Innlent

Bílvelta skammt frá Húsavík

Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar bíllinn valt á hvolf út af þjóðveginum skammt frá Húsavík í gær í krapa og hálku. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Húsavík en útskrifaður eftir aðhlynningu. Þá slapp ökumaður ómeiddur eftir að malarflutningabíll með tengivagni valt út af veginum skammt frá Almannaskarði. Talið er að bilun hafi valdið því óhappi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×