Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri viðriðnir morðið á Palme Christer Petterson myrti Olof Palme en var ekki einn að verki. Þessu heldur sjónarvottur að morðinu fram. 20.12.2004 00:01
Óþekkt fyrirtæki keypti Yukos Baikal Finance Group keypti eignir rússneska olíufyrirtækisins Yukos á uppboði í gær, ekki ríkisfyrirtækið Gazprom eins og búist var við. Gazprom gerði ekki einu sinni tilboð. Baikal Finance Group er óþekkt fyrirtæki með höfuðstöðvar sínar í farsímaverslun í borginni Tver sem er um hundrað og sjötíu kílómetra frá Moskvu. 20.12.2004 00:01
Með sjúkraflugi til Reykjavíkur Fimmtán ára piltur sem var á vélsleða slasaðist alvarlega þegar þegar hann lenti í árekstri við annan vélsleða á Ólafsfjarðarvegi í gær. Hann var fyrst fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en þaðan var hann fluttur með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík í gærkvöldi. 20.12.2004 00:01
400 stöðvaðir, enginn stútur Lögreglan í Reykjavík stöðvaði u.þ.b. fjögur hundruð ökumenn upp úr miðnætti í nótt og reyndist enginn þeirra hafa bragðað áfengi. Þetta var mun betri útkoma en í fyrrinótt þegar níu ökumenn voru teknir úr umferð, grunaðir um ölvunarakstur. 20.12.2004 00:01
Repúblíkanar stígi til vinstri Eitt vakurt vinstra hopp er það sem Repúblíkanaflokkurinn þarf á að halda, að mati Arnolds Schwarzeneggers, ríkisstjóra Kaliforníu. Þannig gæti flokkurinn aukið fylgi sitt. Þetta sagði hann í viðtali við þýska dagblaðið <em>Süddeutsche Zeitung</em> um helgina. 20.12.2004 00:01
Slasaðist í umferðarslysi Kona slasaðist þegar stórum amerískum pallbíl var bakkað af fullum krafti framan á bíl sem hún var farþegi í á Akureyri í gærkvöldi. 20.12.2004 00:01
Sprengjutilræði á Hilton-hóteli Handsprengja fannst falin á Hilton-hótelinu í Jakarta í Indónesíu í morgun en sprengjusérfræðingar fjarlægðu hana áður en hún sprakk. Um helgina vöruðu talsmenn vestrænna ríkisstjórna einmitt við því að hætta væri á hryðjuverkaárásum á eitthvert Hilton-hótelana í Indónesíu um jóla og áramót. 20.12.2004 00:01
Júsjenko og Janúkovítsj mætast Úkraínsku forsetaframbjóðendurnir, Júsjenko og Janúkovítsj, munu mætast í kappræðum í sjónvarpssal í kvöld og það verður í fyrsta sinn sem andstæðingarnir hittast auglitis til auglitis frá því að læknar staðfestu að eitrað hefði verið Júsjenko. 20.12.2004 00:01
Tómatur eða séra tómatur Tómatur er ekki bara tómatur að því er virðist. Samkvæmt yfirtómatanefnd Flórída - já, hún er til - er tómatur ekki tómatur nema hann sé fallega rauður, kringlóttur og sléttur. Tómatabændur eru því ekki sammála og segja að ófríðir eða beinlínis ljótir tómatar séu líka tómatar, og séu jafnvel betri á bragðið sem hljóti að vera það sem skiptir máli. 20.12.2004 00:01
Esso hækkar dísel um eina krónu Olíufélagið Esso hefur hækkað lítrann af dísilolíu um eina krónu. Olíufélagið segir ástæðu hækkunarinnar vera hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu í síðastliðinni viku. Líterinn af díselolíu kostar nú 47,60 krónur hjá Essó. Ekki hafa borist fregnir af sambærilegum hækkunum hjá öðrum olíufélögum á höfuðborgarsvæðinu. 20.12.2004 00:01
Banna ofbeldisefni yfir jólin Mikill meirihluti Evrópubúa vill láta banna allt ofbeldisefni í sjónvarpi yfir jólin og kýs fremur að horfa á fjölskyldumyndir en íþróttaefni á þessum árstíma. Þetta kom í ljós í nýrri viðhorfskönnun sem gerð var í ellefu Evrópulöndum. 20.12.2004 00:01
Fangavörður kærður fyrir árás Fangavörður af Litla-Hrauni hefur verið kærður fyrir líkamsárás á Draugabarnum á Stokkseyri. Vitni sáu manninn í slagsmálum við ungan pilt og síðar við annan mann. 20.12.2004 00:01
Ljósin verða á um áramótin Götuljós verða ekki slökkt í Reykjavík um áramótin. Af slíku ástandi gæti skapast hætta og tími til undirbúnings þótti of skammur. 20.12.2004 00:01
Sæmundur fer líklega á morgun Bandarísk stjórnvöld hafa hvatt íslensk stjórnvöld til þess að draga til baka boðið til bandaríska skákmannsins Bobbys Fischers um dvalarleyfi á Íslandi. Sæmundur Pálsson leggur hugsanlega af stað frá Íslandi á morgun til að sækja Fischer. 20.12.2004 00:01
Sjítar vilja ekki hefnd Leiðtogar sjíta í Írak biðja fylgismenn sína um að sýna stillingu og hefna ekki sjálfsmorðsárásanna sem urðu 60 manns að bana í gær. Talið er víst að sprengjunum tveimur, sem sprungu annars vegar í Najaf og hins vegar Karbala í gær, hafi verið komið fyrir af öfgasinnuðum súnní-múslimum. 20.12.2004 00:01
Þjónustugjöld eru líka að hækka Gjöld fyrir ýmiss konar þjónustu á vegum borgarinnar hækka umtalsvert um áramót. Borgarstjóri varði hins vegar útsvarshækkun með því að álögur á fjölskyldufólk muni ekki hækka. 20.12.2004 00:01
Þrjátíu ár frá snjóflóðum Í dag eru þrjátíu ár liðin frá því að tvö snjóflóð féllu á Neskaupstað. Tólf manns fórust í flóðunum. Minningarathafnir um fórnarlömb flóðanna verða haldnar bæði í Neskaupstað og Reykjavík í dag. 20.12.2004 00:01
Ekki verið að hnýsast Nýr lyfjagagnagrunnur verður tekinn í notkun um áramót. Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að með gagnagrunninum verði unnt að hafa betra eftirlit með útgáfu lyfseðla og koma í veg fyrir misnotkun. Ekki verði þó fylgst með lyfjanotkun fólks nema sterk rök liggi að baki. 20.12.2004 00:01
Hækka áskriftargjöld Áskriftargjöld af fjölvarpinu og Stöð 2 hækka um fjögur til sex prósent frá og með 5. janúar. Pálmi Gunnarsson, markaðsstjóri Íslenska Útvarpsfélagsins segir engar kvartanir hafa borist þó að verið sé að hækka áskriftargjöld á sama tíma og margir hafi lent í vandræðum vegna nýrra myndlykla. 20.12.2004 00:01
Nær helmingur prentaður erlendis 42% íslenskra bóka eru prentaðar í útlöndum, og hefur hlutfall prentunar innanlands dregist saman milli ára um 3,4 prósentustig. Aðallega eru það barnabækur og skáldverk sem eru prentuð erlendis, og, fyrst og fremst í Danmörku og Kína. 20.12.2004 00:01
Verðið haldi áfram að hækka Íslandsbanki spáir því að fasteignaverð haldi áfram að hækka á næstu mánuðum, en það er í sögulegu hámarki nú. Bankinn telur ekki að þarna hafi verðbóla myndast sem muni springa með látum, vegna þess að ef verðið sé skoðað sem hlutfall af launum sé það ekki mikið hærra en það var á árunum 1993-95. 20.12.2004 00:01
Dæmdur fyrir að flytja inn 2 kíló 39 ára gamall karmaður, Sigurður Rúnar Gunnarsson, var í Héraðsdómi í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að flytja inn til landsins tæpt kíló af amfetamíni og tæpt kíló af kókaíni. Efnið fannst við leit á honum þegar hann kom til landsins frá Amsterdam í lok maí, og hefur hann setið í gæsluvarðhaldi síðan þá. 20.12.2004 00:01
Bátur í nauð Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir í Grindavík og Sandgerði hafa verið kallaðar út vegna báts í hafnauð út af Sandvík á Reykjanesi. Lögreglan í Keflavík hefur einnig verið kölluð út. Víkurfréttir greina frá þessu og ennfremur að lögreglan í Keflavík hafi verið kölluð út. Ekki fást nánari upplýsingar um málið að svo stöddu. 20.12.2004 00:01
Báturinn úr hættu Báturinn Sigurvin SH sem talinn var í nauðum út af Sandvík á Reykjanesi fyrir stundu er úr hættu, en hann var vélarvana í þungum sjó. Þegar björgunarskip átti tæpar fjórar sjómílur eftir ófarnar fór vél hans í gang og sigldi hann til lands. 20.12.2004 00:01
Ætla ekki að draga boðið til baka Íslensk stjórnvöld ætla ekki að fara að hvatningu bandarískra stjórnvalda um að draga til baka boðið til Bobbys Fischers um dvalarleyfi á Íslandi, en orðsending þess efnis barst í gegnum bandaríska sendiráðið á föstudag. 20.12.2004 00:01
Aukin notkun þunglyndislyfja Útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins vegna þunglyndislyfja voru 8% hærri frá janúar til nóvember í ár en á sama tímabili í fyrra. 97% kostnaðaraukans er tilkominn vegna tveggja lyfjaflokka þunglyndislyfja. 20.12.2004 00:01
Framtíð Íbúðalánasjóðs félagsleg Uppgreiðslan hjá Íbúðalánasjóði nemur um 70 milljörðum króna. Takmarkaðar upplýsingar eru um það hvernig Íbúðalánasjóður hyggst mæta þessum uppgreiðslum. </font /></b /> 20.12.2004 00:01
Samstarfsverkefni sagt gleymt Samstarfsverkefni Fjölmenntar og Geðhjálpar er "algjörlega í uppnámi," að sögn Helga Jósefssonar verkefnisstjóra. Fjármunir til vorannar eru ekki fyrir hendi og engin loforð þar um. 20.12.2004 00:01
Hluti af starfi SÁÁ í uppnámi Hluti af starfsemi SÁÁ er í uppnámi um áramót. Ljóst er að innlögnum verður fækkað, bráðaþjónustu verður hætt og ekki tekið við fleiri sjúklingum í viðhaldsmeðferð ópíumfíkla. Staðreynd, segir yfirlæknirinn á Vogi. </font /></b /> 20.12.2004 00:01
Hundruð kílóa af fölsunum Starfsmenn Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli hafa á þessu ári tekið nokkrar sendingar með nokkur hundruð kílóum af falsaðri merkjavöru, m.a. fatnaði, hljómdiskum og blekhylkjum. 20.12.2004 00:01
Grunur um undanskot eigna Uppboð á húseignunum að Brjánsstöðum gekk í gegn með eðlilegum hætti en upp kom grunur um að búið væri að selja út úr eigninni fimm smáhýsi og hugsanlega eitthvað af innbúi eða innréttingum. 20.12.2004 00:01
Óþekktir aðilar kaupa Yukos Áður óþekkt leppfyrirtæki keypti í gær meirihlutann í einu stærsta olíufyrirtæki heims, rússneska olíurisanum Yukos. Flest þykir benda til þess að rússnesk stjórnvöld séu með puttana í málinu. 20.12.2004 00:01
Bankamenn samþykkja kjarasamning Tveir þriðju hlutar bankamanna samþykktu kjarasamning við Samtök atvinnulífsins, en talningu atkvæða lauk í dag. Samningurinn nær til tæplega fjögur þúsund starfsmanna í fjármálafyrirtækjum og fyrirtækum í þeirra eigu. Samningurinn gefur tæplega 19% launahækkun á næstu fjórum árum. 20.12.2004 00:01
Tugir manna handteknir Yfirvöld í Írak hafa brugðist hart við sjálfsmorðsárásunum tveimur sem urðu sextíu manns að bana í gær. Tugir manna hafa verið handteknir og allt er gert til að reyna að koma í veg fyrir hefndarárásir. 20.12.2004 00:01
Ábyrgðin á KB-banka KB banki og LÍN undirrituðu í dag samning þess efnis að ábyrgð KB banka getur komið í stað sjálfskuldarábyrgðar einstaklings sem hefur verið skilyrði námslána hjá LÍN. Í stað þess að tilnefna ábyrgðarmann, t.d. foreldri eða skyldmenni, geta námsmenn nú samið um bankaábyrgð á námslán sín beint hjá KB banka. 20.12.2004 00:01
Látinn laus Maðurinn sem varð Ragnari Björnssyni að bana á veitingastað í Mosfellsbæ fyrr í mánuðinum, var látinn laus í dag. Hæstiréttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms úr gildi. 20.12.2004 00:01
Dvalarleyfisboðið stendur Stjórnvöld ætla ekki að verða við beiðni Bandaríkjanna um að draga til baka landvistarleyfi til handa skákmeistaranum Bobby Fischer. Hann verður ekki heldur framseldur héðan. Lögfræðingur Fischers fundar með japönsku útlendingastofnuninni í dag. 20.12.2004 00:01
Ekki herlaust land? Er hið herlausa Ísland kannski alls ekkert herlaust þegar allt kemur til alls? Þessari spurningu er velt upp í erlendum stórblöðum í dag í ítarlegri umfjöllun um íslensku friðargæslusveitina. „Skaddaðar hugsjónir Íslands," segir í fyrirsögn í stórblaðinu International Herald Tribune í dag. 20.12.2004 00:01
Fjölgun í landvinnslu Brims Starfsfólki í landvinnslu Brims á Akureyri hefur síðan í haust fjölgað um nálægt fimmtán manns, að því er fram kemur á vef útgerðarinnar. 20.12.2004 00:01
Viðbúnaðurinn vegna brunalyktar Talsmaður British Airways segir vinnureglu að viðhafa ítrustu varúðarráðstafanir þegar eitthvað bregður út af í flugi hjá félaginu og því hafi nokkur viðbúnaður verið á Heathrow-flugvelli síðasta föstudagskvöld vegna vélar sem í voru íslenskir þingmenn og ráðherra. 20.12.2004 00:01
Innflutningur bannaður frá Asíu Embætti yfirdýralæknis hefur framlengt bann við innflutningi frá Asíu vegna fuglaflensu. Bannað er að flytja til landsins lifandi fugla, frjóegg og hráar afurðir alifugla frá Kína, Taílandi, Suður-Kóreu, Malasíu, Víetnam, Japan, Kambódíu, Indónesíu, Laos, Pakistan og Hong Kong. 20.12.2004 00:01
Aukin útgjöld vegna þunglyndis Útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins vegna þunglyndislyfja hafa aukist um 8 prósent milli ára, þegar horft er til notkunarinnar frá janúar til nóvember. 20.12.2004 00:01
IE vísar á bug ásökunum Iceland Express segir yfirvöld ferðamála sjálf hafa gerst sek um að bregðast ferðaiðnaðinum með því að tefla á tæpasta vað hvað varði lögmæti fjárveitinga og vísar á bug fullyrðingum ferðamálastjóra á vef Ferðamálaráðs. 20.12.2004 00:01
Dregur úr innlendri prentun Hlutfall bókaprentunar innanlands hefur dregist saman um 3,4 prósent milli ára að því er fram kemur í könnun Bókasambands Íslands á prentun íslenskra bóka sem birtust í Bókatíðindum Félags íslenskra bókaútgefenda fyrir jólin. 20.12.2004 00:01
Þriggja og hálfs árs fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Sigurð Rúnar Gunnarsson í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl. Sigurður Rúnar var handtekinn þegar hann kom til landsins frá Amsterdam í maí. Í fórum hans fundust tæpt kíló af kókaíni og tæpt kíló af amfetamíni. 20.12.2004 00:01