Innlent

Konukot opnað á afmælinu

Haldið er upp á 80 ára afmæli Rauða kross Íslands í dag. Í tilefni dagsins verður m.a. opnað formlega svonefnt Konukot, en það er næturathvarf fyrir heimilislausar konur. Á vef Rauða krossins kemur fram að mikil vöntun hafi verið á athvarfi fyrir heimilislausar konur. Konukot verður rekið af Reykjavíkurdeild Rauða krossins, en Félagsþjónustan í Reykjavík lagði til rekstursins húsnæði að Eskihlíð 4. Athvarfið verður opið alla daga frá níu á kvöldin til klukkan tíu að morgni. Þar er þvotta- og hreinlætisaðstaða fyrir næturgesti og boðið upp á létta máltíð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×