Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Guðlaugi Þór svarað Guðmundur Þóroddsson, formaður Orkuveitu Reykjavíkur fullyrðir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær að Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarmaður í Orkuveitunni hafi farið með rangt mál í frétt í Fréttablaðinu á fimmtudag. 9.12.2004 00:01
Nýr matfiskur við strendur Íslands Nýr matfiskur af kolaætt er kominn að ströndum Íslands. Hann heldur sig mest á grunnsævi og virðist kunna best við sig við ósa Ölfusár. 9.12.2004 00:01
Miltisbrandssýkt hross brennd Hræ fjögurra hrossa sem greindust með miltisbrand við eyðibýlið Sjónarhól á Vatnsleysuströnd voru brennd í gær. Tíu manns hafa fengið læknismeðferð vegna hugsanlegrar miltisbrandssýkingar. Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnarsviði Landlæknis, segir fólkið ekki vera veikt en það fái sýklalyf í skamman tíma sem fyrirbyggjandi meðferð. 9.12.2004 00:01
Frumleg lausn byggðavanda Það er frumleg nálgun hjá sveitastjórum í sjávarbyggðum að leggja til að veiðigjald á kvóta renni til byggðanna og að skuldir þeirra í félagslega íbúðakerfinu verði afskrifaðar. Þetta segir Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarmanna, eftir fund með sveitastjórunum í fyrradag. 9.12.2004 00:01
Á batavegi eftir hálkuslys Ung kona sem datt í hálku við bæ í Hrunamannahreppi í fyrrakvöld, og var flutt meðvitundarlaus með þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild í Fossvogi, er á batavegi. 9.12.2004 00:01
Áhugi á olíuleit á Íslandi glæðist Áhugi á olíuleit í íslenskri lögsögu ætti að glæðast mjög eftir að risastór olíulind fannst á mörkum breskrar og færeyskrar lögsögu. Talið er að allt að því fimm hundruð milljónir tunna af olíu sé þar að finna. 9.12.2004 00:01
Fór ekki niður af svölum hússins Maður sem komst út úr brennandi húsi við Bárustíg á Sauðárkróki á laugardag hefur fengið réttarstöðu grunaðs manns. Björn Mikaelsson, yfirlögregluþjónn á Sauðárkróki, segir manninn ekki grunaðan um að hafa kveikt í húsinu enda liggi eldsupptök ekki fyrir. 9.12.2004 00:01
Sýknaður af netaveiði Maður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um brot á lax- og silungsveiði. Hann var ákærður fyrir að hafa lagt net í Ólafsfjarðarvatn um tuttugu metra frá ósi Fjarðarár. 9.12.2004 00:01
Þrír í tveggja ára fangelsi Hæstiréttur staðfesti tveggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir þremur mönnum sem kveiktu í íbúðarhúsi í Laugardal í júlí á síðasta ári. Húsráðendur, maður og kona, voru inni í íbúðinni þegar kveikt var í. 9.12.2004 00:01
Falsaði skuldabréf í fangelsi Hæstiréttur hefur staðfest tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni fyrir skjalafals. Fölsunin átti sér stað inni á Litla-Hrauni en hann situr inni fyrir morð. Bréfin falsaði hann með nafni þess sem hann myrti. 9.12.2004 00:01
Velti lögreglubíl með hjólaskóflu Maður gjöreyðilagði lögreglubíl með hjólaskóflu og er grunaður um að hafa reynt að kveikja í íbúðarhúsi sínu í Saurbæjarhreppi í Dölum um klukkan tvö í gær. Sýslumaður, lögmaður og lögregla voru stödd á bænum vegna uppboðs sem halda átti á eigninni. Ekki varð manntjón vegna berserksgangs mannsins. 9.12.2004 00:01
Landbrot líkleg orsök smitsins Hræ hrossanna fjögurra, sem ýmist drápust eða var lógað eftir að hafa smitast af miltisbrandi við bæinn Sjónarhól á Vatnsleysuströnd, voru brennd í dag. Enn er ekki vitað hvernig veikin barst í hrossin en landbrot er talið líklegasta skýringin. Um tugur manna sem sinnti hrossunum hefur verið settur á sýklalyf í forvarnarskyni. 9.12.2004 00:01
Vinsælt gigtarlyf lífshættulegt Talið er að hundrað þúsund Bandaríkjamenn hafi látist af völdum gigtarlyfsins Vioxx sem samsvarar því að hundrað Íslendingar myndu deyja vegna lyfjatökunnar. Lyfið hefur verið tekið af markaði. 9.12.2004 00:01
Jóhann var símastrákurinn Samtök vöru og þjónustu hafa upplýst að það hafi verið Jóhann Ársælsson sem hafi svarað spurningum samtakanna um breytingar á virðisuskattskerfinu í mars 2003 fyrir hönd Samfylkingarinnar. Jóhann sagði þá Samfylkunga ekki viljað breyta virðisaukaskattskerfinu og þar með matarskattinum. 9.12.2004 00:01
Með í nefnd en sat hjá Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins sat hjá í atkvæðagreiðslu á Alþingi þegar umdeildu frumvarpi sem sagt er fela í sér skólagjöld í ríkisháskóla var vísað til þriðju umræðu á þingi í gær. 9.12.2004 00:01
Bankamenn semja Laun bankamanna hækka um fimmtán til nítján prósent samkvæmt nýundirrituðum kjarasamningi Sambandi bankamanna og Samtaka atvinnulífsins. 9.12.2004 00:01
Spilling á Íslandi Stjórnmálaflokkar eru taldir undir mestum áhrifum spillingar hér á landi í árlegri könnun Gallup um afstöðu til spillingar. 9.12.2004 00:01
Landbúnaðarráðuneytið kært Landbúnaðarráðuneytinu hefur borist stjórnsýslukæra vegna ákvörðunar yfirdýralæknis um að skera niður á þriðja þúsund kinda í Biskupstungum. Þar hefur greinst riðuveiki. 9.12.2004 00:01
Mistök við byggingu Mýrinnar Verið er að skipta um klæðningu á íþróttahúsinu Mýrinni í Garðabæ. Húsið var tekið í notkun í byrjun septembermánaðar. 9.12.2004 00:01
Skattar auknir á kirkjur Eðlilegt er að ríkið greiði fasteignagjöld af eignum sínum eins og aðrir, segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og einn þriggja fulltrúa sveitarfélaga í tekjustofnanefnd, sem ræðir skiptingu tekna ríkis og sveitarfélaga. 9.12.2004 00:01
Góð sjósókn í desember Alls voru 280 bátar á sjó í hádeginu í gær. Það þykir gott en deginum áður voru einungis 98 bátar á sjó samkvæmt Tilkynningaskyldu skipa. 9.12.2004 00:01
Vændi Össur um lygi Hart var tekist á um skattalækkanir ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vændi Össur Skarphéðinsson, formann Samfylkingarinnar, um lygi og var áminnt fyrir af forseta þingsins. 9.12.2004 00:01
200 manns í starfsmannaþorpi Uppbygging starfsmannaþorps vegna byggingar Fjarðaráls á Reyðarfirði stendur nú sem hæst. Tvö vöruflutningaskip Samskipa komu til hafnar á Reyðarfirði í gær með samtals 82 hús fyrir vinnubúðir Fjarðaráls. 9.12.2004 00:01
Sigur fyrir samkynhneigða í Kanada Hæstiréttur Kanada segir að giftingar samkynhneigðra brjóti ekki gegn stjórnarskrá landsins. Stjórnvöld geti hins vegar ekki þvingað presta til að gifta samkynhneigða ef þeir telji það andstætt trú sinni. 9.12.2004 00:01
Davíð á utanríkisráðherrafundi Utanríkisráðherrar Norður-Atlantshafsbandalagsins lýstu ánægju með ákvörðun úkraínskra stjórnvalda um að endurtaka síðari umferð forsetakosninganna 26. desember. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat fundinn. 9.12.2004 00:01
Þyrla hrapaði í hafið við Alaska Þyrla strandgæslunnar í Alaska hrapaði í Barentshafið með 10 manna áhöfn. Fjórum var bjargað af annarri þyrlu en sex er saknað. 9.12.2004 00:01
Reykskynjari bjargar fjölskyldu Reykskynjari vakti fimm manna fjölskyldu á Vopnafirði í gær. Eldur logaði í kertaskreytingu í stofunni. Fjölskyldan náði að slökkva eldinn með vatni. 9.12.2004 00:01
Brautryðjendur í íslenskum fræðum Baggalútar, sem eru þekktastir fyrir að halda úti heimasíðu með fréttatengdu skemmtiefni og flutning grípandi dægurlaga, hafa gefið út bók með glænýju efni. Fréttamaður Stöðvar 2 hitti einn höfundanna í dag. Móðir hans telur bókina vera brautryðjendaverk í íslenskum fræðaheimi. 9.12.2004 00:01
Tekjur jöfnunarsjóðs lækka með lækkun skatta Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga lækka varanlega um rúmar 400 milljónir þegar frumvarp til laga um lækkun tekjuskatts og eignarskatts kemur til fullra framkvæmda árið 2007, vegna lækkunar tekjuskatta, afnám eignarskatts og hækkunar persónuaflsáttar. Þetta kemur fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarpið. 8.12.2004 00:01
Lést í eldsvoða á Sauðárkróki Maðurinn sem lést í eldsvoðanum á Sauðarkróki á laugardag hét Elvar Fannar Þorvaldsson, fæddur 18. júní árið 1983. Elvar var til heimilis að Hólavegi 24 og að Bárustíg 14 á Sauðárkróki. Hann var ókvæntur og barnlaus. 8.12.2004 00:01
Ráðherra rak í rogastans Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vísar því á bug að hann hafi skipt um skoðun um málefni Mannréttindaskrifstofu Íslands eins og haldið var fram í fréttum um helgina. 8.12.2004 00:01
Uppsagnirnar standa Kennarar grunnskólans á Hólmavík sem sögðu upp störfum hafa ekki dregið uppsagnir sínar til baka. Þriðjungur kennara Lágafellsskóla í Mosfellsbæ hefur afturkallað uppsagnir sínar, sem og allir kennarar utan tveggja á Fáskrúðsfirði. 8.12.2004 00:01
Hringveginn norður fyrir Selfoss Gert er ráð fyrir að þjóðvegurinn í gegnum Selfoss verði færður norður fyrir bæinn. Vegagerðinni hefur verið falið að veita umsögn um legu hans þar sem tvær leiðir koma til greina. Í báðum tillögum er gert ráð fyrir að vegurinn verði færður til norðurs. 8.12.2004 00:01
Borgin kærð fyrir jafnréttisbrot Reykjavíkurborg verður kærð til kærunefndar jafnréttismála vegna ráðningar í stöðu sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs. Fulltrúar Reykjavíkurlistans samþykktu á fundi borgarráðs fyrir skömmu að ráða Svanhildi Konráðsdóttur, fyrrverandi forstöðumann höfuðborgarstofu. Tíu af þrettán framkvæmdastjórum borgarinnar eru konur. 8.12.2004 00:01
Mladic á launum hjá stjórn Serbíu Ratko Mladic, serbneski herforinginn sem ákærður hefur verið fyrir fjöldamorðin í Srbrenica í Bosníu, var á launaskrá júgóslavneska hersins til 2001 og á eftirlaunum hjá her Bosníu-Serba til 2002. Þetta kemur fram í gögnum sem bosníska blaðið Dnevni Avaz hefur komist yfir. 8.12.2004 00:01
Hneyksli of vægt orð Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks vinstri-grænna, segir að orðið hneyksli sé of vægt til að lýsa niðurskurði á framlögum til Mannréttindaskrifstofu við afgreiðslu fjárlaga um helgina. 8.12.2004 00:01
Mistök í lagasetningu Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, segir að ekki sé enn vitað hvað dómur Hæstaréttar um erfðafjárskatt frá því á föstudag hafi áhrif á marga. Þá komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að sex erfingjar þyrftu ekki að greiða erfðafjárskatt vegna þess að engin heimild hefði verið fyrir skattlagningu. 8.12.2004 00:01
Sprenging í íbúð í Stokkhólmi Lögreglu í Stokkhólmi grunar að sprengja hafi sprungið í fjölbýlishúsi í miðborg Stokkhólms í morgun. Svo virðist sem sprengingin hafi orðið á fimmtu hæð og við það hafi risíbúðin fyrir ofan sprungið í tætlur. Eins manns er saknað, þess er bjó í risíbúðinni, en aðeins tveir slösuðust og báðir minniháttar. 8.12.2004 00:01
Þingið reynir aftur í dag Þingið í Úkraínu mun í dag á nýjan leik reyna að ná samkomulagi um breytingar á kosningalöggjöf í landinu til þess að minnka líkurnar á misferli í forsetakosningunum sem endurtaka á þann 26. desember næstkomandi. 8.12.2004 00:01
Tvö áföll með skömmu millibili Ökumaður varð fyrir tveimur áföllum með skömmu millibili á Hellisheiði eystri í gær. Fyrst hreif vindhviða bíl hans út af veginum, sem var flugháll, og rann bíllinn niður háan kant uns hann nam staðar og sakaði manninn ekki. En þegar hann var að klifra upp á veginn til að leita aðstoðar, féll hann við og slasaðist. 8.12.2004 00:01
Rafmagn fór af Grindavík Rafmagn fór af Grindavík um hálftíuleytið, að því er talið er vegna tveggja öflugra eldinga sem laust niður vestanvert við bæinn. Rafmagn var að mestu komið á aftur klukkan rúmlega tíu að sögn Hitaveitu Suðurnesja. Þeir sem sáu eldingarnar sögðu þær líkastar eldhnöttum og héldu einhverjir bæjarbúa að jarðskjálfti gengi yfir þegar meðfylgjandi þrumur drundu. </font /></font /> 8.12.2004 00:01
Róttækar breytingar á CIA Róttækustu breytingar á bandarísku leyniþjónustunni síðan í lok kalda stríðsins hafa verið samþykktar af fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Meðal annars verður búin til ný staða yfirmanns sem mun hafa það hlutverk að samræma aðgerðir FBI, bandarísku alríkislögreglunnar, og CIA-leyniþjónustunnar. 8.12.2004 00:01
Hagnaður tæplega þrefaldaðist Hagnaður þeirra tuttugu félaga í Kauphöllinni sem greiningardeild KB banka gerir afkomuspár fyrir fór nálægt því að þrefaldast fyrstu mánuði þessa árs, samanborið við sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn nú nam tæpum sextíu milljörðum króna en um tuttugu og tveimur milljörðum í fyrra. 8.12.2004 00:01
Líklega eitrað fyrir Júsjenko Austurrískur læknir sem stjórnar rannsókninni á því hvort hugsanlega hafi verið eitrað fyrir Viktori Júsjenko, forsetaframbjóðanda í Úkraínu í aðdraganda kosninganna, segist ekki geta útilokað þann möguleika. Breska dagblaðið <em>Times </em>segir í dag að það sé aðeins tímaspursmál hvenær læknarnir finni út hvert efnið sé. 8.12.2004 00:01
Stuðningsmenn Saddams í Sýrlandi Uppreisnarmenn í Írak njóta aðstoðar Sýrlendinga. Þetta er mat heimildarmanna <em>Washington Post</em> úr röðum herleyniþjónustumanna og byggir matið á upplýsingum sem aflað var í Bagdad og Fallujah í síðasta mánuði. Talið er að fyrrverandi stuðningsmenn Saddams Hússeins séu í Sýrlandi og komi þaðan fé til uppreisnarmannanna. 8.12.2004 00:01