Innlent

Samgöngur til Vestmannaeyja

Á Alþingi hafa þingmenn lýst yfir áhyggjum yfir versnandi samgöngum við Vestmannaeyjar, en strandsiglingum Eimskips lauk 1. desember. Óskar Stefánsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, segist trúa að það sé þess virði að kanna hugmyndir um jarðgöng til Vestmannaeyja nánar. "Ég tel að göng geti verið til hagsbóta fyrir allt þjóðfélagið þegar fram líða stundir og ekki síst fyrir Vestmannaeyinga. Sjálfur fer ég því miður alltof sjaldan út í Eyjar, en það kemur fyrir." Óskar vonar að endalok strandflutninga eigi ekki eftir að bitna á landsbyggðinni. "Þjóðvegirnir hafa á síðustu árum batnað mikið og ég vona að þetta verði til hagsbóta fyrir landsbyggðarfólkið, það fái vörurnar sínar fyrr en ella. Samgöngur til flestra þessara staða hafa batnað, en við búum í erfiðu landi og veður geta verið válynd og ekki útilokað að vegir lokist í snjó." Óskar segist vera almennt hlynntur göngum á landsbyggðinni. "Ég tel að þeim fylgi meira viðhald og áhættusamara geti verið til lengri tíma litið að leggja fjallvegi. Ég held að í flestum tilfellum borgi það sig að gera göng í gegnum fjöll sé þess nokkur kostur." Sjálfur er Óskar landsbyggðarmaður, fæddur og uppalinn í Eyjafirðinum, en hefur þó ekki sterkar skoðanir á Héðinsfjarðargöngunum. "Ég hef ekki kynnt mér það mál mikið. Göng yrðu vissulega mikil samgöngubót þarna á milli, en mér finnst hugmyndir um aðra staðsetningu ganganna alveg koma til greina."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×