Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýtt friðarsamkomulag á N-Írlandi Endanlegt friðarsamkomulag á Norður-Írlandi liggur fyrir en ljósmyndir koma í veg fyrir að það sé undirritað. Talsmenn Írska lýðveldishersins segja ekki koma til greina að ljósmyndir verði teknar af því þegar vopn lýðveldishersins verða eyðilögð, og það geta mótmælendur ekki sætt sig við. 9.12.2004 00:01
Róttækar breytingar á CIA Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta að gera róttækar breytingar á leyniþjónustu landsins. Starfsemi leyniþjónustunnar hefur ekki verið breytt síðan á tímum kalda stríðsins en með tilliti til nýrrar heimsmyndar þótti rétt að nútímavæða leyniþjónustuna bandarísku. 9.12.2004 00:01
Engisprettusveimur í Mexíkó Þykkur engisprettusveimur liggur yfir Júkatan-skaga á Mexíkó sem stendur og veldur þar miklum usla. Stærsti sveimurinn sem sést hefur var fimm hundruð metra langur. Yfirvöld segja þó að engisspretturnar séu enn sem komið er engin ógn en bændur hafa skiljanlega miklar áhyggjur af uppskerunni sinni. 9.12.2004 00:01
OPEC-ríkin minnki olíuframleiðslu Sérfræðingar OPEC, Samtaka olíuframleiðsluríkja, kanna nú hvort að lækkun á olíufatinu á heimsmarkaði réttlæti að ríkin dragi úr framleiðslu sinni. Olíumálaráðherrar aðildarríkjanna hittast á fundi á morgun til að komast að niðurstöðu og segir ráðherra Írans að ekki hafi náðst samkomulag um stefnuna enn sem komið er. 9.12.2004 00:01
Örlög Berlusconis að ráðast Dómarar sem hafa mútumál tengt Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, á sínum borðum ráða nú ráðum sínum og segjast greina frá niðurstöðu sinni á morgun. Berlusconi er sakaður um að hafa mútað nokkrum dómurum á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og þannig keypt sér hagstæða úrskurði í málum sem snertu Fininvest-veldið hans. 9.12.2004 00:01
Reykingar slæmar fyrir heilann Reykingar eru ekki aðeins slæmar fyrir lungun og hjartað heldur fara þær líka illa með heilastarfsemina. Þetta kemur fram í niðurstöðum skoskrar rannsóknar sem staðið hefur yfir í hartnær sextíu ár. Skoðað var hvernig hugarstarfsemi breyttist með aldrinum hjá tæplega 500 manns, þar af rúmlega 200 reykingamönnum. 9.12.2004 00:01
Draga úr sæðisframleiðslu Ungir menn ættu alls ekki að sitja með fartölvur í kjöltunni. Þetta segja sérfræðingar og benda á að töluverður hiti stafi af slíkum tölvum. Hitinn frá tölvunni getur hitað upp pung karlmanna með þeim afleiðingum að stórdregur úr sæðisframleiðslu og þær sæðisfrumur sem þó verða til eru slappari en annars. 9.12.2004 00:01
Lántökur heimilanna aukast um 100% Lántökur heimilanna í erlendum gjaldeyri hafa aukist um hundrað prósent á tveimur mánuðum eftir að bankarnir fóru að bjóða húsnæðislán. Lækkun krónunnar og hækkun á erlendum vöxtum gæti því aukið greiðslubyrði þeirra óbærilega. 9.12.2004 00:01
Lét greipar sópa á Laugavegi Þjófur lét greipar sópa í glugga úra- og skartgripaverslunar við Laugaveg undir morgun og komst undan með þýfið. Nágranni við götuna heyrði brothljóðin og lét lögreglu þegar vita, auk þess sem þjófavarnarkerfi fór í gang, en þrátt fyrir að lögreglan væri snögg á staðinn var þjófurinn horfinn með feng sinn þegar hún kom að. Þjófurinn er ófundinn. 9.12.2004 00:01
Ekki enn vitað um smitleiðina Ekki er enn vitað hvernig miltisbrandur barst í hrossin sem drápust á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Hræin verða brennd í dag. 9.12.2004 00:01
2 handteknir vegna Madrídar-árása Lögregla á Spáni handtók í morgun tvo menn í tengslum við rannsókn hryðjuverkanna í Madríd þann 11. mars á þessu ári. Mennirnir, sem eru af egypsku og sýrlensku bergi brotnir, eru sagðir hafa tengsl við sjö af þeim mönnum sem grunaðir eru um að hafa komið fyrir sprengjum í lestum í Madríd þann dag. 9.12.2004 00:01
Vill bæta samskiptin við Evrópu Bush Bandaríkjaforseti vill reyna að bæta samskiptin við Evrópuríkin, að sögn evrópskra embættismanna hjá NATO. Af þessum sökum hyggst Bush heimsækja höfuðstöðvar bandalagsins í lok febrúar á næsta ári. Bandaríkjamenn óskuðu í morgun eftir frekari aðstoð Evrópuþjóða í Írak og Afganistan. 9.12.2004 00:01
Mótmæla hækkun skráningargjalda Nemendafélög ríkisháskólanna hafa sent frá sér ályktanir og verið með heilsíðuauglýsingar í dagblöðum til þess að mótmæla því að skráningargjöld í skólunum verði hækkuð um 13.500 krónur. Menntamálaráðherra hefur lagt fram frumvarp þessa efnis og verður það tekið til atkvæðagreiðslu klukkan hálftvö í dag. 9.12.2004 00:01
Ekki grunaður um neitt Ungur maður hefur fengið réttarstöðu grunaðs manns vegna lögreglurannsóknar á eldsvoðanum á Sauðárkróki á laugardaginn þar sem einn maður fórst. Yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki tekur þó fram að umræddur maður sé ekki grunaður um eitt eða neitt. 9.12.2004 00:01
Íslenskar hrefnur á Kanarí Íslensku hrefnurnar eru ekkert frábrugðnar íslenska mannfólkinu að því leyti að þær kunna að meta ylinn á Kanaríeyjum um jólin. Nýverið barst sending um gervitungl frá einni af sjö hrefnum sem senditæki var skotið í á Faxaflóa síðsumars og var hún þá stödd nálægt eyjunum. Hafrannsóknastofnun bíður spennt eftir frekari sendingum. 9.12.2004 00:01
BSRB býður upp á tungumálakennslu BSRB ætlar að stórefla tungumálakunnáttu félagsmanna og undirritar í dag samning við Framvegis, miðstöð um símenntun um tungumálafræðslu. Í tilkynningu frá BSRB segir að hér sé um að ræða afar metnaðarfullt átak. Boðið verði upp á námskeið í ensku, dönsku, spænsku, íslensku ritmáli, þýsku og frönsku. 9.12.2004 00:01
Barnæskan hörmuleg lífsreynsla Barnæskan er hörmuleg lífsreynsla fyrir helming barna á jörðinni. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 9.12.2004 00:01
Búið að brenna hræin Búið er að brenna hræin af hrossunum fjórum sem drápust úr miltisbrandi á jörð Sjónarhóls á Vatnsleysuströnd. Ekki er enn vitað hvernig miltisbrandur barst í hrossin. Starfsmenn frá embætti yfirdýralæknis hafa verið að taka sýni af vatni á jörð Sjónarhóls og verða þau notuð til þess að finna hvar miltisbrandurinn átti upptök sín. 9.12.2004 00:01
Athvarf fyrir heimilislausar konur Athvarf fyrir heimilislausar konur verður formlega opnað í Reykjavík á morgun, 10. desember, á 80 ára afmæli Rauða kross Íslands. Deildir félagsins fagna afmælinu á margvíslegan hátt, sumar með því að hafa opið hús undir yfirskriftinni „Byggjum betra samfélag.“ 9.12.2004 00:01
Mótmæla hækkun bifreiðagjalda Félag íslenskra bifreiðaeigenda mótmælir harðlega hækkun bifreiðagjalda um fjörutíu og fimm prósent umfram verðlagsþróun. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um að hækka bifreiðagjöld og er í frumvarpinu sagt að það sé í takt við verðlagsþróun. Runólfur Ólafsson hjá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda er ekki allskostar sammála því. 9.12.2004 00:01
Lífeyrisþegum hefur fjölgað um 46% Lífeyrisþegum fjölgar langt umfram mannfjölda, samkvæmt staðtölum frá Tryggingastofnun ríkisins fyrir 2003. 9.12.2004 00:01
Ný hvalategund í Kyrrahafi? Hvalur sem hefur rödd ólíka öllum öðrum hvölum hefur svamlað um Kyrrahafið undanfarin tólf ár. Bandarískir vísindamenn segja að hvalurinn sé einn á ferð en þeir hafa enga hugmynd um af hvaða tegund hvalurinn er. 9.12.2004 00:01
Evrópa axli sinn hlut í Írak Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO, sagði á fundi með utanríkisráðherrum bandalagsins í dag að tengslin við Bandaríkin væru undir því komin að Evrópuríki axli sinn hlut í öryggismálum í Írak og Afganistan. </font /></font /> 9.12.2004 00:01
Olíu leitað við Ísland Norskir og skoskir aðilar hafa stofnað félag til þess að leita að olíu við Ísland. Félagið heitir Geysir Petroleum og segir framkvæmdastjóri þess að um leið og lögum verði breytt á Íslandi verði send umsókn til iðnaðarráðuneytisins um leyfi til olíuleitar. 9.12.2004 00:01
Kvennalisti stofnaður í Svíþjóð? Femínistar í Svíþjóð íhuga að stofna Kvennalista fyrir næstu kosningar sem fara fram árið 2006. Líklegur formaður flokksins er Gudrun Schyman sem vék formannssæti í Vinstri flokknum á síðasta ári eftir að hún hafði verið saksótt fyrir skattsvik. 9.12.2004 00:01
Vill ganga frá stjórnarmyndun Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hvatti flokksmenn sína í Líkúd-bandalaginu til þess í dag að greiða atkvæði með stjórnarsamvinnu Líkúd og Verkamannaflokksins. Ef þeir gera það ekki verður að efna til kosninga með hraði og það gæti gert að engu áætlanir hans um að flytja ísraelska landnema frá Gasasvæðinu. 9.12.2004 00:01
Hindruðu hryðjuverkaárás á London Breska leyniþjónustan hefur komið í veg fyrir árás á London sem átti að vera svipuð þeirri sem gerð var á járnbrautalestarnar í Madríd í mars á þessu ári. Tæplega tvöhundruð manns létu lífið í þeirri árás. Yfirvöld í Bretlandi segjast ekki geta gefið frekari upplýsingar um hina fyrirhuguðu árás í London að sinni af lagalegum ástæðum. 9.12.2004 00:01
Líkja eftir Mars í miðri Moskvu Rússneskir vísindamenn leita nú að sex sjálfboðaliðum sem eru reiðubúnir að láta loka sig af í sérsmíðaðri vísindastofu í Mosvku í 500 daga án þess að stíga nokkurn tíma út meðan á dvölinni stendur. Þar á að líkja eftir skilyrðum sem geimfarar á Mars þyrftu að kljást við og er tilraunin hugsuð sem undirbúningur að slíkri ferð. 9.12.2004 00:01
Hjónabönd samkynhneigðra leyfð Hæstiréttur Kanada hefur gefið ríkisstjórn landsins grænt ljós á að leyfa hjónabönd samkynhneigðra en gekk ekki svo langt að segja að hún væri skyldug til þess vegna ákvæða í stjórnarskrá landsins. 9.12.2004 00:01
Fjórir myrtir á skemmtistað Fimm létu lífið og tveir særðust þegar maður hóf skothríð á skemmtistað í Ohio í fyrrinótt. Annar þeirra særðu er lífshættulega slasaður. 9.12.2004 00:01
Fleiri lifa sár sín af en áður Dánartíðni særðra bandarískra hermanna hefur aldrei verið lægri en í stríðinu í Írak. Í Persaflóastríðinu og Víetnamstríðinu lést fjórði hver hermaður sem særðist en núna er það hlutfall komið niður í tíunda hvern hermann, að því er fram kom í frétt Washington Post. 9.12.2004 00:01
Fátækt og stríð hjá milljarð barna Annað hvert barn í heiminum þjáist af fátækt, stríðsátökum eða alnæmisfaraldrinum að því er fram kemur í ársskýrslu Barnahjálpar sameinuðu þjóðanna. Þetta þýðir að meira en milljarður barna á um sárt að binda. 9.12.2004 00:01
Kveikt í íbúðarhúsi í Saurbæ Maður á fimmtugsaldri gekk berskerksgang á sveitabæ í Saurbæ í Dölum í dag og reyndi að aka niður sýslumann Dalasýslu, lögreglumann og þriðja mann, sem voru í lögreglubíl á bæjarhlaðinu. Hann er einnig talinn hafa kveikt í íbúðarhúsinu á staðnum. 9.12.2004 00:01
Hjúkrunarfræðingar heiðarlegastir Hjúkrunarfræðingar eru heiðarlegastir og hafa best siðferði allra starfsstétta að mati Bandaríkjamanna. Bílasalar njóta hins vegar minnsta traustsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar í Bandaríkjunum sem birtust í gær. 9.12.2004 00:01
80 kindur féllu ofan í kró 80 kindur féllu ofan í kró í fjárhúsi í Reynihlíð í Mývatnssveit nú síðdegis. Björgunarsveit er á staðnum og vinnur að því að koma fénu til bjargar. 9.12.2004 00:01
Samgöngur til Vestmannaeyja Á Alþingi hafa þingmenn lýst yfir áhyggjum yfir versnandi samgöngum við Vestmannaeyjar, en strandsiglingum Eimskips lauk 1. desember. Óskar Stefánsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, segist trúa að það sé þess virði að kanna hugmyndir um jarðgöng til Vestmannaeyja nánar. 9.12.2004 00:01
Konukot opnað á afmælinu Haldið er upp á 80 ára afmæli Rauða kross Íslands í dag. Í tilefni dagsins verður m.a. opnað formlega svonefnt Konukot, en það er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. 9.12.2004 00:01
Baráttan gegn fátækt í fyrirrúmi Eitt af meginverkefnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) snýr að því að útrýma fátækt og hungri í heiminum. Við upphaf fundar framkvæmdastjórnar stofnunarinnar í Reykjavík voru kynnt svonefnd þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna, en WHO er ein stofnana Sameinuðu þjóðanna og vinnur að þeim markmiðum til að stuðla að bættu heilsufari fólks. 9.12.2004 00:01
Viðbúnaður WHO vegna fuglaflensu "Við sjáum vísbendingar um að yfirvofandi sé heimsfaraldur skæðrar inflúensu," sagði Lee Jong-wook, forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), á blaðamannafundi sem haldinn var í byrjun fundar framkvæmdastjórnar stofnunarinnar í Reykjavík í gær og áréttaði að stofnuninni væri mjög umhugað um málið. 9.12.2004 00:01
Mikilvægur fundur hjá WHO Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir mikla þýðingu hafa fyrir landið að fundur framkvæmdastjórnar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) skuli haldinn hér á landi. 9.12.2004 00:01
Guði sé lof fyrir Kárahnjúka Gjaldþrot norska fyrirtækisins Promex, sem fyrirhugaði starfsemi í Mývatnssveit, olli vonbrigðum fyrir norðan. Atvinnumálin hafa samt glæðst síðustu daga. 9.12.2004 00:01
Leyniþjónusta í lamasessi Miklar breytingar eru framundan í bandarísku leyniþjónustunni en þær stofnanir sem annast leynilega upplýsingaöflun hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að hafa ekki séð fyrir atburði á borð við 11. september. 9.12.2004 00:01
NATO mikilvægt vegna varna Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat utanríkisráðherrafund Norður-Atlantshafsbandalagsins. NATO, í Brussel í dag. Á fundinum áréttuðu ráðherrarnir mikilvægi Atlantshafstengslanna og bandalagsins sem grundvöll sameiginlegra varna og vettvangs samráðs milli Evrópu og Norður-Ameríku um öryggismál. 9.12.2004 00:01
Stuðmaður á þing Jakob Frímann Magnússon, tónlistar- og kvikmyndagerðarmaður lagðist til svefns undir morgun á fimmtudagsmorgni. Á dauða sínum átti hann von en ekk því að eftir sex tíma svefn myndi hann undirrita hátíðlegt drengskaparheit um að virða stjórnarskrá lýðveldisins sem alþingismaður. 9.12.2004 00:01
Lygabrygsl á þingi Þingmenn vændu hvern annan um ósannindi í umræðum á Alþingi í gær þegar Össur Skarphéðinsson, Samfylkingu gerði að umtalsefni orð Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra í sjónvarpsþætti á Stöð 2. Hafði Össur eftir Geir að hann hefði staðfest að Framsóknarflokkurinn stæði gegn lækkun matarskattar. 9.12.2004 00:01