Fleiri fréttir

Málamiðlun um nýtt háhýsi

Síðastliðinn þriðjudag samþykktu tíu bæjarfulltrúar af ellefu í bæjarstjórn Akureyrar að SS Byggir fengi að reisa sjö hæða fjölbýlishús, með 40 íbúðum fyrir aldraða, á lóð sem kennd er við húsið Baldurshaga og er á milli Glerártorgs og gamla miðbæjarins.

Óvenjutíðir stórbrunar

Eftir fremur rólega tíð hjá slökkviliðum landsins fyrstu átta mánuði ársins hefur fjöldi bruna orðið í landinu síðan í september. Sumir þeirra hafa verið ansi stórir. Bruninn í Hringrás í Klettagörðum er einhver mesti bruni sem orðið hefur síðustu ár eða jafnvel áratugi.

Tíundi hver í óhollustu

Um sextíu prósent landsmanna telja sig borða hollan mat samkvæmt skoðanakönnun Neytendasamtakanna. Ellefu prósent segjast borða óhollan mat.

Framlög til ferðamála lækka mikið

Fjárveitingar til markaðsverkefna í ferðaþjónustu verða 150 milljónir samkvæmt fjárlögum. Það er 170 milljónum króna lægri upphæð en veitt var í verkefnið á þessu ári. Lækkunin nemur þeirri upphæð sem varið var í samstarfsverkefni erlendis á þessu ári.

Hvasst á Hveravöllum

Vindur af suð-suðvestan fór upp í tæpa 30 metra á sekúndu á Hveravöllum í gær. Nokkuð fennti og var frostið mest sex gráður.

Alsæl með þessa ákvörðun

Rúmlega þrjú ár eru liðin frá því að Ingibjörg Pálmadóttir hætti sem heilbrigðisráðherra. Hún hafði þá verið 20 ár í stjórnmálum, fyrst í bæjarmálunum á Akranesi, síðan sem alþingismaður og loks sem ráðherra. Þetta voru því mikil viðbrigði.

Öruggt skjól fyrir skattheimtumönnum

Höfundum skýrslu um skattsvik sem kynnt var á Alþingi fyrir helgi er tíðrætt um svonefndar skattaparadísir enda hefur færst talsvert í vöxt að Íslendingar færi tekjur sínar á slíka staði.

Hefði getað orðið stórbruni

Minnstu mátti muna að stórbruni yrði í 150 ára gömlu húsi á horni Lækjargötu og Austurstrætis þegar eldur kviknaði þar út frá eldunartækjum í Kebab-húsinu á neðri hæðinni um klukkan hálfníu í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið af höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang.

Sterkur jarðskjálfti skekur Japan

Sterkur jarðskjálfti skók japönsku eynna Hokkaido í morgun og er talið að hann hafi verið 5,8 að styrkleika. Engar fregnir hafa borist af skemmdum eða mannskaða. Mikið hefur verið um jarðskjálfta í Japan undanfarnar vikur.

Þyrla náði í 3 ára dreng

Þriggja ára drengur, sem var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspítalans, eftir að hann hafði fengið höfuðhögg þegar hann féll í hálku á Grundarfirði í gær, var útskrifaður af sjúkrahúsinu í gærkvöldi.

Sjálfsmorðsárás við græna svæðið

Einn eða tveir eru taldir hafa farist í sjálfsmorðssprengjuárás við græna svæðið í Bagdad fyrir stundu. Þetta er annan daginn í röð sem öflug sprenging skekur græna svæðið þar sem ríkisstjórn landsins, erlend sendiráð og herstjórnin eru til staðar. Tólf eru sagðir sárir, sumir hverjir alvarlega, samkvæmt fyrstu fregnum.

Ofbeldismenn telji upp að tíu

Elsti sonur Ragnars Björnssonar, sem lést eftir höfuðhögg í Mosfellsbæ um helgina, segir ástæðu til að koma því á dagskrá í þjóðfélaginu að það þurfi einungis eitt högg til að rústa lífi fólks. "Ég legg til að fólk stingi lúkunum í vasann og telji upp á tíu áður en það reiðir til höggs við aðra manneskju," segir Jón Davíð Ragnarsson.

Árekstur strætisvagns og fólksbíls

Tveir ungir karlmenn slösuðust í hörðum árekstri strætisvagns og fólksbíls á mótum Miklubrautar og Grensásvegar laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Fólksbílnum var ekið til vesturs eftir Miklubraut en strætisvagninum til norðurs eftir Grensásvegi. Grunur leikur á að fólksbílnum hafi verið ekið inn á gatnamótin á móti rauðu ljósi.

Létust með voveiflegum hætti

Bandarísk mannréttindasamtök halda því fram að tveir fangar hafi látist með voveiflegum hætti í herfangabúðunum í Guantanamo-herstöðinni. Human Rights Watch greindi frá því í gær að fulltrúar samtakanna hefðu undir höndum sönnunargögn sem sýndu að fjórir bandarískir hermenn hafi myrt fanga í herstöðinni árið 2002.

25 látnir í lestarslysi

Að minnsta kosti 25 létust og 250 eru slasaðir eftir að tvær lestar skullu saman í Punjab-héraði á Norður-Indlandi í morgun. Björgunarsveitir eru á staðnum og vinna að því að koma hinum slösuðu til hjálpar. <font size="2"></font></font />

Hálka víða um land

Hálka er enn víða um land og víða má búast við ísingu. Engin alvarleg umferðaróhöpp urðu í gærkvöldi svo fréttastounni sé kunnugt um. Ekki rötuðu þó allir alveg rétta leið, eins og bíllinn sem rann á grindverk á Selfossi í gærkvöldi og hafnaði inni í garði.

Pinochet verður ekki handtekinn

Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, verður ekki handtekinn á næstunni þó að dómari hafi skipað fyrir um handtöku í gær. Pinochet er gefið að sök að hafa skipað fyrir um handtöku níu andspyrnumanna og að bera ábyrgð á að einn þeirra var drepinn.

Jólaverslun meiri í ár

Jólaverslun hefur verið umtalsvert meiri nú en á sama tíma í fyrra samkvæmt óformlegri könnun Samtaka verslunar og þjónustu meðal stjórnenda verslana í gær. Ætla má að verslunin verði a.m.k. um 10% meiri en í fyrra en algengt var að stjórnendur verslana sem haft var samband við í gær teldu aukninguna í desember verða um 15% umfram það sem var í fyrra, jafnvel 20%.

Rússi dæmdur fyrir njósnir

Rússi, sem áður starfaði fyrir öryggisþjónustu Rússlands, var í morgun dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að njósna fyrir Eistland. Maðurinn mun hafa verið landamæravörður en landamæragæsla var áður hlutverk öryggisþjónustunnar. Á þeim tíma mun hann hafa gefið eistneskum leyniþjónustumanni upplýsingar um þrjá rússneska njósnara.

Kínverjar fá ekki matvæli

Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðana hættir fyrir lok næsta árs að veita Kínverjum matvælaaðstoð. Kína hefur notið aðstoðar í aldarfjórðung en nú þykir velmegun vera það almenn í Kína að Kínverjum væri nær að veita aðstoð en þiggja. Því verður matvælaaðstoð hætt.

Háttsettur talíbani handsamaður

Afganskar öryggissveitir hafa handsamað háttsettan talíbana sem meðal annars var yfirmaður öryggismála hjá talíbanaleiðtoganum Mullah Omar. Maðurinn, Toor Mullah Naqibullah Khan að nafni, var handtekinn í sendibíl á leið til borgarinnar Kandahar í suðurhluta Afganistans og hafði meðal annars mikilvæg skjöl í fórum sínum að sögn stjórnvalda í landinu.

Ellefta stærsta fiskveiðiþjóðin

Íslendingar voru ellefta stærsta fiskveiðiþjóðin í heiminum árið 2002 og önnur stærsta á Norðaustur-Atlantshafi, samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands um heimsaflann 2002. Í samantektinni kemur fram að heimsaflinn árið 2002 hafi vaxið lítilsháttar á milli áranna 2001 og 2002 og var rúmlega 93 milljónir tonna.

Hæsta brú heims vígð

Hæsta brú heims var vígð í dag í Frakklandi. Hún er engin smásmíði: er lengri en Champs Elysees og hærri en Eiffel-turninn. Breski arkitektinn Norman Foster hannaði brúna, sem liggur yfir Tarn-dalinn í Suðvestur-Frakklandi.

Dregur úr reykingum og drykkju

Dregið hefur úr reykingum og drykkju ungmenna hér á landi, öfugt við þá þróun sem orðið hefur í öðrum löndum álfunnar.  Þetta er niðurstaða ítarlegra rannsókna sem gerðar voru meðal rúmlega 102 þúsund skólanema í 35 löndum.

Stafræn bókasöfn að verða til

Öllum bókum nokkurra stærstu háskólabókasafna heims verður á næstunni komið á stafrænt form í samvinnu við leitarvélina Google sem ætlar að bjóða aðgang að efninu á Netinu. Það hefur löngum verið draumur frumherja í nethugsun að koma bókum á stafrænt form og veita ókeypis aðgang að þeim en hingað til hefur það hljómað eins og framtíðardraumar.

Flestir deyja á jóladag

Fleiri Bandaríkjamenn deyja á jóladag hvert ár en nokkurn annan dag ársins. Þetta er niðurstaða rannsókna hóps vísindamanna, sem komust að því að 12,4 prósentum fleiri andist þann dag en aðra. Svipaða sögu er reyndar að segja af öðrum jóladögum og algengt er að fólk fái banvæn hjartaáföll á jóladag, annan í jólum og á nýársdag.

Ferðamenn fara víðar um landið

Ákjósanlegustu ferðamennirnir halda áfram að koma hingað til lands og dreifast nú meira um landið en áður, að mati Magnúsar Oddssonar ferðamálastjóra á nýjustu könnun á erlendum sumargestum. Hann segir að það sem veki helst athygli að hans mati sé að samsetning hópsins hefur nánast verið óbreytt þau átta ár sem könnununin hefur verið gerð.

79 listar í kosningunum í Írak

Sjálfsmorðsárás var gerð á græna svæðið í Bagdad í morgun, annan daginn í röð. Árásin var nákvæmlega eins og gerð á sama stað. Sjötíu og níu listar hafa verið lagðir fram fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar í Írak sem haldnar verða í næsta mánuði.

Fimm milljónasti Kringlugesturinn

Fimm milljónasti viðskiptavinurinn á þessu ári kemur í Kringluna klukkan þrjú í dag og verður tekið hátíðlega á móti honum. Búist er við að heimsóknir í verslunarmiðstöðina verði tæplega 5,5 milljónir á árinu og er það aukning frá síðasta ári.

Tilgangslaust að auglýsa Fellsmúla

"Þetta var einfaldlega hæsta tilboðið," segir Sigurbjartur Pálsson, oddviti Rangárþings Ytra, um samning um sölu Fiskeldisstöðvarinnar í Fellsmúla. Lögmenn Rangárþings og Ásahrepps gerðu margar athugasemdir við kaupsamninginn við hreppsnefndarmanninn Lúðvík Bergmann og félaga hans Ásgeir Ásmundarson.

Handsprengjuárásir á Indlandi

Að minnsta kosti einn lést og tugir eru særðir eftir að uppreisnarmenn gerðu handsprengjuárásir á nokkrum stöðum í héraðinu Assam í norðausturhluta Indlands í dag, þ.á m. í höfuðborginni Guwahati. Samskonar árásir voru gerðar í Guwahati í gær þar sem einn lést og sex lágu sárir eftir.

Andlát níræðs manns til rannsóknar

Lögregla hefur verið beðin um að rannsaka andlát manns á níræðisaldri í kjölfar höfuðhöggs sem hann fékk á öldrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu. Níu klukkustundir liðu frá því hann fékk höfuðhöggið, eftir að hafa fengið aðsvif og dottið í gólfið, og þar til hann var fluttur á spítala.

Lögreglan á Selfossi leitar vitna

Lögreglan á Selfossi leitar vitna vegna umferðarslyss sem varð á Suðurlandsvegi skammt austan við Hveragerði um klukkan tvö síðastliðinn sunnudag. Þar valt bifreið þegar ökumaðurinn reyndi að koma í veg fyrir árekstur við bifreið sem ekið var á móti og var að fara fram úr öðrum bílum.

ESB aflétti banni á fiskimjöli

EFTA-ríkin Ísland, Noregur, Sviss og Liechtenstein skora á Evrópusambandið að aflétta eins fljótt og kostur er banni á notkun fiskimjöls í fóðri. Þetta kom fram á fundi EES-ráðsins í Brussel í dag en það er samráðsvettvangur utanríkisráðherra EFTA og ESB innan evrópska efnahagssvæðisins.

Sá íslenski með flest litabrigði

Fleiri litabrigði eru í íslenska hestinum en í nokkurri annarri tegund hesta sem vitað er um, samkvæmt upplýsingum Norræna genabankans. Í grein sem birt er í nýjasta tölublaði NGH-nytt, sem Norræni genabankinn gefur út, segir að einangrun í meira en eitt þúsund ár og val við ræktun hafi skapað sterka og nægjusama skepnu með einstök litabrigði.

Heilsugæslustöð ofan á Glæsibæ

Heilsugæslan í Reykjavík og Íslenskir aðalverktakar skrifuðu í dag undir samning um leigu á nýju húsnæði fyrir nýja heilsugæslustöð í Voga- og Heimahverfi. Nýju stöðinni er ætlað að þjóna um tíu þúsund manns og er gert ráð fyrir að sex læknar verði þar starfandi.

Samstarfsmaður Zarqawis drepinn

Náinn samstarfsmaður hryðjuverkamannsins alræmda Abu Musabs al-Zarqawis hefur verið drepinn af írökskum öryggissveitum að sögn Iyads Alllawis, forsætisráðherra bráðbirgðastjórnarinnar í Írak. Maðurinn, Hassan Ibrahim Farhan að nafni, er meðlimur al-Kaída hryðjuverkasamtakanna og er sagður hafa staðið fyrir fjölda mannnrána og aftaka í Írak að undanförnu.

Þegar Davíð keypti ölið

"Mér fannst það fáranlegt að það væri hægt að mismuna fólki á þennan hátt og það fauk bara í mig," segir Davíð Scheving Thorsteinsson um það þegar hann reyndi að taka með sér bjór til landsins á þessum degi fyrir 25 árum síðan.

Iðjusemi ekki mæld í málgleði

Alþingismenn eru komnir í mánaðarlangt jólafrí og geta hvílt lúin bein næsta mánuðinn eða svo. Það sem af er þingi er Steingrímur J. Sigfússon ræðukóngur Alþingis en hann hefur látið gamminn geisa í rúmar tólf stundir en Guðrún Ögmundsdóttir hefur hins vegar dvalið manna styst í pontu, alls fjórar mínútur.

Vetnisvagnar aftur í umferð

Vetnisstöð Skeljungs og Íslenskrar Nýorku hóf aftur störf í gær en hún hefur verið biluð í nokkrar vikur. Á meðan hafa vetnisstrætisvagnar Nýorku staðið ónotaðir. Vetni verður dælt á þá aftur í dag.

Laun ráðherra og forseta hækka

Kjaradómur hefur ákveðið að hækka laun forseta Íslands, ráðherra, þingmanna, dómara og annarra sem falla undir dóminn um þrjú prósent um áramótin. Laun þeirra hækkuðu síðast í maí á síðasta ári.

Hámarkssekt er nú 300 þúsund

Hámarkssekt vegna umferðarlagabrota fer úr 100 þúsund krónum í 300 þúsund krónur samkvæmt nýsamþykktri breytingu á reglugerð um viðurlög vegna brota á umferðarlögum.

Afleiðingar ofbeldis alvarlegri

Tveir menn hafa látið lífið á síðustu vikum eftir banvæn höfuðhögg. Ofbeldismenn virðast beita sér af meiri hörku en áður og virðast enga grein gera sér fyrir gjörðum sínum.

Alþingi greiði manni 3,2 milljónir

Alþingi var í dag dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag til að greiða manni 3,2 milljónir króna í skaðabætur vegna slyss sem hann varð fyrir í júlí árið 2001 í bílageymslu í kjallara nýbyggingar þjónustuskála Alþingis.

Eitt högg er nóg

Jón Þór Ragnarsson, sonur mannsins sem lést eftir þungt höfuðhögg í Mosfellsbæ um helgina segir ofbeldið við skemmtanalíf Íslendinga komið út í öfgar. Mikil reiði er meðal ættmenna og vina Ragnars Björnssonar vegna atburðarins. </font /></b />

Sjá næstu 50 fréttir