Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Psoriasisfólki bægt frá sundstöðum Þess eru dæmi að psoriasis-sjúklingum hafi verið meinaður aðgangur að búningsklefum og böðum svo sem í almenningssundlaugum og íþróttahúsum hér á landi, að sögn Guðnýjar Axelsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga. 27.10.2004 00:01
Tíu prósent hafa þegar kosið Einn af hverjum tíu líklegum kjósendum í bandarísku forsetakosningunum hafa þegar greitt atkvæði samkvæmt skoðanakönnun fyrir fréttastofu sjónvarpstöðvarinnar ABC. Af þeim greiddu 51 prósent repúblikananum George W. Bush atkvæði en 47 prósent demókratanum John Kerry. 27.10.2004 00:01
Friðargæslan var í einkaerindum Yfirmaður íslenska friðargæsluliðsins í Kabúl var að kaupa teppi þegar sjálfsmorðsárás var gerð á friðargæsluliðana sem fylgdu honum. Friðargæsluliðar eru óánægðir með að hafa þurft að leggja sig í hættu af slíku tilefni. Utanríkisráðuneytið gerir engar athugasemdir við ferðir yfirmannsins og hefur engar upplýsingar um óánægjuna. 27.10.2004 00:01
Baldur til Karolinska Íslenski prófessorinn, Baldur Sveinbjörnsson, sem starfað hefur við háskólann í Tromsö í Noregi hefur verið ráðinn við Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi 27.10.2004 00:01
Draga misjafnan lærdóm af sögunni George W. Bush Bandaríkjaforseti og demókratinn John Kerry vitnuðu til starfa fyrrverandi forseta úr röðum demókrata og komust að sömu niðurstöðu, að andstæðingur sinn stæðist engan veginn samanburð við þá. 27.10.2004 00:01
Fagna reykingabanni Lungnalæknar fagna áformum heilbrigðisráðherra um að leggja fram frumvarp til laga á Alþingi um reyklausa vinnustaði, þar á meðal veitinga- og skemmtistaði hér á landi. 27.10.2004 00:01
Verjandi Milosevic vill hætta Verjandi Slobodans Milosevic, fyrrum Júgóslavíuforseta, hefur óskað eftir því að vera leystur frá vörn Milosevic. Steven Kay hefur áður kvartað undan því að hann geti ekki varið Milosevic vegna þess að forsetinn fyrrverandi neitar öllu samstarfi við hann auk þess sem hann eigi erfitt með að hafa upp á vitnum sem séu reiðubúin að mæta fyrir rétt. 27.10.2004 00:01
Geðsjúkur fangi í einangrun Færa þurfti mjög geðsjúkan fanga frá Sogni í einangrun á Litla - Hrauni, þar sem hann dvaldi í átta daga. Fangelsismálastofnun segir að erfitt sé að fá fanga vistaða á geðdeildum. Þeir hafi jafnvel verið sendir til baka þegar vistun hafi verið reynd. </font /></b /> 27.10.2004 00:01
Framkvæmdastjórnin í uppnámi Skipan næstu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er í uppnámi eftir að Jose Manuel Barroso dró til baka tillögu sína um skipun stjórnarinnar Þá var ljóst að þingmenn myndu ekki veita framkvæmdastjórninni brautargengi vegna andstöðu þeirra við ítalska frambjóðandann sem fara á með dómsmál í framkvæmdastjórninni. 27.10.2004 00:01
Bjarga drukknum Írum upp úr á Drukknir Dyflinarbúar gera slökkviliðsmönnum í írsku höfuðborginni lífið leitt. Ástæðan er sú að í viku hverri stökkva eða falla drukknir einstaklingar fram af göngubrúm sem liggja yfir Liffey-ána sem skiptir miðborg Dyflinar í tvennt. 27.10.2004 00:01
Stofna nýja Al-Jazeera Arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera byrjar rekstur enskumælandi fréttasjónvarpsstöðvar fyrir lok næsta árs. Að sögn Nigel Parsons, eins stjórnenda fyrirtækisins, verður megináherslan á fréttaflutning frá þróunarlöndum, nokkuð sem stjórnendum Al-Jazeera finnst enskumælandi fréttastöðvar hafa sinnt of lítið. 27.10.2004 00:01
Tugir bíða fjármálaráðgjafar Samtals eru nú 54 á biðlista eftir fjármálaráðgjöf hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, að sögn Ástu Helgadóttur forstöðumanns.</font /> 27.10.2004 00:01
Nauðungarhjónabönd verði refsiverð Breska stjórnin ætlar að skoða möguleika á að gera það refsivert að neyða fólk í hjónaband, sagði David Blunkett innanríkisráðherra Bretlands. Hann sagði stjórnvöld líka ætla að hækka lágmarksaldur fólks sem fengi að koma til landsins sem makar þeirra sem fyrir eru í Bretlandi. 27.10.2004 00:01
Stríðsglæpamaður til Danmerkur Serbneskur stríðsglæpamaður verður fluttur til Danmerkur þar sem hann afplánar átján ára dóm sem Alþjóðlegi refsidómstóllinn fyrir fyrrverandi Júgóslavíu kvað upp yfir honum vegna stríðsglæpa í borgarastríðinu á síðasta áratug. Hann er fyrsti stríðsglæpamaðurinn sem er fluttur til Danmerkur til afplánunar að því er fram kemur á vef Information. 27.10.2004 00:01
Heimasíðan bara fyrir Bandaríkin Það þýðir lítið fyrir áhugamenn um bandarísk stjórnmál utan Bandaríkjanna að reyna að sækja sér upplýsingar um George W. Bush Bandaríkjaforseta á heimasíðu hans. Heimasíðunni var á dögunum lokað fyrir allri umferð frá löndum utan Bandaríkjanna að því er virðist til að minnka álag á hana. 27.10.2004 00:01
Stóriðja rúmast ekki innan Kyoto Áætlanir um að reisa álver á Norðurlandi standast ekki ef tekið er tillit til skuldbindinga Íslands í Kyoto-sáttmálanum um takmörk við losun gróðurhúsalofttegunda. Rússar hafa staðfest samninginn og þar með verður hann bindandi frá árinu 2008 til 2013. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir að nýtt álver verði aldrei minna en 300.000 tonn og því megi gera ráð fyrir að gróðurhúsalofttegundir frá því rúmist ekki innan skuldbindinga. 27.10.2004 00:01
Kerry kvartar og kveinar John Kerry, forsetaframbjóðandi demókrata, segir að bandaríska þjóðin eiga skilið að fá leiðtoga sem viti hvernig á að tryggja öryggi landsins. George Bush forseti segir að Kerry skorti framtíðarsýn og kvarti bara og kveini. 27.10.2004 00:01
Glæpur skekur fíkniefnalögreglu Loft var lævi blandið í dómsal 101 í héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar sótti ákæruvaldið Hall Hilmarsson, fyrrverandi lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild lögreglunnar, til saka. Vitnin gegn honum og um leið ásakendur voru fyrrverandi samstarfsmenn hans hjá fíkniefnadeildinni. 27.10.2004 00:01
Yfirmaður sakaður um aðgæsluleysi Friðargæsluliðarnir íslensku sem urðu fyrir sjálfsmorðsárás í Kabúl síðastliðinn laugardag höfðu beðið yfirmanns síns fyrir utan teppaverslun á Chicken street í klukkustund þegar árásin var gerð. Heimildir Fréttablaðsins herma að friðargæsluliðarnir hafi verið uggandi og hafi hafi fjórum sinnum reynt að reka á eftir yfirmanni sínum enda hefði þeim verið ljóst að þessi gata væri talin afar hættuleg. 27.10.2004 00:01
Risarækjueldi heppnast vel Fyrsta risarækjan úr tilraunaeldi Orkuveitu Reykjavíkur er fullvaxin og tilbúin til átu. Orkuveitan ætlar nú að ræða við áhugasama sem eru tilbúnir að halda áfram með eldið. 27.10.2004 00:01
Hert eftirlit í Bandaríkjunum Milljónir ferðamanna, þar á meðal Íslendingar, verða héðan í frá stöðvaðir við vegabréfeftirlit í Bandaríkjunum og meðal annars tekin af þeim andlitsmynd. Ferðamenn þurfa að framvísa rafrænum vegabréfum með tölvurönd til að komast inn í landið án áritunar. Allt er þetta liður í baráttunni gegn hryðjuverkum. 27.10.2004 00:01
Mótmæli á Austurvelli "Hæ, ég heiti Pálmi. Ég er í fyrsta bekk og mér langar að fara í skólann af því að það er svo gaman þar. Þegar ég fer aftur í skólann þá byrja ég að lækna. Takk fyrir," sagði nemandi í 1. bekk á útifundi Heimilis og skóla á Austurvelli í gær. 27.10.2004 00:01
Bíða félagsdóms Áhöfn skipsins Sólbaks starfar undir sérsamningi útgerðar dótturfyrirtækis Brims þar til dómur fellur í félagsdómi. 27.10.2004 00:01
Miðlunartillaga lausn verkfallsins Miðlunartillaga frá ríkissáttasemjara er vænlegasta leiðin til að ljúka verkfalli kennara, segir Gunnar I. Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis og formaður bæjarráðs Kópavogs. 27.10.2004 00:01
Ekki meira maraþonþras Nú væri nóg komið var viðkvæði foreldra og barna sem mótmæltu verkfalli kennara á útifundi Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra á Austurvelli í gær. 27.10.2004 00:01
ESB í úlfakreppu Evrópusambandið er í úlfakreppu eftir að Jose Manuel Barroso, tilvonandi forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, hætti á síðustu stundu við að skipa nýja framkvæmdastjórn í dag. Fordómar í garð samkynhneigðra og einstæðra mæðra valda þessari kreppu. 27.10.2004 00:01
Betra ef Bush ynni Utanríkismál hafa skipað stóran sess í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum en þegar grannt er skoðað kemur í ljós að stefna frambjóðendanna tveggja í málaflokknum er ekki svo ýkja ólík. Almennt er talið að það kæmi sér betur fyrir íslensk stjórnvöld ef George Bush yrði endurkjörinn. 27.10.2004 00:01
Arafat meðvitundarlaus Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, féll niður meðvitundarlaus fyrr í kvöld að því er CNN og Reuters greina frá. Ekki hafa borist fregnir af því hvort hann sé kominn aftur til meðvitundar. Hinn 75 ára gamli Arafat hefur verið mjög heilsulaus undanfarna daga en ekki er vitað nákvæmlega hvað amar að honum. 27.10.2004 00:01
Lúskraði á konunni og heldur barni Kjartan Ólafsson, sem var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að misþyrma eiginkonu sinni en fékk enga refsingu, neitar að afhenda konunni barn þeirra hjóna þó konunni hafi verið dæmt forræði til bráðabirgða. 27.10.2004 00:01
Kærasti misþyrmdi henni hroðalega Systkini Birgittu Írisar Harðardóttir, sem lést úr of stórum eiturlyfjaskammti á Lindargötu fyrir rúmu ári, segja þrautagöngu hennar hafa byrjað þegar foreldrarnir létust með stuttu millibli þegar Birgitta var 12 ára. Fyrrverandi unnusti, Sverrir Hannesson, fékk þriggja ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma Birgittu hroðalega. 27.10.2004 00:01
Engin sálgæsla fyrir hina dæmdu Enginn hefur eftirlit með sálarheill þeirra manna sem hljóta þunga dóma og hefja ekki afplánun strax, þótt mikil hætta sé á sjálfsvígi eftir að dómur er kveðinn upp. Fangelsismálastofnun, dómstólar og lögregla segja öll að það sé ekki hlutverk þeirra að sinna slíkri sálgæslu. 27.10.2004 00:01
Áfram í gæsluvarðhaldi Gæsluvarðhald yfir 48 ára manni, sem skar leigubílstjóra á háls í lok júlí, hefur verið framlengt til áttunda desember. 27.10.2004 00:01
Fastir á hálendinu Bandarískir ferðamenn sem ferðuðust um Jökuldali á jeppa sátu fastir í bílnum í nokkuð langan tíma í fyrradag. Einn ferðalanganna gekk í nokkra klukkutíma inn í Landmannalaugar þar sem hann komst í talstöð og náði að kalla á hjálp. 27.10.2004 00:01
Glerhált fyrir austan Glerhált var í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum í gær og mikið var um útafakstur sem hafi þó í flestum tilfellum verið minniháttar og ekki komið beint við sögu lögreglunnar. 27.10.2004 00:01
Fartölvu stolið Fartölvu var stolið úr bíl sem stóð við sundlaugina við Glerárskóla á Akureyri. 27.10.2004 00:01
Psóríasis veldur miklum óþægindum Langflestir psóríasissjúklingar verða fyrir verulegum óþægindum af völdum sjúkdómsins og haga daglegu lífi sínu eftir dyntum hans. Þetta sýna nýjar rannsóknir sem kynntar voru í dag. 27.10.2004 00:01
Harma ásakanir á embættismenn Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og byggingarnefnd fengu ekki að leggja fram bókun í nefndinni í gær, þar sem ásakanir R-listans á einstaka embættismenn borgarinnar í fjölmiðlum voru harmaðar. 27.10.2004 00:01
Óvissa um höfuðkúpu Mozarts Réttarlæknar hafa grafið upp beinagrindur ættingja Wolfgangs Amadeusar Mozart til að taka lífsýni. 27.10.2004 00:01
Koizumi lætur ekki undan þrýstingi Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, ætlar ekki að láta undan þrýstingi íraskra mannræningja sem hafa hótað að taka 24 ára gamlan Japana af lífi ef japanskir friðargæsluliðar fara ekki úr landinu. 27.10.2004 00:01
Spánverjar vilja Gíbraltar Utanríkisráðherrar Spánar og Bretlands munu ræða framtíð Gíbraltar á fundi sínum í Madríd í fyrsta skiptið síðan árið 2002. Löndin hafa deilt um yfirráð yfir Gíbraltar í 300 ár. 27.10.2004 00:01
Fundu nýja tegund fornmanna Vísindamenn telja sig hafa fundið nýja tegund manna á Indónesísku eyjunni Flores. Talið er að tegundin hafi verið uppi á sama tíma og homo sapiens en dáið út fyrir um 12 þúsund árum. Nýja tegundin hefur hlotið nafnið homo floresiensis. 27.10.2004 00:01
Hefur hvarf sprengiefnanna áhrif Hvarf hátt í fjögur hundruð tonna af mjög öflugu sprengiefni úr vopnageymslu í Írak, sem meðal annars má nota til að koma af stað kjarnasprengju, er að verða hitamál í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. John Kerry sakar Bush forseta um að stefna hernámsliðinu í hættu með því að hafa ekki látið hafa gætur á geymslunni. 26.10.2004 00:01
Voru efnin horfin fyrir löngu? Fréttalið frá NBC fréttastofunni greindi í morgun frá því að sprengiefnin, sem geymd voru í al-Qaqaa vopnageymslunni í Írak og eru horfin, hafi verið horfin þaðan þegar hópurinn kom þangað í fylgd með bandarískum hermönnum daginn eftir að Bagdad féll í hendur innrásarliðsins. 26.10.2004 00:01
Fundur á eftir Deilendur í kennaradeilunni hafa verið boðaðir til fundar hjá Ríkissáttasemjara í dag, meira en viku fyrr en ætlað var. Samninganefnd grunnskólakennara, stjórn Kennarasambandsins og formenn svæðafélaga áttu með sér fjögurra klukkustunda fund í gær og ætlar samninganefndin að halda undirbúningsfund fyrir hádegi. 26.10.2004 00:01
Kolmunnaveiðin á uppleið Kolmunnaveiðin fyrir austan land hefur glæðst á ný, svo um munar, og hafa að minnsta kosti sex skip landað afla á Seyðisfirði og í Neskaupsstað síðustu þrjá sólarhringana. Landað hefur verið víðar og segja sjómenn að mokveiði sé á miðunum. Um tíma virtist botninn dottinn úr veiðunum og fundu skipin ekkert, þrátt fyrir mikla leit, en nú hefur ræst úr á ný. 26.10.2004 00:01