Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dýrkeypt epli Bresk kona var í vikunni dæmd til að greiða rúmar sjö þúsund krónur í sekt fyrir að hafa borðað epli undir stýri. Málið væri svo sem ekki í frásögur færandi ef ekki væri fyrir hið umfangsmikla eftirlit sem að lokum leiddi til þess að upp komst um glæpinn. 25.1.2005 00:01
Niðurstöðurnar liggi fyrir í haust Þingmenn Suðurkjördæmis samþykktu á fundi sínum á dögunum að tryggja 20 milljónir króna til jarðfræðirannsókna hvort mögulegt sé að gera jarðgöng milli Vestmannaeyja og Landeyja. Rannsóknirnar skulu fara fram sem fyrst og niðurstöður þeirra liggi fyrir ekki síðar en næsta haust. Í tilkynningu segir að niðurstöður þeirra skuli vera eign íslenska ríkisins. 25.1.2005 00:01
Sami herafli í Írak út næsta ár Bandaríski herinn mun halda núverandi liðsafla sínum í Írak út árið 2006 hið minnsta. Þetta er haft eftir háttsettum foringja innnan hersins í <em>Washington Post</em> í dag. 120 þúsund bandarískir hermenn eru nú í Írak auk 30 þúsund hermanna af öðru þjóðerni. 25.1.2005 00:01
Dómur fyrir kannabisræktun Fertugur karlmaður var í dag dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að rækta og hafa í sinni vörslu um 180 kannabisplöntur í kartöflugeymslu í Ártúnsbrekku. Á heimili mannsins fundust tólf plöntur til viðbótar, fræ og lauf. 25.1.2005 00:01
300 manns tróðust undir Talið er að 300 manns, þeirra á meðal konur og börn, hafi látið lífið í troðningi á Vestur-Indlandi í dag. Um 150 þúsund pílagrímar voru í árlegri heimsókn í musteri þegar eldur braust út í nágrenni þess. 25.1.2005 00:01
Bush vill 5000 milljarða aukalega Bandaríkjaforseti vill fá aukafjárveitingu upp á 5000 milljarða króna vegna stríðsins gegn hryðjuverkum. Meirihluti fjárveitingarinnar mun renna til heraflans í Írak en kostnaður vegna stríðsins er löngu farinn fram úr áætlun </font /></b /> 25.1.2005 00:01
Margoft bent á loftlagshlýnun "Fræðimenn hafa bent á það lengi að þegar hlýnun kemst á ákveðið stig mun það kerfi halda áfram óháð aðgerðum og það er því svo sem ekkert nýtt í þessu hvað það varðar," segir Helgi Jensson, forstöðumaður á framkvæmda- og eftirlitssviði Umhverfisstofnunar, um fréttir af nýútkominni skýrslu um loftslagshlýnun og afleiðingar þeirra. 25.1.2005 00:01
Ellefu lögreglumenn féllu í Írak Að minnsta kosti ellefu lögreglumenn létu lífið í skærum í austurhluta Bagdad í gær og andspyrnumenn réðu íraskan dómara af dögum. Átök brutust út í austurhluta borgarinnar þegar lögreglumenn skutu að mönnum sem dreifðu bæklingum til fólks þar sem það var hvatt til að kjósa ekki í kosningunum á sunnudag. 25.1.2005 00:01
Flughált í Árnessýslu Flughált er í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu og á Breiðdalsheiði. Ófært er um Öxi. Að öðru leyti er sæmileg færð á vegum en víða eru hálkublettir. 25.1.2005 00:01
Fangar reyndu fjöldasjálfsmorð Að minnsta kosti 23 fangar í fangabúðunum við Guantanamo-flóa reyndu að svipta sig lífi á vikutímabili í ágúst árið 2003. Sjálfsmorðstilraunirnar eru sagðar hafa verið skipulagðar aðgerðir og ætlaðar til að koma fangavörðum og yfirvöldum í uppnám. 25.1.2005 00:01
Lögreglurannsókn dauðsfalls í bið Lögreglan í Reykjavík bíður nú formlegrar álitsgerðar frá Landlæknisembættinu um dauðsfall aldraðs manns á Hrafnistu, áður en tekin verður afstaða til þess hvort lögreglurannsókn fer fram, að sögn Egils Stephensen saksóknara hjá embætti lögreglustjórans í Reykjavík. 25.1.2005 00:01
ESB stofnar mannréttindastofu Evrópusambandið ætlar að setja á laggirnar sérstaka mannréttindastofu eftir tvö ár. Varaforseti sambandsins, Franco Frattini, segir þetta rökrétta þróun í ljósi þess að brýnna sé en áður að tryggja grundvallarmannréttindi innan sambandsins. 25.1.2005 00:01
Meðalaldur frumbyrja hækkar Meðalaldur mæðra hefur farið stighækkandi á síðustu áratugum, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Hann hefur hækkað um 2,2 ár á tímabilinu 1963-2003, miðað við öll fædd börn, en um 4,2 ár sé eingöngu miðað við frumburði. 25.1.2005 00:01
Síðasti gyðingurinn í Afganistan Einn gyðingur býr í Afganistan eftir að sá næstsíðasti bar beinin fyrir viku síðan, áttræður að aldri. Báðir mennirnir höfðust við í eina samkomuhúsi gyðinga í landinu og elduðu saman grátt silfur um árabil. 25.1.2005 00:01
Ríkið sýknað af kröfu Ástþórs Íslenska ríkið var sýknað af tveggja milljóna króna skaðabótakröfu Ástþórs Magnússonar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ástþór höfðaði málið vegna handtöku árið 2002. Hann var handtekinn vegna töluvpósts sem sendur var víða í nafni Friðar 2000 en þar sagði frá rökstuddum grun um að ráðist yrði gegn íslenskri flugvél. 25.1.2005 00:01
Páfinn líti í eigin barm Jose Bono, varnarmálaráðherra Spánar, vísar á bug gagnrýni Jóhannesar Páls páfa sem hefur mótmælt lögleiðingu fóstureyðinga og því að samkynhneigðir fái að ganga í hjónaband. Ráðherrann segir að afstaða kirkjunnar gangi í sumum tilfellum gegn boðskap Jesú Krists. 25.1.2005 00:01
Fjöldi ábendinga um svart vinnuafl Samiðn hefur borist "aragrúi ábendinga og upplýsinga um ólöglegt vinnuafl" í byggingariðnaði hér, að sögn formanns sambandsins. Lögreglan í Reykjavík og Útlendingastofnun hafa leitar eftir samstarfi við Samiðn um málið. </font /></b /> 25.1.2005 00:01
Leyfi fyrir 24 Kínverja Impregilo fær á morgun atvinnuleyfi fyrir 24 Kínverja samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Alls verður gefið út 61 nýtt atvinnuleyfi fyrir íslensk og erlend fyrirtæki sem starfa á íslenskum vinnumarkaði. 25.1.2005 00:01
Atvinnuleysi mun minnka Fjármálaráðuneytið spáir að atvinnuleysi minnki í rúmlega 2% á komandi misserum og að hagvöxtur verði 5,5%, eða 0,5% meira en spáð var í haust. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu ráðuneytisins, „Úr þjóðarbúskapnum“, sem birt var í dag. 25.1.2005 00:01
Ráðuneyti bíður svars frá Kópavogi "Umsögn borgarstjóra við beiðninni var send Kópavogsbæ og yfirvöldum þar gefið tækifæri til að bregðast við röksemdum borgarinnar. Við búmst við svörum innan tveggja vikna og tökum efnislega afstöðu í framhaldinu," segir Pétur Örn Sigurðsson, lögfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, um lögnámsbeiðni Kópavogsbæjar á landi í Vatnsendakrika. 25.1.2005 00:01
Kosningarnar breyta litlu Kosningarnar í Írak á sunnudag eru aðeins þær fyrstu af þremur sem eru fyrirhugaðar í landinu fyrir árslok. Ekki er talið að þær breyti miklu enda sitja þingmennirnir sem verða kosnir aðeins til bráðabirgða. 25.1.2005 00:01
Haförninn á batavegi Ungur haförn sem verið hefur í gjörgæslu Húsdýragarðsins er óðum að fá bata en hann fór úr lið eftir að hafa flogið á rafmagnslínu í Þingvallasveit. Assan er hin glæsilegasta. 25.1.2005 00:01
1500 líkum safnað daglega Tala látinna í hamförunum við Indlandshaf heldur áfram að hækka. Nú er talið að um 280 þúsund manns hafi farist. Um 1500 líkum er safnað saman á hverjum degi í Aceh-héraði. 25.1.2005 00:01
Gefur út 61 atvinnuleyfi Vinnumálastofnun gefur í dag út 61 nýtt atvinnuleyfi fyrir íslensk og erlend fyrirtæki sem starfa hér. 24 þeirra eru fyrir Kínverja Impregilo. 25.1.2005 00:01
Heilbrigðisvottorða krafist EES borgarar hafa forgang að vinnu hér, heilbrigðisvottorða verður krafist með umsókninni og reglugerð flýtt. Þannig bregst félagsmálaráðherra við gagnrýni ASÍ á Impregilo og atvinnuleyfin. </font /></b /> 25.1.2005 00:01
Máttum giftast en ekki búa saman Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, 23ja ára Jórdaníumanns, hefur kært ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Hasan úr landi og banna honum að koma aftur hingað, bæði til Útlendingaeftirlitsins og dómsmálaráðuneytisins. </font /></b /> 25.1.2005 00:01
Samkeppni um starfsfólk að aukast Björgólfur Jóhannsson, forstóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, telur að samkeppni um starfsfólk sé að aukast á svæðinu. 25.1.2005 00:01
Steypuvinna í mars eða apríl Trevor Adams, verkefnisstjóri Alcoa, býst við að steypuvinna við álverið í Reyðarfirði hefjist í mars eða apríl. 25.1.2005 00:01
Bylting á Egilsstöðum Fasteignaverð hefur snarhækkað og verðmyndunin er orðin eðlileg. Menn geta nú byggt á Austurlandi án þess að tapa. Fasteignaverðið hefur ekki enn náð toppi. </font /></b /> 25.1.2005 00:01
Pólitísk endalok Ingibjargar? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir mögulegt að hún hætti í stjórnmálum bíði hún ósigur fyrir Össuri Skarphéðinssyni í formannskosningu í Samfylkingunni. Hún segir að komið sé að hugmyndafræðilegri endurnýjun í flokknum. 25.1.2005 00:01
Þingið ítrekað samþykkt gölluð lög Eftirlaunafrumvarpið er ekki eina lagasetningin sem hefur verið samþykkt á Alþingi og reynst gölluð eftir á. Ríkisstjórnin hefur tapað þó nokkrum fjölda mála fyrir dómstólum er varða nýsamþykkt lög. Stjórnarþingmaður segir að Alþingi verði að vanda sig betur. 25.1.2005 00:01
Grafið undan embætti umboðsmanns Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnvöld og sérstaklega dómsmálaráðherra hafi með ummælum sínum grafið undan embætti Umboðsmanns Alþingis og virðingu þess. 25.1.2005 00:01
Vatnajökulsþjóðgarður undirbúinn Ríkisstjórnin samþykkti í gær að hafinn yrði undirbúningur Vatnajökulsþjóðgarðs. Stefnt er að hann nái yfir 10.600 ferkílómetra. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra segir undirbúningsvinnu hefjast strax. 25.1.2005 00:01
Grjóthörð láglaunapólitík Almennir starfsmenn Hafnarfjarðar vilja að bærinn taki upp sjálfstæða launastefnu gagnvart þeim og hætti að láta launanefnd sveitarfélaganna semja um kjör þeirra á milli. 25.1.2005 00:01
Hundruð flytja á laugaveginn Tvö byggingarfyrirtæki hafa keypt upp fjölda lóða í miðbænum. Fimmtán þúsund fermetra húsnæði rís milli Laugavegar og Hverfisgötu. Búist er við mikilli fjölgun íbúa í miðbænum. Frábær þróun, segir verslunareigandi. </font /></b /> 25.1.2005 00:01
Stjórnin grípur til aðgerða Vinnumálastofnun gaf í dag út 61 atvinnuleyfi, meðal annars til 24 Kínverja. Ríkisstjórnin ætlar að grípa til aðgerða vegna erlendra starfsmanna á vinnumarkaði í kjölfar greinargerðar ASÍ um ítalska verktakafyrirtækið Impreglio. 25.1.2005 00:01
Afhendir ekki minnisblöð Stjórnarandstaðan krafði forsætisráðherra svara við því á Alþingi í dag hvort íslensk stjórnvöld hefðu leyft aðgang að lofthelgi og flugvelli vegna innrásar í Írak, þremur vikum áður en nafn Íslands var birt á lista yfir hinar viljugu þjóðir. Utanríkisráðuneytið vill ekki veita aðgang að minnisblöðum vegna þessa þar sem um sé að ræða samskipti við erlent ríki. 25.1.2005 00:01
Fornleifafundur án fordæmis Hvers vegna var tvítug stúlka að flækjast uppi á heiði um árið 920 - með fimm hundruð dýrmætar perlur í fórum sínum? Þessu reyna fornleifafræðingar að komast að. Jarðneskar leifar stúlkunnar eru nú á Þjóðminjasafninu, ásamt perlunum, en fundur þeirra er algjört einsdæmi. 25.1.2005 00:01
50 metra há viðbygging Á næstunni hefjast framkvæmdir við að hækka Grand Hótel í Reykjavík um eina hæð - en það er aðeins byrjunin. Fimmtíu metra há viðbygging mun rísa í haust en það er um tveir þriðju af stærð Hallgrímskirkjuturns. 25.1.2005 00:01
Kókaínkafteinn slapp létt Ómar Örvarsson, stýrimaður á Hauki ÍS, var í gær dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir ræktun á 190 kannabisplöntum. Fullyrt er í dómsorði að Ómar hafi ekki áður gerst brotlegur við fíkniefnalöggjöf, jafnvel þó hann hafi verið tekinn með 14 kíló af kókaíni árið 1997. 25.1.2005 00:01
Dómsmálaráðherra skilur ekki ást <font face="Times New Roman"> Ásthildur Albertsdóttir, eiginkona Said Hasan, sem vísað var úr landi vegna aldurs um helgina, gagnrýnir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra harðlega fyrir að svipta sig öllul sig skiptir máli í lífinu. </font> 25.1.2005 00:01
Rannsókn á lokastigi Rannsókn á einu umfangsmesta fíkniefnamáli síðustu ára, sem staðið hefur yfir síðan í mars á síðasta ári, er á lokastigi að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík. 25.1.2005 00:01
Fékk sjö mánaða skilorð Skipstjórinn í ferð Hauks ÍS til Þýskalands þar sem tveir skipverjanna voru handteknir fyrir tilraun til fíkniefnasmygls var dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ræktun kannabisplantna. 25.1.2005 00:01
Fangar enn pyntaðir í Írak Saddam Hussein og samverkamenn hans hafa verið hraktir frá völdum en íraskar öryggissveitir pynta fanga sína ennþá. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights Watch, sem hafa skoðað stöðu mannréttinda í Írak. 25.1.2005 00:01
Braut gegn valdstjórninni Maður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá lögreglumann hnefahöggi í andlitið á Kaffi Austurstræti í mars í fyrra. 25.1.2005 00:01