi látist í landinu í kjölfar hamfaranna. Á bilinu 26 til 140 þúsund manna er enn saknað, en ekki er tímabært að bæta þeirri tölu við tölu látinna, að sögn embættismanna sem eru við störf á hamfarasvæðunum. 9.2.2005 00:01
Sluppu vel í hörðum árekstri Ökumenn jeppa og fólksbíls sluppu lítið meiddir þegar bílar þeirra skullu mjög harkalega saman á Norðurlandsvegi í Austur-Húnavatnssýslu í gær. Báðir bílarnir eru taldir gjörónýtir og þykir mildi hversu vel ökumennirnir sluppu, en þeir voru einir í bílum sínum. Áreksturinn varð með þeim hætti að öðrum bílnum var ekið inn á þjóðveginn í veg fyrir hinn bílinn sem þar var á fullri ferð. 9.2.2005 00:01
Gríðarleg flóð í Venesúela Neyðarástand ríkir nú víða í Venesúela vegna gríðarlegra flóða undanfarna daga. Að minnsta kosti fimm manns hafa látið lífið og þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna. Í höfuðborginni Karakas ríkir nú neyðarástand og þar hafa hús jafnast við jörðu og umferð legið niðri eftir að ár flæddu yfir bakka sína í kjölfar mikilla rigninga. 9.2.2005 00:01
Tíu slasast í sprengingu í Madríd Að minnsta kosti tíu manns hafa verið fluttir á sjúkrahús í kjölfar sprengingar sem varð nærri ráðstefnuhöll í Madríd í morgun. Enginn slasaðist þó alvarlega að sögn spænskra fjölmiðla. Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, hafa lýst yfir ábyrgð á tilræðinu og vöruðu talsmenn samtakanna baskneskt dagblað við hættunni skömmu áður en sprengjan sprakk. 9.2.2005 00:01
Loðnan fundin undan Ingólfshöfða Loðnuskipin hafa nú fundið loðnu vestan við Ingólfshöfða eftir að hún hvarf af Austfjarðamiðum í brælunni á mánudag. Þónokkur skip eru þar nú en veður er ekki ákjósanlegt og torfurnar ekki stórar. Það er helst að afli fáist alveg upp undir fjörunni. 9.2.2005 00:01
Tölvuflögur notar gegn flogveiki Taugasérfræðingar í Bandaríkjunum kunna að hafa tekið fyrsta skrefið að meðhöndlun flogaveiki án lyfja. <em>The Economist</em> greinir frá niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem bendir til þess að með því að græða tölvuflögur í taugafrumur sé hægt að hafa hemil á ofvirkni þeirra, sem er orsök flogaveikiskasta. 9.2.2005 00:01
Íranar leita liðsinnis Japana Utanríkisráðherra Írans hefur beðið Japana um að miðla málum milli Bandaríkjanna og Írans vegna kjarnorkuáætlunar hinna síðarnefndu. Evrópusambandið hefur undanfarin misseri reynt að ná samningum við Íran um að hætta að framleiða kjarnorkueldsneyti sem hægt er að nota til þess að framleiða kjarnorkusprengjur. 9.2.2005 00:01
Meira en þrjátíu sárir í Madríd Nú er ljóst að yfir þrjátíu manns særðust í mikilli sprengingu sem varð á torgi nærri ráðstefnuhöll í Madríd í morgun. Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, hafa lýst yfir ábyrgð á tilræðinu og vöruðu talsmenn samtakanna baskneskt dagblað við hættunni skömmu áður en sprengjan sprakk. 9.2.2005 00:01
70 prósent telja Ingibjörgu hæfari Sjötíu prósent samfylkingarfólks telja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur hæfari en Össur Skarphéðinsson, til að gegna formennsku í Samfylkingunni. Sextíu prósent sjálfstæðismanna telja Össur hins vegar hæfari til starfans. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Mannlíf í janúar og birtist í nýjasta tölublaði þess. 9.2.2005 00:01
Segir frágang farms ófullnægjandi Allar líkur benda til þess að frágangur á farmi Jökulfells, sem hvolfdi og sökk norðaustur af Færeyjum í fyrrakvöld, hafi verið ófullnægjandi þannig að farmurinn hafi kastast út í aðra síðu skipsins og valdið slysinu. 9.2.2005 00:01
Rice hótar Írönum refsiaðgerðum Utanríkisráðherra Írans hefur beðið Japana um að miðla málum milli Bandaríkjanna og Írans vegna kjarnorkuáætlunar hins síðarnefnda. Condoleezza Rice hótar Írönum refsiaðgerðum. 9.2.2005 00:01
Kvartettinn hittist í Lundúnum Miðausturlandakvartettinn svokallaði mun hittast í Lundúnum fyrsta mars næstkomandi til að ræða friðarferlið í Miðausturlöndum og efnahagsaðstoð við Palestínumenn. 9.2.2005 00:01
Sakfelldur fyrir nefbrot Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann á tvítugsaldri í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að nefbrjóta sautján ára dreng fyrir utan Menntaskólann við Hamrahlíð í apríl síðastliðnum. Þá er honum einnig gert að greiða fórnarlambinu hundrað þúsund krónur í skaðabætur. 9.2.2005 00:01
Sjálfstæðismenn með langmest fylgi Sjálfstæðismenn bera höfuð og herðar yfir aðra flokka á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun Frjálsrar verslunar. Framsóknarflokkurinn mælist í annað sinn á einni viku með um fimm prósenta fylgi í höfuðborginni. 9.2.2005 00:01
Vírusar leggist á síma og bílvélar Vírusar verða ekki bundnir við tölvur í framtíðinni, heldur gætu þeir einnig átt eftir að leggjast á síma og bílvélar svo fátt eitt sé nefnt. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skýrslu sem öryggisdeild IBM gerði og verður birt í dag. 9.2.2005 00:01
Færði kærustunni pítsu með þyrlu Það er afskaplega rómantískt að nota þyrlu til þess að tryggja að pítsan sem maður er að færa kærustunni sé nógu heit. Og því skyldu menn gera veður út af því? 9.2.2005 00:01
Skilur ákvörðun Lykketofts Formaður danska Jafnaðarmannaflokksins, Mogens Lykketoft, ætlar að hætta í kjölfar slæmrar útkomu flokksins í þingkosningunum í gær. Forsætisráðherrann hrósar sigri og segist skilja ákvörðun höfuðandstæðings síns. Ríkisstjórn Dana bætir við sig einu þingsæti. 9.2.2005 00:01
Einkaviðtal við Halldór í kvöld Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra talar út um Íraksmálið í einkaviðtali sem hann féllst á að veita fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Í viðtalinu, sem verður sýnt í fréttatíma Stöðvar 2 og í Íslandi í dag í kvöld, skýrir hann í fyrsta sinn frá því hvað nákvæmlega varð til þess að nafn Íslands lenti á lista þeirra þjóða sem studdu innrás Breta og Bandaríkjamanna í Írak. 9.2.2005 00:01
Markið sett á 2015 Hægt er að ná svokölluðum þróunarmarkmiðum árþúsundsins árið 2015 með samhentu átaki alþjóðasamfélagsins. Þetta var meðal niðurstaðna fundar um sjálfbæra þróun sem haldinn var í Delí á Indlandi dagana 3. til 6. febrúar. 9.2.2005 00:01
Forleggjarar gefa milljón Félag íslenskra bókaútgefenda hefur gefið eina milljón króna til hjálparstarfs ABC barnahjálpar vegna hamfaranna við Indlandshaf. Sigurður Svavarsson formaður félagsins og Benedikt Kristjánsson framkvæmdastjóri afhentu Guðrúnu Margréti Pálsdóttur, frumkvöðli ABC barnahjálpar, upphæðina í janúar. 9.2.2005 00:01
Japanar styðja ESB í Íransmáli Japanar styðja Evrópusambandið í viðleitni sinni við að fá Írana til að hætta að framleiða kjarnorkueldsneyti. Þetta sagði utanríkisráðherra Japans eftir fund með írönskum starfsbróður sínum í Japan í dag. Viðræður Írana og Evrópusambandsins um kjarnorkumál Írans hófust á ný í gær en í nóvember síðastliðnum féllust Íranar á að hætta tímabundið framleiðslu kjarnorkueldsneytis. 9.2.2005 00:01
Egypskur sendiherra til Ísraels Egyptar hyggjast senda aftur sendiherra til Ísraels innan tíu daga en þeir hafa ekki haft sendiherra í landinu frá því að uppreisn Palestínumanna gegn Ísraelum hófst fyrir fjórum árum. Þetta undirstrikar enn frekar vænlegri friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs, en eins og kunnugt er boðuðu bæði leiðtogar Ísraela og Palestínumanna vopnhlé á fundi í Egyptalandi í gær. 9.2.2005 00:01
Farmurinn líklega orsökin "Rannsókn stendur yfir og á meðan svo er vil ég ekki fara út í getgátur um hvað fór úrskeiðis þegar slysið átti sér stað," segir Claus Thornberg, framkvæmdastjóri Tesma-skipafélagsins, en það félag sá um rekstur og mönnun MS Jökulfells, sem sökk á mánudagskvöldið með þeim afleiðingum að fjórir létust og tveir eru taldir af. 9.2.2005 00:01
Ólga meðal almennings í Bretlandi Methagnaður hjá olíufélögunum Shell og BP í Bretlandi hefur valdið mikilli ólgu meðal þarlendra neytenda sem þykir sýnt að gríðarlegur hagnaðurinn sé bein afleiðing hárrar álagningar fyrirtækjanna á bensín og olíur. 9.2.2005 00:01
Brýn verkefni víðar en á Reykjanes "Réttlætingin fyrir því að frekari tvöföldun Reykjanesbrautarinnar var ákveðin þrátt fyrir að annars staðar sé umferð meiri og þyngri er fyrst og fremst vegna öryggisþátta," segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Ákveðið hefur verið að bjóða það verk út í vor meðan vegir á borð við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg bíða seinni tíma. 9.2.2005 00:01
Samkomulag um verð á hjartalyfi Samkomulag hefur náðst milli lyfjaverðsnefndar og lyfjafyrirtækisins Actavis um verðlagningu á nýju hjartalyfi sem kemur á markað innan skamms. 9.2.2005 00:01