Innlent

Jólaverslun meiri í ár

Jólaverslun hefur verið umtalsvert meiri nú en á sama tíma í fyrra samkvæmt óformlegri könnun Samtaka verslunar og þjónustu meðal stjórnenda verslana í gær. Ætla má að verslunin verði a.m.k. um 10% meiri en í fyrra en algengt var að stjórnendur verslana sem haft var samband við í gær teldu aukninguna í desember verða um 15% umfram það sem var í fyrra, jafnvel 20%. Undanfarin ár hefur verið vöxtur í jólaverslun milli ára og virðist sem hann ætli að verða álíka og var á milli áranna 2002 og 2003, eða um 15%. Þó svo að Íslendingar fari töluvert út fyrir landsteinana til að gera jólainnkaup virðist það ekki hafa áhrif á aukna verslun innanlands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×