Stafræn bókasöfn að verða til 14. desember 2004 00:01
Öllum bókum nokkurra stærstu háskólabókasafna heims verður á næstunni komið á stafrænt form í samvinnu við leitarvélina Google sem ætlar að bjóða aðgang að efninu á Netinu. Það hefur löngum verið draumur frumherja í nethugsun að koma bókum á stafrænt form og veita ókeypis aðgang að þeim en hingað til hefur það hljómað eins og framtíðardraumar. En ekki lengur. Nokkrir stærstu rannsóknarháskólar Bandaríkjanna, þeirra á meðal Harvard og Stanford, Oxford-háskóli í Bretlandi og bókasafn New York borgar hafa tekið höndum saman um að lesa allar bækur safnanna inn í tölvur og bjóða aðgang að þeim á Netinu. Leitarvélin Google fjármagnar verkefnið og leggur til tæknikunnáttuna. Talið er að það taki allt að áratug að skanna allar bækurnar inn en bókasafnsfræðingur Stanford-háskóla telur að innan tveggja áratuga verði allt lesefni komið í stafræn bókasöfn á Netinu. Það eru fleiri sem róa öllum árum að sama marki. Á vegum eins stærsta bókasafns heims, bókasafns Bandaríkjaþings, hefur um hríð verið unnið að því að skanna inn valin verk og í gærkvöldi var gengið frá samkomulagi á milli þingbókasafnsins og leiðandi bókasafna í Bandaríkjunum, Kanada, Egyptalandi, Kína og Hollandi um að stofna almenningsbókasafn á Netinu, þar sem boðinn yrði aðgangur að allt að milljón titla. Þegar í apríl eiga sjötíuþúsund stafrænar bækur að vera í boði. Hjá Google telja menn raunhæft að skanna inn fimmtíu þúsund síður daglega innan mánaðar og að fjölga síðunum upp í hundrað þúsund fyrri helming næsta árs.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Sjá meira