Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðhækkanir komu á óvart Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að fullyrt hafi verið á þingi að raforkuverð myndi ekki hækka svo nokkru næmi. Nú sé annað að koma í ljós. Þingmaður Frjálslyndra segir hækkanir allt að 75 prósent. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Vísað úr landi vegna aldurs Jórdaninn Said Hasan uppfyllti ekki skilyrði til að fá dvalarleyfi hér á landi, að sögn Hildar Dungal, setts forstjóra Útlendingastofnunar. Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir að vísa honum úr landi. Maðurinn á að auki barn hér á landi. 26.1.2005 00:01
Fasteignaverð hækkar áfram Þess má vænta að fasteignaverð eigi eftir að hækka nokkru meira á næstunni samkvæmt endurskoðaðri efnahagsspá fjármálaráðuneytisins fyrir árin 2005 til 2010. Búist er við því að verðið hækki þar til að framboð á nýju húsnæði jafnast á við eftirspurn. 26.1.2005 00:01
Vill skatt til baráttu gegn alnæmi Jacques Chirac, forseti Frakklands, lagði í dag til að lagður yrði á alþjóðlegur skattur til þess að berjast gegn alnæmi í heiminum. Slíkan skatt væri til dæmis hægt að leggja á milliríkjaviðskipti og einnig á eldsneyti fyrir skip og flugvélar og á flugfarseðla. Franski forsetinn sagði að með slíkum skatti væri hægt að öngla saman tíu milljörðum dollara á ári. 26.1.2005 00:01
Geti sett á sölubann á veiðibráð Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur kynnt í ríkisstjórn frumvarp til laga um breytingu á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu er sagt að í frumvarpinu sé lagt til að umhverfisráðherra verði heimilt að takmarka veiðar við ákveðna daga og ákveðinn tíma sólarhringsins og að ráðherra geti við tilteknar aðstæður bannað sölu á veiðibráð. 26.1.2005 00:01
Fólk ætti að fá að brugga Leyfa verður fólki að framleiða léttvín og líkjöra, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á þingfundi Alþingis í gær. 26.1.2005 00:01
Mengunarkvótar skapa skriffinsku Ekki er ástæða til að setja mengunarkvóta á losunarheimildir fyrirtækja á innanlandsmarkaði, sagði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra á þingfundi Alþingis í gær. 26.1.2005 00:01
Starfsfólki Landmælinga fækkar Landmælingum Íslands verður úthlutað fjórtán milljónum til uppfærslu stafrænna landakorta sinna. Það er sextán milljónum minna en í fyrra. 26.1.2005 00:01
Nægir kvótar til að menga Lítil hætta er á að farið verði fram úr heimildum Kyoto-bókunarinnar á losun gróðurhúsalofttegunda á fyrsta skuldbindingartímabilinu frá 2008 til 2012. 26.1.2005 00:01
Eiturefni utan við hús í Síðumúla Kútar og gámar með hættulegum og eldfimum efnum standa fyrir utan fyrirtæki við Síðumúla 35 þar sem hver sem er getur nálgast þau. Nágrannar hafa ítrekað kvartað og bæði Eldvarnareftirlitið og heilbrigðisyfirvöld hafa haft afskipti af eigendunum. 26.1.2005 00:01
Rannsókn við Kárahnjúka enn ólokið Lögreglurannsókn á banaslysi í mars í fyrra við Kárahnjúka er enn ólokið. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir með réttarstöðu grunaðra. Lögregluyfirvöld fyrir austan sendu málið til ríkissaksóknara í október en fengu það endursent þar sem ýmsum spurningum þótti ósvarað. 26.1.2005 00:01
Á listann fyrir ríkisstjórnarfund Ísland var komið á lista hinna viljugu áður en ríkisstjórnarfundur var haldinn þann 18. mars 2003. Forsætisráðherra sagði í yfirlýsingu á dögunum að ákvörðun um að styðja innrásina hefði verið tekin í kjölfar fundarins. 26.1.2005 00:01
Kannast ekki við kostnaðaráætlun Verktakafyrirtækið NCC þvær hendur sínar af Árna Johnsen og fullyrðingum hans um að fyrirtækið telji kostnað við jarðgöng til Vestmannaeyja aðeins helminginn af því sem Vegagerðin áætlaði. 26.1.2005 00:01
Árásahrina í Írak í dag Allt logaði í Írak í dag. Hrina árása kostaði ekki færri en sjö lífið og fjöldi særðist. Áætlað er að stíðsreksturinn kosti Bandaríkjamenn um hálfan milljarð á klukkustund. 26.1.2005 00:01
Leyniþjónusta á Íslandi Björn Bjarnason dómsmálaráðherra staðfesti á Alþingi í dag að öryggislögreglu- og leyniþjónustustarfsemi færi fram á vegum Ríkislögreglustjóra og sagði að umfang hennar hefði aukist í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum þann 11. september 2001. 26.1.2005 00:01
Börn í Asíu þurfa mikla hjálp Yngstu fórnarlömb hamfaranna í Asíu þurfa mikla hjálp, bæði andlega og líkamlega. Áhersla er lögð á að koma þeim til hjálpar en að gleyma ekki tugmilljónum annarra barna um allan heim, sem búa við bág kjör. Í 33 löndum er líf milljóna barna í bráðri hættu. 26.1.2005 00:01
Brennisteinn fluttur út á 14. öld Umfangsmikil vinnsla á brennisteini var stunduð að Gásum í Eyjafirði á 14. öld. Þetta sýna fornleifarannsóknir sem þar standa yfir og eru þetta því elstu minjar um iðnað á Íslandi. Brennisteinninn var einkum seldur í byssupúður og virðast Íslendingar því snemma hafa tengst hergagnaframleiðslu. 26.1.2005 00:01
Verkamenn borga fyrir yfirvinnu Jón Ólafur Jónsson og Jóhann Valgeir Jónsson, fyrrum starfsmenn Impregilo við Kárahnjúkavirkjun, fullyrða að yfirmaður hjá Impregilo hafi krafið þá um greiðslu fyrir að fá að vinna um helgar. 26.1.2005 00:01
Enn tíu ár til stefnu Tíu ár munu líða áður en Tyrkland er í stakk búið að gerast aðili að Evrópusambandinu, sagði Ali Babacan, efnahagsmálaráðherra tyrknesku ríkisstjórnarinnar, á fundi um efnahagsmál sem haldinn er í Davos í Sviss. 26.1.2005 00:01
Tekinn með hass í Svíþjóð 24 ára Íslendingur var tekinn með tvö kíló af hassi í Malmö í Svíþjóð á þriðjudaginn í síðustu viku. Hann var að koma frá Danmörku þegar hann var tekinn með hassið falið í bíl sínum. Í kjölfarið var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald og er hann enn í haldi sænsku lögreglunnar. 26.1.2005 00:01
Vill hefja viðræður 2007 "Það verður mjög mikilvægt að hefja viðræður um samskiptin við Evrópusambandið árið 2007," sagði Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu. Hann sagði aðild að Evrópusambandinu mikilvægan valkost fyrir land sitt en hélt opnum þeim möguleika að samskiptin yrðu með öðrum hætti. 26.1.2005 00:01
Mannskæðasta þyrsluslysið í Írak 31 bandarískur hermaður lét lífið þegar stór flutningaþyrla hrapaði í slæmu veðri í vesturhluta Íraks. Slysið er mannskæðasta þyrluslys Bandaríkjahers frá því að innrásin í Írak hófst fyrir tæpum tveimur árum. 26.1.2005 00:01
Rice orðin utanríkisráðherra Öldungadeild Bandaríkjaþings staðfesti í gær skipun Condoleezza Rice í embætti utanríkisráðherra. 85 þingmenn greiddu atkvæði með skipun Rice en þrettán á móti. Það hefur ekki gerst frá lokum seinni heimsstyrjaldar að svo margir þingmenn hafi greitt atkvæði gegn skipan utanríkisráðherra. 26.1.2005 00:01
Vill útrýma klámiðnaðinum Matt Bartle, þingmaður repúblikana á ríkisþingi Missouri, hefur lagt fram frumvarp sem á að ganga af klámiðnaðinum dauðum í ríkinu. Áður hefur ríkisþingið samþykkt bann við veggspjöldum sem gera út á kynþokka og því að stúlkur undir nítján ára aldri vinni við nektardans. 26.1.2005 00:01
Tímamótajafnréttisdómur Nýjasti dómur Hæstaréttar í máli gegn Akureyrarbæ er varðar mismunun vegna kynbundins launamunar markar tímamót. Þetta segir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður. 26.1.2005 00:01
Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingu var verið að vísa til. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Maður í sjálfsvígshug banaði tíu Tíu létu lífið þegar maður í sjálfsvígshugleiðingum ók í veg fyrir lest í úthverfi Los Angeles. Sjálfur hætti maðurinn hins vegar við sjálfsvígið á síðustu stundu, fór út úr bílnum rétt áður en lestin lenti á honum og slapp því lifandi. 26.1.2005 00:01
NCC neitar kostnaðaráætlun Øyvind Kvaal, talsmaður sænska verktakafyrirtækisins NCC, sagði í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi að ekkert væri til í því að fyrirtækið hefði gert kostnaðaráætlun fyrir gerð jarðganga til Vestmannaeyja. Hópur Eyjamanna með Árna Johnsen í fararbroddi kynnti slíka kostnaðaráætlun í nafni fyrirtækisins í síðustu viku. 26.1.2005 00:01
Dómur áhrif á gerð kjarasamninga Hæstaréttarlögmaður segir að nýjasti Akureyrardómurinn gæti haft áhrif á gerð kjarasamninga háskólastétta. Hefðbundnar kvennastéttir gætu leitað eftir því að bera sig saman við hefðbundin karlastörf líkt og gert var í dómnum. Framkvæmdastjóri BHM vill hærri laun í kvennastéttum. </font /></b /> 26.1.2005 00:01
Snjóflóðahættan enn til staðar Viðbúnaðarstig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á sunnanverðum Vestfjörðum en á norðanverðum fjörðunum hefur því verið aflétt. Fjögur íbúðarhús voru rýmd á Bíldudal í gærkvöldi vegna snjóflóðahættu en þar hafa hús ekki áður verið rýmd í vetur. 25.1.2005 00:01
300 milljarðar $ vegna hryðjuverka Bandaríkjastjórn ætlar að fara fram á áttatíu milljarða dollara aukafjárveitingu vegna stríðsrekstursins í Írak og Afganistan. Heimildarmenn innan Bandaríkjaþings segja að þetta verði tilkynnt í dag. Verði beiðnin samþykkt hafa nærri 300 milljarðar bandaríkjadala farið í baráttuna gegn hryðjuverkum síðan 11. september árið 2001. 25.1.2005 00:01
Landsfundur Samfylkingar í vor Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 22.-23. maí í vor. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í gærkvöldi eftir umræður um að halda fundinn jafnvel fyrr. Í upphafi fundarins verður tilkynnt um hver verður formaður flokksins, að undangenginni póstkosningu, en varaformaður verður kjörinn á fundinum sjálfum. 25.1.2005 00:01
Bílvelta við Blönduós Það þykir með ólíkindum að ökumaður, sem var einn í bíl sínum, skuli hafa sloppið nær ómeiddur þegar bíll hans valt út af þjóðveginum skammt frá Blönduósi í gærkvöldi og valt margar veltur niður bratta brekku. Bíllinn er gjörónýtur en ökumaður fékk að fara heim að lokinni skoðun á heilsugæslustöðinni. 25.1.2005 00:01
Niðurrif hafið á Gasa Starfsmenn hins opinbera í Palestínu hófu í morgun niðurrif á ólöglegum byggingum við Gasa. Meira en 200 vopnaðir lögreglumenn voru til taks þegar litlum búðum, kaffihúsum og söluturnum var rutt úr vegi með jarðýtum en ekki hefur enn komið til kasta þeirra þar sem afar lítið hefur borið á mótmælum. 25.1.2005 00:01
Aurskriða féll á Snæfellsnesi Aurskriða féll á þjóðveginn um Búlandstind á milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar í gær. Í sama mund var bíll að fara um veginn og lenti hann á steini í skriðunni og skemmdist eitthvað. Ökumanni var að vonum brugðið en sakaði ekki. 25.1.2005 00:01
Fjöldi vopna haldlagður Bandarískir hermenn hafa undanfarna daga lagt hald á töluvert magn vopna sem talið er að hafi átt að fara til hryðjuverkamanna í aðdraganda kosninganna í Írak sem fara fram eftir fimm daga. Vopnin fundust í leit á heimilum meintra uppreisnarmanna í Bagdad. 25.1.2005 00:01
Vannýtt vegna fjárskorts Hafró Nýjasta og fullkomnasta hafrannsóknaskipið, Árni Friðriksson, verður aðeins hundrað og sextíu daga á sjó við hafrannsóknir á þessu ári vegna fjárskorts Hafrannsóknastofnunar. Þetta verður um það bil hundrað dögum styttra úthald en gert var ráð fyrir þegar skipið var smíðað á sínum tíma. 25.1.2005 00:01
Handtekin fyrir bílainnbrot Lögreglumenn handtóku tvær unglingsstúlkur og einn pilt í Bakkahverfi í Reykjavík í nótt, grunuð um innbrot í bíla. Í fórum þeirra fundust meðal annars fimm farsímar og þrír geislaspilarar úr bílum. Við nánari athugun kom í ljós að þau höfðu brotist inn í fjóra bíla og látið greipar sópa. 25.1.2005 00:01
Innilokað vegna snjóskafla Nærri tveggja metra háir snjóskaflar eru víða í Massachusetts í Bandaríkjunum eftir gríðarlega ofankomu um helgina og er fjöldi fólks hreinlega lokaður inni á heimilum sínum af þeim sökum. Gríðarleg hríð var alla helgina á austurströnd Bandaríkjanna, einkum í nágrenni Boston, og hafa um tuttugu dauðsföll verið rakin beint til óveðursins. 25.1.2005 00:01
Ófært frá Reykhólum og í Flókalund Flughált er í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu að sögn Vegagerðarinnar. Ófært er frá Reykhólum og í Flókalund vegna snjóflóða og flughált er á Breiðdalsheiði. Öxi er ófær. 25.1.2005 00:01
Þrír Svíar drukknuðu við Taíland Minnst sjö manns, þar af þrír sænskir ferðamenn, létu lífið þegar skúta sökk úti fyrir Koh Samui, vinsælum ferðamannastað í Taílandi, í nótt. Mikill fjöldi manna var að skemmta sér um borð í skútunni þegar slysið varð og var enginn í björgunarvesti. 25.1.2005 00:01
Skipulagðar misþyrmingar í Írak Núverandi stjórnvöld í Írak stunda skipulagðar misþyrmingar á föngum sem sitja í fangelsum landsins og ólöglegar handtökur og pyntingar eru reglan fremur en undantekningin. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights Watch sem hafa tekið viðtöl við níutíu írakska fanga á síðustu tveimur árum. 25.1.2005 00:01
Unnið að Vatnajökulsþjóðgarði Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að unnið verði að undirbúningi að því að fella landssvæði norðan Vatnajökuls inn í framtíðar Vatnajökulsþjóðgarð í samráði við heimamenn og aðra hagsmunaaðila. Áætlað er að þjóðgarðurinnn geti skilað allt að 1,5 milljarði króna í auknum gjaldeyristekjum á hverju ári. 25.1.2005 00:01
Andlátið rakið til vanrækslu Maður á níræðisaldri, sem lést á vistheimilinu Hrafnistu eftir höfuðhögg á síðasta ári, fékk ekki þá meðferð og umönnun sem ætlast er af heilbrigðisstarfsfólki. Þetta kemur fram í álit Landlæknis. 25.1.2005 00:01
280 þúsund að líkindum látin Áætlaður fjöldi þeirra sem létust í hamförunum við Indlandshaf á annan dag jóla hefur nú enn hækkað. Nú er talið að alls 280 þúsund manns hafi misst lífið. 25.1.2005 00:01