Enn ekki krafist lausnargjalds 20. janúar 2005 00:01
Lykilkort hins horfna auðjöfurs í Svíþjóð var í fyrrinótt notað til að komast inn á skrifstofu í fyrirtækinu hans. Enn hafa ekki borist neinar kröfur um lausnargjald. Mál þetta er allt hið dularfyllsta. Fabian Bengsston er þrjátíu og tveggja ára gamall aðstoðarforstjóri í fjölskyldufyrirtækinu Siba sem er verslunarkeðja með rafmagnsvörur. Siba er með einar fimmtíu verslanir í Skandinavíu. Bengtsson hvarf á leið til vinnu sinnar í Gautaborg á mánudagsmorgun. Nokkru eftir hvarfið hafði hann samband við föður sinn um farsíma og sagði að sér hefði verið rænt. Lögreglan hóf þegar mikla leit og fann fljótlega BMW-bifreið Fabians en engar vísbendingar um hvar hann væri niðurkominn. Sænska Aftonbladet segir í dag að í fyrrinótt hafi lykilkort Fabians verið notað til þess að komast inn á skrifstofur Siba í Gautaborg. Þar liggja þó engir peningar á lausu. Aftonbladet segir að einnig hafi há upphæð verið tekin út af bankakorti hans í hraðbanka á Doktor Fries torginu í Gautaborg eftir að honum hafði verið rænt. Mest er hægt að taka út 10 þúsund sænskar krónur í einu í umræddum hraðbanka en það eru um 90 þúsund krónur íslenskar. Bengtssons er nú leitað um alla Svíþjóð en lögreglan er einnig að kanna möguleika á að hann hafi verið fluttur úr landi. Bengtsson er sagður eldklár og mikill vinnuþjarkur. Hann byrjaði á botninum í fjölskyldufyrirtækinu og vann sig upp í stól aðstoðarforstjóra. Samstarfsmenn hans segja að hann hafi verið vel að þeim frama kominn og í raun sé hann þegar orðinn aðalstjórnandi fyrirtækisins.
Erlent Fréttir Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sjá meira