Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stjórnvöld hvika hvergi Þrátt fyrir undrun og vonbrigði bandarískra stjórnvalda, munu þau íslensku standa við þá ákvörðun að veita Bobby Fischer dvalarleyfi. Davíð Oddsson, utanríkisráðherra óttast ekki að sú ákvörðun munu hafa áhrif á samskipti þjóðanni, og segist jafnframt reiðubúinn að láta á það reyna með formlegum hætti, krefjist bandarísk stjórnvöld þess að fá Fishcer framseldan. 20.12.2004 00:01
Landið minna en talið hefur verið Ísland er þrjú hundruð ferkílómetrum minna en fullyrt hefur verið, en strandlengjan er sextán hundruð kílómetrum lengri en talið var. Þar með eru kennslubækur, kort og ýmsar aðrar upplýsingar úreltar að sögn framkvæmdastjóra Loftmynda sem hafa mælt landið af mikilli nákvæmni. 20.12.2004 00:01
Hækkað á öllum vígstöðvum Þjónustugjöld hækka um áramótin í Reykjavík þrátt fyrir að Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hafi varið hækkun útsvars með því að það væri skárri leið en að hækka þjónustugjöld. Borgarstjóri segir borgarbúa borga hlutfallslega minna fyrir þjónustuna en á undanförnum árum. 20.12.2004 00:01
Verðið aldrei hærra Fasteignaverð hefur aldrei verið hærra, aldrei hafa jafn margar fasteignir skipt um eigendur og nýbyggingar spretta upp. Fátt virðist þó benda til þess að verðið lækki í bráð og sérfræðingar spá því að fasteignir geti hækkað enn frekar í verði. 20.12.2004 00:01
Sífellt grófari leikir Tölvuleikir verða sífellt grófari og brögð eru að því að foreldrar geri sér ekki grein fyrir þessu. Grófasti leikurinn á markaðnum gengur út á að fremja morð á eins hrottafenginn hátt og mögulegt er. 20.12.2004 00:01
Lítið var um áfallahjálp Þrjátíu ár eru í dag frá því að snjóflóðin féllu á Neskaupstað og tólf manns fórust. Einn þeirra sem missti ættingja í flóðunum segir áfallahjálp nauðsynlega, en lítið var um slíkt á þessum tíma. 20.12.2004 00:01
Fannst látin í höfninni Pólsk kona fannst látin í höfninni á Blönduósi í gærmorgun. Samlandar konunnar söknuðu hennar um morguninn og létu lögreglu vita. Lögreglan fann konuna síðan í höfninni rétt áður en skipulögð leit hófst. 20.12.2004 00:01
Laus úr haldi Hæstiréttur felldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Lofti Jens Magnússyni, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði úrskurðað í varðhald til 27. janúar. Loftur Jens veitti Ragnari Björnssyni hnefahögg fyrr í mánuðinum á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ með þeim afleiðingum að Ragnar lést. 20.12.2004 00:01
Flutti kókaín inn fyrir samfanga Sigurður Rúnar Gunnarsson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir innflutning á tæpu kílói af kókaíni og tæpu kílói af amfetamíni. 20.12.2004 00:01
Falsaði kaupverð Maður á sextugsaldri var í Héraðsdómi Vestfjarða dæmdur til greiða 80 þúsund krónur í sekt fyrir skjalafals og tollalagabrot. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna kemur tíu daga fangelsi hennar í stað. 20.12.2004 00:01
Hrinti konu út úr bíl á ferð Rúmlega tvítugur maður hefur í Héraðsdómi Vestfjarða verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og hótanir gegn ungri konu. Hann hristi hana, sló ítrekað í öxl hennar og hrinti henni að lokum út úr bíl á ferð í hringtorgi á Ísafirði. 20.12.2004 00:01
Ósáttir við að undankeppnina vanti Eurovisionfari án undankeppni rýrir atvinnuvettvang tónlistarmanna, segir Björn Th. Árnason, formaður Félags íslenskra hljómlistarmanna. Stöðugt hafi dregið saman hjá tónlistardeild Ríkisútvarpsins á síðustu árum. 20.12.2004 00:01
Útboðsgögnum fyrir höfnina dreift Fjórir hópar sem taka þátt í samkeppni um hönnun og rekstur ráðstefnumiðstöðva, tónlistarhúss og hótels á Austurhöfninni í Reykjavík fengu afhenta endanlega útboðslýsingu í gær. 20.12.2004 00:01
Vísað frá Færeyjum vegna fíkniefna Manni á íslensku flutningaskipi í eigu Eimskips var vísað frá Færeyjum þar sem á honum fundust fíkniefni. 20.12.2004 00:01
Eindreginn vilji stjórnvalda "Verulegur áhugi og eindreginn vilji er meðal stjórnvalda til að einfalda umsóknarferli fyrir virkjanaframkvæmdir," segir Helgi Bjarnason, skrifstofustjóri orku- og stóriðjumála. 20.12.2004 00:01
Víðtæk áhrif á Hornafirði Ráðgert er að segja upp starfsmönnum hjá Ratsjárstofnun á Stokksnesi við Hornafjörð. Þar starfa nú 12 til 13 manns en ekki liggur fyrir hvort öllum verður sagt upp. 20.12.2004 00:01
Hagsmunamál þjóðarinnar í heild Að mati Kristjáns Þórs Júlíussonar, bæjarstjóra á Akureyri, eiga landsmenn allir að vera með í ráðum varðandi framtíð Reykjavíkurflugvallar. Segir hann aðalatriðið ekki vera staðsetningu flugvallarins heldur að samgöngur til og frá höfuðborginni verði jafn greiðar og þær eru í dag. 20.12.2004 00:01
Knattspyrnuhöll á Reyðarfirði Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð eiga í viðræðum við Alcoa og Bechtel um kostnaðarþátttöku í nýju fjölnota íþróttahúsi á Reyðarfirði. Lausleg kostnaðaráætlun hljóðar upp á hálfan milljarð króna og ganga viðræðurnar út á að Alcoa og Bechtel greiði tæpar 100 milljónir króna. 20.12.2004 00:01
28 létust í umferðinni Tuttugu og átta létust í umferðarslysum á Spáni um helgina eftir því sem spænska samgönguráðuneytið skýrði frá í gær. 20.12.2004 00:01
Bush ver Rumsfeld George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kom varnarmálaráðherra sínum Donald H. Rumsfeld til varnar í gær og sagði að hann ynni mjög gott starf. "Ég þekki hjartalag Rumsfelds. 20.12.2004 00:01
Íraskir hermenn ekki tilbúnir George W. Bush, forseti Bandaríkjanna viðurkenndi í gær að íraskir hermenn væru ekki tilbúnir til þess að leysa bandarískar hersveitir í Írak af hólmi. 20.12.2004 00:01
Serbar sniðganga ráðherra Sameinuðu Þjóðirnar gagnrýndu í dag stjórn Serbíu fyrir að hvetja minnihluta Serba í Kosovo til að sniðganga stjórnkerfið í héraðinu. 20.12.2004 00:01
Sjómaður sóttur í suðurhöf Lífshættulega veikum, portúgölskum sjómanni var bjargað úr spænskum togara og fluttur í ástralskt varðskip á föstudag. Sjómaðurinn var sóttur í skipið skammt undan Suðurskautslandinu og var þegar haldið með hann áleiðis til Fremantle í Ástralíu. 20.12.2004 00:01
Rússland ekki lengur frjálst Freedom House, virt bandarísk stofnun sem fylgist með þróun pólitískra réttinda og almenningsfrelsis, tilkynnti í gær að Rússland hefði verið fellt úr flokki "frjálsra" ríkja í heiminum í ársskýrslu stofnunarinnar. 20.12.2004 00:01
Njósnað um forseta Króatíu Forsetakosningar fara fram í Króatíu í byrjun næsta árs og hljóp spenna í kosningabaráttunni áður en hún hófst þegar upp komst um að leyniþjónusta landsins hefði njósnað um Stipe Mesic, núverandi forseta. 20.12.2004 00:01
Maður féll sex metra Maður hlaut höfuðáverka eftir að hann féll um sex metra í loðnubræðslunni á Eskifirði á fimmta tímanum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur þar sem gert var að meiðslum hans. Líðan hans er sögð góð eftir atvikum og maðurinn með fullri meðvitund. 19.12.2004 00:01
Fernt á slysadeild Fernt fór á slysasdeild eftir harðan árekstur jeppa og fólksbifreiðar laust fyrir klukkan þrjú dag. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt á Suðurlandsvegi í Svínahrauni þegar þeir rákust á. 19.12.2004 00:01
Austurbyggð vaknar Bjartsýni einkennir íbúa hins nýja sveitarfélags Austurbyggðar sem varð til með sameiningu Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar fyrir rúmu ári. Sveitarstjórinn segir byggðarlagið best varðveitta leyndarmál Austurlands. Væntanleg göng milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar munu bæta búsetuskilyrðin til muna. </font /></b /> 19.12.2004 00:01
Halló Kongó Íslendingar og Vestur-Kongóbúar hafa tekið upp stjórnmálasamband en stjórnvöld í landinu hafa áhuga á þróun fiskveiða. 19.12.2004 00:01
Elsti skatturinn aflagður Alþingi setti nýlega lög sem marka að mörgu leyti tímamót í skattasögu Íslendinga því að með breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt var felldur niður eignarskattur einstaklinga og lögaðila. Síðasta álagning eignarskatts á sér því stað árið 2005 vegna eigna í árslok 2004. 19.12.2004 00:01
Bíll valt út í sjó Tveir menn sluppu ómeiddir eftir að bíll þeirra hafnaði hálfur úti í sjó eftir veltu á Skutulsfjarðarbraut hjá Tunguá á Ísafirði skömmu eftir miðnætti í nótt. Mennirnir, sem eru átján og tuttugu og eins árs gamlir, kölluðu eftir aðstoð lögreglu sem telur það mikla mildi að mennirnir hafi ekki slasast miðað við aðstæður. 19.12.2004 00:01
Erilsamt hjá lögreglunni Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni í Reykjavík, töluverð ölvun var í miðbænum og tuttugu útköll bárust vegna hávaða í heimahúsum. Tveir voru í geymslu hjá lögreglunni í morgun, einn vegna ölvunar og hinn vegna ölvunaraksturs. Tíu voru teknir fyrir ölvunarakstur en að öðru leyti var nóttin stóráfallalaus. 19.12.2004 00:01
Bush mun koma á friði George Bush segist sannfærður um að sér takist að koma á friði á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna á seinna kjörtímabili sínu sem forseti. Þetta sagði hann í viðtali við ísraelskt dagblað í gær þar sem hann lýsti því yfir að ráðamenn í Washington myndu eyða miklu púðri í að koma á friði í Mið-Austurlöndum á næstunni. 19.12.2004 00:01
Skíðasvæði víða opin Skíðasvæðið á Siglufirði verður opnað klukkan eitt og verður opið fram eftir degi. Þar er fimm stiga frost og mjög gott veður, betra en í gær. Þá verður einnig opið á skíðasvæðinu á Tindastóli í Skagafirði, á Dalvík og Ísafirði en lokað er í Bláfjöllum. 19.12.2004 00:01
170 Palestínumenn fá frelsi Ísraelsmenn samþykktu í morgun að láta 170 Palestínumenn lausa úr fangelsi eftir að Egyptar gáfu ísraelskum njósnara frelsi á dögunum, að því er ísraelsk útvarpsstöð hefur eftir ráðamönnum þar í landi. Fangarnir verða látnir lausir á næstu dögum. 19.12.2004 00:01
9% hækkun í kjölfar nýju lánanna Frá því bankarnir fóru að bjóða íbúðarlán hefur verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hækkað um tæp 9% sem er mesta hækkun á svo skömmum tíma sem orðið hefur. Þegar fasteignaverð hækkaði hvað mest í uppsveiflunni frá árinu 1999 til 2000 komst þriggja mánaða hækkun aldrei yfir rétt rúm 7%. 19.12.2004 00:01
Stjórnarmyndun enn í gangi Hörðum höndum var unnið að því í alla nótt að ná samkomulagi um myndun þjóðstjórnar í Ísrael. Enn munu samningamenn sitja við samningaborðið til að reyna að finna lausn á því hvernig breyta má lögum á þann veg að Simon Peres geti orðið aðstoðarforsætisráðherra. Takist það er búist við því að formlega verði greint frá myndun nýrrar stjórnar í dag. 19.12.2004 00:01
Óttaðist ekki um líf sitt Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður, sem var um borð í flugvél British Airways þegar öryggi í flugstjórnarklefa brann yfir á föstudag, segist ekki hafa óttast um líf sitt, enda hafi hann ekki áttað sig á alvarleika aðstæðnanna fyrr en eftir á. Auk Sigurðar Kára var fjármálaráðherra og fjórir aðrir íslenskir þingmenn um borð í vélinni. 19.12.2004 00:01
Kosningastarfsmenn drepnir í Írak Öflug bílsprenging sprakk fyrir stundu í borginni Kerbala í Írak. Í það minnsta tíu fórust. Þrír starfsmenn kjörstjórnar fyrir kosningarnar í næsta mánuði voru drepnir í Bagdad fyrr í morgun. 19.12.2004 00:01
Eignir Yukos á uppboði í dag Lykileignir rússneska olíufélagsins Yukos verða seldar á uppboði í dag - að sögn fréttaskýrenda á góðu verði, finnist rétti kaupandinn. 19.12.2004 00:01
Tíu hermenn drepnir í Nepal Uppreisnarmenn úr röðum Maoista í Nepal drápu tíu hermenn í austurhluta landsins í morgun. Ofbeldisverkum og árásum hefur mjög fjölgað í landinu að undanförnu og í það minnsta sjötíu hafa fallið undanfarna viku eða svo. 19.12.2004 00:01
Bílvelta á Suðurnesjum Bílvelta varð á Garðvegi við svokallaðan Ellustekk skömmu fyrir hádegi samkvæmt Víkurfréttum. Ökumaður bifreiðarinnar er grunaður um ölvun við akstur en hann náðist á hlaupum við innkomuna í Garðinn. Hann var fluttur til Keflavíkur til sýnatöku og skoðunar. Bifreiðin er nokkuð skemmd. 19.12.2004 00:01
Átökin í Darfur verði stöðvuð Stjórnvöld í Súdan ákváðu í dag að leggja sitt af mörkum til að stöðva átökin í Darfurhéraði og óskuðu eftir því við Sameinuðu þjóðirnar og Afríkusambandið að þau biðluðu til uppreisnarmanna að gera slíkt hið sama. Frá þessu var greint að loknum neyðarfundi sem boðað var til í dag vegna ástandsins í héraðinu. 19.12.2004 00:01
Rumsfeld undirritar öll bréf Donald Rumsfeld mun hér eftir undirrita öll samúðarbréf sem send eru ættingjum fallinna hermanna. Rumsfeld og varnarmálaráðuneytið hafa verið gagnrýnd undanfarið fyrir það virðingarleysi sem sýnt er þeim Bandaríkjamönnum sem eiga um einna sárast að binda vegna Íraksstríðsins með því að senda nánast algjörlega staðlað samúðarbréf með tölvuskrifaðri undirskrift ráðherrans. 19.12.2004 00:01
48 látnir og 10 særðir í Najaf Að minnsta kosti 48 eru látnir og 90 særðir eftir sjálfsmorðsárás í hinni heilögu borg Najaf í Írak í dag. Árásarmaðurinn ók bíl upp að strætisvagnastöð, þar sem mikill mannfjöldi var samankominn, og sprengdi sig þar í loft upp. 19.12.2004 00:01