Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir engan hafa verið í lífshættu Páll Björnsson, sýslumaður á Höfn í Hornafirði, segir að hætt hafi verið að rannsaka sprenginguna sem samgönguráðherra sprengdi í Almannaskarðsgöngunum í byrjun október. Hann segir ljóst að menn hafi ekki verið í lífshættu. Hann segir einnig að frumrannsókn hafi verð gerð og verði einhverjir eftirmálar séu gögnin á vísum stað. 28.10.2004 00:01
Sigurður kveður Sigurði G. Guðjónssyni, framkvæmdastjóra Norðurljósa og útvarpsstjóra Íslenska útvarpsfélagsins, var sagt upp störfum eftir tæplega þriggja ára starf á miklum umbrota- og átakatímum í sögu félagsins. 28.10.2004 00:01
200 grömm af hassi í pósti Rúmlega tvítugur maður var handtekinn eftir að hafa móttekið póstsendingu með um 200 grömmum af hassi á pósthúsinu á Flateyri í fyrradag. 28.10.2004 00:01
Fjörtíu árekstrar Í Kópavogi hafði orðið 21 árekstur frá klukkan átta til klukkan fimm í gær. Minniháttar meiðsl urðu í tveimur óhöppunum. Nítján árekstrar höfðu orðið í Reykjavík frá klukkan sjö í gærmorgun til klukkan fimm. 28.10.2004 00:01
Skilorð fyrir kinnbeinsbrot Tvítugur maður var í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og skjalafals. 28.10.2004 00:01
Skriður í viðræðum sjómanna og LÍÚ Auknar líkur virðast á því að kjarasamningar náist milli sjómanna og útvegsmanna. Samninganefnd Sjómannasambands Íslands hefur verið boðuð til fundar í húsi ríkissáttasemjara í dag. Sævar Gunnarssonar, formaður sambandsins, segir að menn eigi í viðræðum og því séu líkur til þess að menn nái saman. Tæp tíu ár eru síðan sjómenn og útvegsmenn náðu síðast samkomulagi um kjarasamning. 28.10.2004 00:01
Olíuhækkun dýrkeypt fyrir útveginn Hækkun á verði olíu á þessu ári hefur haft mikil áhrif á rekstrarafkomu sjávarútvegsins að sögn Björgólfs Jóhannssonar, formanns Landssambands íslenskra útvegsmanna. Hann sagði við setningu ársfunds samtakanna í gær að hækkun á olíureikningi útgerðarinnar síðustu tólf mánuði nemi rúmum 2,5 milljörðum króna. 28.10.2004 00:01
Dýrustu kosningar sögunnar Kosningarnar í ár verða þær dýrustu í bandarískri stjórnmálasögu og peningar skipta höfuðmáli í kosningabaráttunni. Ingólfur Bjarni Sigfússon komst að því að frambjóðendurnir þurfa að vera ríkir og safna gríðarlegum fjárhæðum til að eiga nokkra von um sigur. 28.10.2004 00:01
Bók um íslenska hestinn Yfirgripsmesta verk um íslenska hestinn sem út hefur komið leit dagsins ljós í dag. Stórbókin <em>Íslenski hesturinn</em> geymir sjö hundruð ljósmyndir á fjögur hundruð síðum um þetta einstaka hrossakyn. Stóðhesturinn Kapall frá Hofstöðum prýðir kápu bókarinnar og var honum að sjálfsögðu boðið í útgáfuveisluna í dag. 28.10.2004 00:01
Hjálparvana fórnarlömb goðsögn Fólk sem býr á hamfarasvæðum er betur til þess fallið að bregðast við vá en erlendar björgunarsveitir. Það þarf að styrkja íbúa slíkra svæða til sjálfsbjargarviðleitni og eyða goðsögninni um hin hjálparvana fórnarlömb. 28.10.2004 00:01
Endurskoða málefni útlendinga Félagsmálaráðherra segir að ákvæði í lögum um atvinnuréttindi útlendinga orki tvímælis. Dómsmála- og félagsmálaráðherra hafa rætt um að endurskoða málefni útlendinga sem heyra undir bæði ráðuneytin. 28.10.2004 00:01
Niðurskurður LSH óhjámkvæmilegur Óhjákvæmilegt er að draga úr núverandi þjónustu Landsspítala - háskólasjúkrahúss til að ná fram um 600 milljóna sparnaði á næsta ári. Stjórnarnefnd sjúkrahússins kynnti hugmyndirnar sínar að niðurskurði innan spítalanna á fundi með heilbrigðisráðherra í gær. 28.10.2004 00:01
Misréttið jarðsett Fimmtán mannúðarfélög boðuðu til táknrænnar athafnar á Arnarhóli í gær þar sem misrétti breitt gegn konum að hálfu réttarkerfisins var jarðsett. Fjölmargir hlýddu á ávarp Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty. 28.10.2004 00:01
Arafat fluttur á sjúkrahús í París Ákveðið var í gærkvöldi að fljúga með Jasser Arafat, forseti heimastjórnar Palestínu, til Parísar. Þar mun Arafat, sem hefur verið mikið veikur undanfarið, leggjast inn á sjúkrahús til læknismeðferðar. 28.10.2004 00:01
Ástæða til að endurskoða reglurnar Fyllsta ástæða er að skoða reglur Kópavogsbæjar um úthlutun á byggingarétti í framhaldi af því að Byggingarfélaginu Viðari ehf. var úthlutað lóð og fyrirtækið síðan selt hæstbjóðanda skömmu seinna. Þetta segir Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. 28.10.2004 00:01
Festu sig við Landmannalaugar Björgunarsveitarmenn komu fjórum erlendum ferðamönnum til hjálpar eftir að þeir höfðu fest bíl sinn á leiðinni frá Eldgjá að Landmannalaugum í gærdag. Einn ferðamaðurinn hélt fótgangangandi upp í Landmannalaugar og hringdi þaðan á aðstoð undir kvöld og var björgunarsveit þá strax send af stað. 27.10.2004 00:01
Fleiri Bretar til Bagdad Bretar byrjuðu í morgun að flytja hluta herliðs síns frá Basra í Suður-Írak í átt til Bagdad, að ósk Bandaríkjamanna en í óþökk fjölmargra breskra þingmanna, þeirra á meðal þingmanna úr Verkamannaflokki Tonys Blairs forsætisráðherra. Mun friðvænlegra hefur verið í Basra en í Bagdad og mannfall þar hverfandi miðað við í höfuðborginni. 27.10.2004 00:01
Samkomulag undirritað fyrir austan Oddvitar L-lista félagshyggjufólks og D lista sjálfstæðisflokks undirrituðu í gærkvöldi samkomulag um meirihlutasamstarf í hinu nýja sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Soffía Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir að nýtt stjórnskipulag verði tekið í notkun sem kallar á töluverðar breytingar, bæði hjá kjörnum fulltrúum og starfsmönnnum bæjarfélagsins. 27.10.2004 00:01
Enn jarðskjálftar í Japan Hús hrundu þegar jarðskjálftar riðu yfir norðurhluta Japans í morgun en engar fregnir hafa borist af manntjóni. Aðstæður í Japan voru vægast sagt slæmar í morgun þegar skjálftarnir riðu yfir. Yir hundrað þúsund manns hafast við í hjálparskýlum og hús eru illa farin eftir skjálftana um helgina og á mánudaginn. 27.10.2004 00:01
Funda hjá sáttasemjara á morgun Samningamenn kennara og sveitarfélaganna hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara á morgun en þeir áttu fund með sáttasemjara í gær. Eftir þann fund létu þeir ekkert uppi um gang viðræðna. Í dag hittast samningamenn sveitarfélaga og félags skólastjórnenda hjá Ríkissáttasemjara. 27.10.2004 00:01
Barroso dró tillöguna til baka Romano Prodi og stjórn hans mun verða áfram við stjórnvölinn innan framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eftir að Jose Manuel Barroso, væntanlegur formaður framkvæmdastjórnarinnar, tók til baka tillögu sína um skipun 25 manna stjórnar sambandsins nú fyrir stundu. 27.10.2004 00:01
Bílvelta skammt frá Húsavík Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar bíllinn valt á hvolf út af þjóðveginum skammt frá Húsavík í gær í krapa og hálku. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Húsavík en útskrifaður eftir aðhlynningu. 27.10.2004 00:01
Lánuðu Bandaríkjamönnum hertól Komið er í ljós að norsk stjórnvöld, sem sögðust á sínum tíma vera andvíg innrásinni í Írak, lánuðu Bandaríkjaher laser-ljósabúnað til að velja skotmörk, og ýmis önnur hertól, og sendu þau til Kúveit aðeins nokkrum dögum fyrir innrásina. Málið þykir því hið vandræðalegasta fyrir Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra og ríkisstjórn hans. 27.10.2004 00:01
Fimmfaldast tekjur af álverinu? Tekjur Hafnarfjarðarbæjar af álverinu í Straumsvík myndu ríflega fimmfaldast ef fasteignaskattur yrði tekinn upp og álverið verður stækkað eins og fyrirhugað er að gera. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn bæjarráðsmanna Sjálfstæðisflokksins um tekjur af álverinu í Straumsvík og Víkurfréttir greina frá í dag. </font /> 27.10.2004 00:01
Vilja ekki verja Milosevic Verjendur Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hafa óskað eftir því að verða leystir frá störfum og vilja ekki verja hann lengur í réttarhöldunum yfir honum hjá alþjóðastríðsdómstólnum í Haag. Talsmenn dómstólsins greindu frá þessu í morgun. 27.10.2004 00:01
Prodi segist halda áfram Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, hefur samþykkt að gegna starfinu áfram „að svo stöddu“, eins og hann orðaði það, en Jose Manuel Barroso, væntanlegur formaður framkvæmdastjórnarinnar, dró til baka tillögu sína um skipun 25 manna stjórnar sambandsins fyrr í morgun. 27.10.2004 00:01
Málefnafátækt hjá Bush og Kerry Málefnafátækt og hörð gagnrýni á andstæðinginn einkennir kosningaáróður þeirra George Bush og Johns Kerrys þessa síðustu daga fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Í lykilríkjum er munurinn á fylgi þeirra nánast enginn svo að þeir grípa til örþrifaráða í von um að koma höggi á andstæðinginn. 27.10.2004 00:01
Skólastjórar enn á fundi Skólastjórar eru nú á fundi hjá ríkissáttasemjara en samningar þeirra eru lausir eins og samningar kennara. Fundur þeirra hófst klukkan hálf ellefu. Skólastjórar hafa ekki boðað til aðgerða svo sem verkfalls. Næsti fundur í deilu grunnskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna verður klukkan átta í fyrramálið. 27.10.2004 00:01
Mikill titringur í Noregi Komið er í ljós að norsk stjórnvöld, sem sögðust á sínum tíma vera andvíg innrásinni í Írak, lánuðu Bandaríkjaher leysiljósabúnað til að velja skotmörk og sendu þau til Kúveits aðeins nokkrum dögum fyrir innrásina. Mikill titringur er í Noregi vegna málsins. 27.10.2004 00:01
Almyrkvi í nótt Almyrkvi á tungli verður í nótt og má búast við mikilfenglegu sjónarspili. Almyrkvi er þegar tunglið gengur inn í skugga jarðar og jörðin er stödd á milli sólar og tungls. 27.10.2004 00:01
Fanga neitað um geðhjálp Stjórn Geðhjálpar segir að dæmdum einstaklingi í fangelsi, sem gert hefur ítrekaðar sjálfsvígstilraunir, sé neitað um nauðsynlega geðheilbrigðisþjónustu. Þess í stað hafi hann verið vistaður í einangrunarklefa í fangelsinu. Stjórnin lýsir þungum áhyggjum vegna úrræðaleysis í málefnum geðsjúkra fanga. 27.10.2004 00:01
Buttiglione enn fulltrúi Ítalíu Utanríkisráðherra Ítalíu, Franco Frattini, segir Rocco Buttiglione enn vera fulltrúa Ítalíu í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mun ræða við Jose Manuel Barroso, væntanlegan formann framkvæmdastjórnarinnar, um deiluna sem upp er risin innan ESB. 27.10.2004 00:01
Semjið strax! „Réttið hlut grunnskólans og semjið strax!“ er yfirskrift funda sem haldnir verða í framhaldsskólum milli klukkan 10 og 12 á morgun. Fundarefnið verður yfirstandandi kjaradeila grunnskólans. 27.10.2004 00:01
Sviss í Schengen Sviss gekk í dag formlega inn í Schengen-samtarfið en full þátttaka hefst ekki fyrr en á árinu 2007. Þá tekur Sviss þátt í Dyflinnarsamstarfi Evrópusambandsins ásamt Íslandi og Noregi um hvaða ríki skuli fara með umsókn um pólitískt hæli sem borin er fram í einhverju aðildarríkjanna. 27.10.2004 00:01
Mótmælafundur á Austurvelli Eftir tæpa klukkustund, eða klukkan fjögur, hefst mótmælafundur Heimilis og skóla á Austurvelli þar sem verkfalli grunnskólakennara verður mótmælt og hvetja samtökin foreldra og börn til að mæta. Stutt ávörp verða flutt, söngvar sungnir og ljóð um börn lesin upp. 27.10.2004 00:01
Gæsluvarðhald til 3. desember Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni vegna tilraunar til stórfellds fíkniefnasmygls. Maðurinn tengist stóru máli sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu og snýst um umfangsmikið smygl á amfetamíni og LSD meðal annars. Hæstiréttur staðfestir að maðurinn skuli vera í gæslu allt til 3. desember. 27.10.2004 00:01
Osta- og tímaritaþjófur fær dóm Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega fertugan karlmanna í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela oststykki fyrir 286 krónur og tímariti fyrir 1.425 krónur. Dómurinn er skilorðsbundinn. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil og rauf með tímarits- og ostaþjófnaðinum skilorð og var það dæmt með. 27.10.2004 00:01
Engin leið að spá um úrslitin Úrslitin í forsetakosningunum í Bandaríkjunum ráðast að líkindum í nokkrum lykilríkjum og þar er tvísýnan ennþá meiri en annars staðar. Í tveimur þeirra ríkja sem að líkindum munu ráða miklu um hver verður næsti forseti Bandaríkjanna er engin leið að sjá hvorum vegnar betur. 27.10.2004 00:01
Ábyrgir feður skora á deiluaðila Félag ábyrgra feðra skorar á deiluaðila að binda endi á verkfall grunnskólakennara sem fyrst og skorar á alla feður, hvort sem þeir eru í hjónbandi, sambúð eða forsjárlausir, að veita börnum sínum allan mögulegan stuðning á meðan á verkfallinu stendur. 27.10.2004 00:01
Flóki drap ekki féð "Það er rangt að Flóki hafi drepið fé sitt úr hor," segir Ragnar Guðmundsson á Brjánslæk. Honum er annt um mannorð Hrafna-Flóka sem hafðist við á Brjánslæk í eitt ár á sinni tíð en þá hét Brjánslækur reyndar ekki Brjánslækur heldur eitthvað allt annað eða kannski ekki neitt. 27.10.2004 00:01
Bolvíkingar gera út togara Togarinn Kolbeinsey kom til Bolungarvíkur í dag en skipið mun leggja upp hjá Bakkavík í Bolungarvík og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem togari er gerður út frá bæjarfélaginu. Það er GP-útgerð á Patreksfirði sem á skipið og gerði út undir nafninu Hrafnseyri. 27.10.2004 00:01
Einstök flensutilvik ytra Inflúensa hefur enn ekki greinst í nágrannalöndunum, nema í einstökum tilvikum, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu. 27.10.2004 00:01
Lifrarbólgufaraldur í rénun Lifrarbólgufaraldur hjá hommum virðist heldur vera í rénun, að því er fram kom í viðtali við Harald Briem sóttvarnalækni hjá Landlæknisembættinu. 27.10.2004 00:01
500 manns mótmæltu á Austurvelli Töluverður mannfjöldi, eða um fimm hundruð manns að mati lögreglu, kom saman á fimmta tímanum á Austurvelli þar sem samtökin Heimili og skóli mótmæltu verkfalli grunnskólakennara. Bæði komu þar fullorðnir og börn. 27.10.2004 00:01
EMC gerir SE-VAR Partner samning við Tæknival Tæknival og bandaríska fyrirtækið EMC, stærsta fyrirtæki heims á sviði gagnageymslulausna, hafa undirritað samstarfssamning um sölu og þjónustu á EMC búnaði á Íslandi. Tæknival er eina íslenska fyrirtækið sem uppfyllir þær kröfur sem EMC gerir um þjónustu og hefur eitt íslenskra fyrirtækja beinan aðgang að EMC, en alls eru samstarfsfyrirtæki EMC sextíu talsins um heim allan. 27.10.2004 00:01