Dregur úr reykingum og drykkju 14. desember 2004 00:01
Dregið hefur úr reykingum og drykkju ungmenna hér á landi, öfugt við þá þróun sem orðið hefur í öðrum löndum álfunnar. Lýðheilsustöð boðaði til kynningarfundar fyrir hádegi þar sem kynntar voru niðurstöður skýrslu á vegum Evrópuráðsins um vímuefnaneyslu evrópskra skólanema. Ásamt Lýðheilsustöð komu rannsóknarmiðstöðin Rannsóknir og greining og Háskólinn á Akureyri að kynningunni. Skýrslan er byggð á ítarlegum rannsóknum sem gerðar voru meðal rúmlega 102 þúsund skólanema í 35 löndum á árunum 1995, 1999 og 2003 og náði hún til rúmlega 3300 nemenda í tíunda bekk íslenskra grunnskóla. Á þriðja hundrað evrópskra vísindamanna í löndunum stóðu að rannsóknunum. Samkvæmt skýrslunni hafa orðið umtalsverðar breytingar á vímuefnaneyslu ungs fólks í Evrópu á undanförnum átta árum og vímuefnaneysla íslenskra unglinga hefur þróast með nokkrum öðrum hætti en annars staðar í álfunni. Helsta breytingin er sú að reykingar hafa minnkað hér á landi á meðan þær hafa staðið í stað eða aukist í öðrum Evrópulöndum. Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Akureyri, segir að íslenskir unglingar hafi hingað til verið í miðjum hópi yfir reykingar evrópskra unglinga en séu nú neðstir þar sem þeir reyki minnst. Ekki hefur orðið eins mikil minnkun í áfengisneyslu en þó hefur dregið aðeins úr henni á meðan neyslan hefur aukist á heimsvísu. Þóroddur þakkar þetta samstilltu átaki foreldra, lögreglu og skóla. Notkun annarra vímuefna hjá íslenskum unglingum stendur hins vegar í stað.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira