Unnið að Vatnajökulsþjóðgarði 25. janúar 2005 00:01
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að unnið verði að undirbúningi að því að fella landssvæði norðan Vatnajökuls inn í framtíðar Vatnajökulsþjóðgarð í samráði við heimamenn og aðra hagsmunaaðila. Umhverfisráðherra er falið að vinna að framgangi málsins á grundvelli fyrirliggjandi tillagna. Svæðið norðan Vatnajökuls sem um ræðir er um 10% af stærð landsins og fjölbreytilegt að náttúru. Vegna áhrifa jökulsins og samspil elds og ísa á þessu svæði er svæðið einstakt í veröldinni og hefur meiri sérstöðu en nokkuð annað hliðstætt svæði. Svæðið nær í vestri að Tungnársvæðinu og tekur yfir Vonarskarð, Tungnafellsjökul, meginhluta Ódáðahrauns, Öskju og Dyngjufjalla, Herðubreið, Jökulsá á Fjöllum ásamt helstu þverám eins og Kreppu, Kverká, Svartá og vatnasviði öllu eins og við verður komið, Vesturöræfi, Snæfell og Eyjabakkasvæðið að austan. Svæðið fellur í dag undir stjórnsýslu sjö sveitarfélaga þ.e. Ásahrepps, Þingeyjarsveitar, Skútustaðahrepps, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps, Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps. Í nefndinni sem vann að tillögum um verndarsvæði eða þjóðgarð norðan Vatnajökuls voru alþingismennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, tilnefnd af Sjálfstæðisflokki, Magnús Stefánsson, tilnefndur af Framsóknarflokki, Steingrímur J. Sigfússon, tilnefndur af Vinstrihreyfingunni grænu framboði og Össur Skarphéðinsson, tilnefndur af Samfylkingunni, ásamt Magnúsi Jóhannessyni ráðuneytisstjóra í umhverfisráðuneytinu sem var formaður nefndarinnar. Nefndin var einhuga um tillögurnar og voru þær unnar í nánu samráði við heimamenn og hlutaðeigandi aðila. Fyrirtækið Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar lagði mat á tillögur nefndarinnar og telur að verði farið að tillögunum um þjóðgarð norðan Vatnajökuls, og í þá uppbyggingu sem lagt er til, megi gera ráð fyrir að lágmarki 1,5-2,0% aukningu ferðamanna hingað til lands en það gæti svarað til hækkunar gjaldeyristekna um 1,2-1,5 milljarða króna á ári. Þar af má ætla að um 700 milljónir komi inn á svæðið í auknum tekjum árlega.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira