Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rice viðurkennir mistök í Írak Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, viðurkenndi í gær að ríkisstjórn George Bush hefði gert ýmis mistök í Írak. Til dæmis hefði stjórnin ekki búist við að það yrði svona erfitt að koma á stöðugleika í landinu eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli. 20.1.2005 00:01
Esso og Olís taka til baka hækkun Bæði Esso og Olís hafa tekið til baka tveggja krónu hækkun á bensínlítrann frá því fyrr í vikunni en hvorki Skeljungur né Atlantsolía hækkuðu verðið í kjölfar hinna. Þessi atburðarás gefur óneitanlega vísbendingu um samkeppni. 20.1.2005 00:01
Meirihluti 1-7 ára barna fórst Svo virðist sem meirihluti barna á aldrinum 1-7 ára hafi farist þegar flóðbylgjan skall á Aceh-héraði í Indónesíu á annan í jólum. 20.1.2005 00:01
Óþreyjufullar eftir hrútnum Kindurnar í Suðurey í Vestmannaeyjum eru orðnar svo óþreyjufullar eftir að hrúturinn komi til þeirra úr landi nú á fengitímanum að þær hlaupa fram klettabrúnirnar í hvert skipti sem þær heyra í báti sigla hjá, í von um að þar sé kavalerinn um borð á leið til þeirra. 20.1.2005 00:01
Beiðni Fischers umdeild Bobby Fischer hefur póstlagt beiðni um íslenskan ríkisborgararétt. Stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu en formanni Vinstri grænna líst ekki vel á að veita Fischer ríkisborgararétt án þess að huga að fordæminu sem það skapi. Formanni Samfylkingarinnar líst hins vegar mjög vel á og segir Fischer hafa sérstöðu umfram aðra sem sækja um íslenskt ríkisfang. 20.1.2005 00:01
Eyrarrósin afhent í dag Eyrarrósin verður afhent á Bessastöðum klukkan þrjú í dag en hún er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði, „Aldrei fór ég suður“, listahátíðin „Á seyði“ á Seyðisfirði og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði eru þau þrjú verkefni sem verða sérstaklega kynnt úr hópi fjölmargra tilnefndra. 20.1.2005 00:01
Hálka víða um land Hálka er víða á Suðurlandi og á Mosfellsheiði er þæfingsfærð og skafrenningur. Þá er hálka á Vesturlandi og hálka og snjóþekja á Vestfjörðum. Á Norður- og Austurlandi er einnig víða hálka, snjóþekja, snjókoma og skafrenningur. Á Breiðdalsheiði er hálka og éljagangur og ófært er um Öxi. 20.1.2005 00:01
Amnesty skorar á Bush Amnesty International hvetur Bush Bandaríkjaforseta til að binda enda á pyntingar og fara að alþjóðalögum í áskorun sem samtökin hafa sent forsetanum. Þar segir að Bandaríkin brjóti mannréttindi á föngum sem þeir hafa í haldi vegna stríðsins gegn hryðjuverkum. 20.1.2005 00:01
Landslag á Títan líkt því íslenska Landslag á Títan, fylgitungli Satúrnusar, er um margt líkt því sem er á Íslandi - nema hvað þar er ekkert líf að finna segja vísindamenn. 20.1.2005 00:01
Maður ársins á Suðurnesjum Víkurfréttir hafa útnefnt Tómas J. Knútsson mann ársins á Suðurnesjum 2004 en hann er þekktur fyrir störf sín að umhverfismálum. Tómas er stofnandi og formaður Bláa hersins, samtaka sem berjast fyrir hreinsun og verndun umhverfisins. 20.1.2005 00:01
Sví tekinn af lífi Írakskir uppreisnarmenn segjast hafa rænt og tekið af lífi sænskan og breskan ríkisborgara í borginni Beiji í miðhluta Írak. Þeir segja að mennirnir hafi unnið fyrir vantrúaða og því hafi þeir tekið þá af lífi. 20.1.2005 00:01
786 Svía enn saknað Sænska lögreglan hefur gert nýjan lista yfir þá sem saknað er eftir hamfarirnar í Suðaustur-Asíu. 786 manns eru á listanum og hefur þeim sem saknað er þannig fækkað um rúmlega eitthundrað. Af þessum eru 400 sem lögreglan hefur ýmis konar upplýsingar um sem hægt er að nota til að bera kennsl á lík þeirra, svo sem DNA-sýni og tannlæknaskýrslur. 20.1.2005 00:01
Júsjenko heimsækir Rússland Nýkjörinn forseti Úkraínu, Viktor Júsjenko, ætlar að heimsækja Rússland strax eftir að hafa verið settur inn í embætti á sunnudag. Stjórnvöld í Rússlandi studdu keppinaut hans, Viktor Janúkovítsj, í kosningabaráttunni en Valdimír Pútín Rússlandsforseti hefur boðið Júsjenko velkominn. 20.1.2005 00:01
Garðar lætur af formennsku í ÖBÍ Emil Thóroddsen, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands, hefur tekið við formennsku af Garðari Sverrissyni sem lætur af störfum af heilsufarsástæðum. Frá þessu var gengið á fundi framkvæmdastjórnar bandalagsins í dag. 20.1.2005 00:01
Hákon Eydal fellur frá kröfunni Hákon Eydal, sem hefur viðurkennt að hafa banað barnsmóður sinni Sri Rhamawati, hefur fallið frá kröfu um nýja geðrannsókn. Við þingfestingu málsins gegn honum fyrr í mánuðinum gerði hann þessa kröfu og var milliþinghald um það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 20.1.2005 00:01
Ríflega 600 nýir ríkisborgarar Á síðasta ári var 637 útlendingum veittur íslenskur ríkisborgararéttur, að því er fram kemur hjá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. 20.1.2005 00:01
Segja ríkið hafa gefið grænt ljós Undirbúningur byggingar nýs hátæknisjúkrahúss á Landspítalasvæðinu er hafinn af fullum krafti. Formaður uppbyggingarnefndar lítur svo á að ríkið hafi gefið grænt ljós með lóðasamningum við Reykjavíkurborg og heimild til undirbúningsvinnu. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Guðni hugsaði ekki nógu vítt Framsóknarmaðurinn Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra ræðir á heimasíðu sinni um átökin varðandi Íraksmálið. Þar segir hún að ummæli Guðna Ágústssonar, varaformanns flokksins, um að tveir menn hefðu tekið ákvörðunina um stuðning við Íraksinnrásina beri vott um að hann hafi ekki hugsað nógu vítt og verið að reyna að spila frítt. 20.1.2005 00:01
Enginn hungurdauði á flóðasvæðum Enginn þeirra sem lifðu af hamfarirnar við Indlandshaf fyrir tæpum mánuði mun deyja af völdum hungurs, fullyrðir Tony Banbury, yfirmaður matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna. "Við munum koma mat til allra þeirra sem þess þarfnast," sagði hann eftir heimsókn í þorp á vesturströnd Indónesíu. 20.1.2005 00:01
Ráðherra kallar Rice fasista Ráðherra í Simbabve vísar á bug fullyrðingum Condoleezza Rice, verðandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að Simbabve sé eitt af harðstjórnarríkjum heims. "Við höfum ekki áhyggjur þegar fasistar gera svona athugasemdir," sagði Didymus Mutasa, ráðherra gegn spillingu, í viðtali við BBC. 20.1.2005 00:01
Fjölga áhlaupum í Írak Níu voru handteknir og vopn gerð upptæk í áhlaupi bandaríska hersins í írösku borginni Mosul í fyrrinótt. Bandaríski herinn hefur fjölgað áhlaupum til að handtaka andspyrnumenn sem hafa hótað ófriði í væntanlegum kosningum. Stærstu götum Bagdad hefur verið lokað eftir tíðar bílsprengjur undangengna daga. 20.1.2005 00:01
Skutu dreng til bana Þrettán ára drengur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum á Vesturbakkanum í gær eftir að hann beindi leikfangabyssu að þeim. 20.1.2005 00:01
Ísland örum skorið Tíu náttúruverndarsamtök gefa út kortið "Ísland örum skorið" sem sýnir hvaða breytingar verða á miðhálendi Íslands ef stóriðjuáform stjórnvalda ná fram að ganga. Af því tilefni verður opinn kynningarfundur á Hótel Borg klukkan 13 í dag. 20.1.2005 00:01
Zapatero vill frið við ETA Jose Zapatero, forsætisráðherra Spánar segist munu grípa minnsta tækifæri til að tryggja varanlegan frið í Baskahéruðum Spánar en aðeins með því skilyrði að ETA, aðskilnaðarhreyfing Baska, leggi niður vopnin. 20.1.2005 00:01
Vill aðra rannsókn á Kúrsk Rússneskur lögfræðingur hefur farið fram á það við Mannréttindadómstól Evrópu að slys kafbátsins Kúrsk, sem fórst árið 2000, verði rannsakað aftur þar sem fyrri rannsókn málsins hafi verið ábótavant. Rússneskir dómstólar höfnuðu því að taka málið upp aftur í desember í fyrra. 20.1.2005 00:01
Nýr formaður Öryrkjabandalagsins Emil Thóroddsen tók við formennsku í Öryrkjabandalagi Íslands í gær en Garðar Sverrisson lét af formennsku af heilsufarsástæðum. 20.1.2005 00:01
Stuðningurinn stefnubreyting Halldór Ásgrímsson hafði lýst afdráttarlausri afstöðu ríkisstjórnarinnar varðandi Írak á fundi mánuði fyrir innrás. Þar sagði hann að ef til aðgerða gegn Írak kæmi, yrðu þær einungis gerðar með samþykki öryggisráðsins. Annað kom á daginn. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Peningar og rannsóknir Samhljómur er meðal prófessoranna fjögurra sem sækjast eftir embætti rektors Háskóla Íslands. Allir leggja ríka áherslu á að fá meiri peninga til starfseminnar og vilja efla rannsóknarþátt skólans. Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, efndi til opins fundar með frambjóðendunum í gær. </font /></b /> 20.1.2005 00:01
Stjórnvöld vissu af listanum Stjórnvöld vissu þegar ákveðið var að styðja innrásina í Írak, 18. mars 2003, að með því væru Íslendingar komnir á lista yfir hinar 30 staðföstu þjóðir. Framsóknarmenn halda því fram að listinn hafi verið "síðari tíma tilbúningur". </font /></b /> 20.1.2005 00:01
VR mótmælir frumvarpi ráðherra Verslunarmannafélag Reykjavíkur mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á opnunartíma verslana, ekki síst þar sem ekki var haft samráð við stéttarfélag verslunarfólks við gerð þess. Í tilkynningu frá félaginu segir að meirihluti þátttakenda í nýlegri könnun vilji hafa takmarkanir á opnunartíma verslana. 20.1.2005 00:01
Framvísaði fölsuðu vegabréfi Tvítugur Frakki var, Í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir að framvísa fölsuðu vegabréfi við komu til landsins á aðfangadag. Vegabréfið var falsað frá grunni sem þykir sjaldséð. 20.1.2005 00:01
Með fíkniefni innvortis Íslensk kona um þrítugt var handtekin á Keflavíkurflugvelli með fíkniefni innvortis og í fórum sínum þegar hún kom til landsins á þriðjudag. Í kjölfarið var konan úrskurðuð í gæsluvarðhaldi til dagsins í dag. 20.1.2005 00:01
Gerir athugasemd við geðrannsóknin Hákon Eydal, sem varð Sri Rahmawati að bana, hefur hætt við að fara fram á að dómskvaddir matsmenn geri aðra geðrannsókn á honum en hann er að hluta til ósáttur við þá geðrannsókn sem gerð hefur verið. Milliþinghald var í málinu gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 20.1.2005 00:01
Sniffuðu kókaín á salernisvaskinum Nokkrir veitingahúsaeigendur sem Fréttablaðið ræddi við segja að ekki fari á milli mála að talsvert mikið sé notað af kókaíni samhliða skemmtanahaldi í miðborg Reykjavíkur. 20.1.2005 00:01
Reyndist einnig vera með LSD Brasilísk kona sem var handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins fyrir að reyna að smygla 850 grömmum af kókaíni var einnig með um tvö þúsund skammta af LSD. LSD-sýran var í töfluformi sem falin var í leggöngum konunnar en hún kom til landsins rétt fyrir jól. 20.1.2005 00:01
Enn ekki krafist lausnargjalds Lykilkort hins horfna auðjöfurs í Svíþjóð var í fyrrinótt notað til að komast inn á skrifstofu í fyrirtækinu hans. Enn hafa ekki borist neinar kröfur um lausnargjald. 20.1.2005 00:01
Katrín í Lýsi fær viðurkenningu Félag kvenna í atvinnurekstri veitti í dag Katrínu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Lýsis, viðurkenningu fyrir vel unnin störf en hún þykir geta orðið öðrum konum hvatning og fyrirmynd. Þetta er í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Katrín Pétursdóttir tók við Lýsi árið 1999 og hefur snúið rekstrinum til betri vegar. 20.1.2005 00:01
Þjóðlagahátíðin fékk Eyrarrósina Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður tók við Eyrarrósinni úr hendi Dorritar Moussaieff forsetafrúar í dag en hún er viðurkenning fyrir menningarvakningu á landsbyggðinni. Gunnsteinn stóð fyrir þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Auk þess að fá verðlaunagrip fær hátíðin hálfa aðra milljón króna í styrk. 20.1.2005 00:01
Árni Þór og Kristján Ra ákærðir Kristján Ragnar Kristjánsson og Árni Þór Vigfússon, kenndir við Skjá einn, hafa ásamt þremur öðrum mönnum verið ákærðir fyrir stórfelld skattalagabrot. Málið varðar vanskil á sjötta tug milljóna króna í vörslusköttum, virðisaukasköttum og staðgreiðslu. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 20.1.2005 00:01
Gæti bjargað Landsvirkjun Úrskurður Héraðsdóms um að Álverið við Reyðarfjörð þurfi að fara í nýtt umhverfismat gæti bjargað Landsvirkjun frá hárri skaðabótakröfu vegna tafa við Kárahnjúkastíflu. Úrskurðurinn gæti meira að segja orðið til þess að eigandi Álversins þyrfti að greiða Landsvirkjun en ekki öfugt. 20.1.2005 00:01
Helmingi ódýrari jarðgöng til Eyja Sænska verktakafyrirtækið NCC telur sig geta borað jarðgöng út í Vestmannaeyjar fyrir helmingi lægra verð en Vegagerðin gerði ráð fyrir. Kostnaðaráætlun NCC hljóðar upp á 14-16 milljarða króna. 20.1.2005 00:01
Bush kvikar hvergi Helgasta skylda mín er að verja Bandaríkin sagði George Bush þegar hann sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna nú síðdegis. Hann sagðist hvergi mundu kvika við þau skyldustörf. 20.1.2005 00:01
Lögreglumaður sóttur með valdi Ungur maður hefur höfðað mál gegn lögreglunni fyrir ólögmæta handtöku og skerðingu tjáningarfrelsis þegar honum var meinað að mótmæla komu forseta Kína hingað til lands. Lögreglumaður, sem handtók manninn og er sakaður um að hafa hótað honum í framhaldinu, mætti ekki fyrir dóm og var þess krafist í dag að hann yrði sóttur með lögregluvaldi. 20.1.2005 00:01
Da Vinci freskur finnast Löngu týnd vinnustofa og íbúð lista- og uppfinningamannsins Leonardos da Vincis er fundin í Flórens á Ítalíu. Þar eru meðal annars freskur eftir da Vinci sem enginn vissi að væru til. 20.1.2005 00:01
KB stefnir Mjólkurfélaginu KB banki hefur stefnt Mjólkurfélagi Reykjavíkur til að greiða hálfan milljarð króna vegna samnings sem fyrrverandi stjórnarformaður félagsins gerði við bankann vegna viðskipta með Fóðurblönduna. Mjólkurfélagið segir samninginn ólögmætan. 20.1.2005 00:01