Andlátið rakið til vanrækslu 25. janúar 2005 00:01
Maður á níræðisaldri, sem lést á vistheimilinu Hrafnistu eftir höfuðhögg á síðasta ári, fékk ekki þá meðferð og umönnun sem ætlast er af heilbrigðisstarfsfólki. Þetta kemur fram í álit Landlæknis. Maðurinn, sem var 85 ára gamall, lést í nóvember á síðasta ári. Níu klukkutímar liðu frá þvi maðurinn féll í gólfið í borðsal Hrafnistu þar til hann var fluttur á sjúkrahús. Þar kom í ljós að hann var höfuðkúpubrotinn. Blætt hafði inn á heila hans og hann var orðinn lamaður í helmingi líkamans. Sex dögum síðar lést maðurinn, án þess að koma til meðvitundar. Lækninga- og hjúkrunarforstjórar Hrafnistu hafa sagt mistök hafa átt sér stað bæði við ákvarðanatöku og í vinnulagi starfsfólks og því er Landlæknir sammála. Embættið telur að maðurinn hafi ekki fengið þá meðferð sem ætlast mátti til af starfsfólki Hrafnistu og ýmsar athugasemdir eru gerðar við það hvernig staðið var að verki. Ekki var farið að reglum, eftirlit með manninum var ónægjanlegt, skrásetning ófullnægjandi og gerðar er athugasemdir við að aðstandendur mannsins hafi ekki verið látnir vita af aðstæðum hans. Landlæknir telur hins vegar ekki að það hefði bjargað lífi gamla mannsins þótt hann hefði verið fluttur á heilaskurðdeild eins og rétt hefði verið að gera. Aðstendendur hins látna geta notað álit Landlæknis ef þeir hyggjast höfða mál á hendur stofnuninni en lát mannsins er einnig í lögreglurannsókn.
Fréttir Innlent Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira