Innlent

Bolvíkingar gera út togara

Togarinn Kolbeinsey kom til Bolungarvíkur í dag en skipið mun leggja upp hjá Bakkavík í Bolungarvík og er þetta í fyrsta sinn í mörg ár sem togari er gerður út frá bæjarfélaginu. Það er GP-útgerð á Patreksfirði sem á skipið og gerði út undir nafninu Hrafnseyri. Skipið er ekki alveg ókunnugt Bolvíkingum því það var á árum áður gert þaðan út undir nafninu Kolbeinsey. Skipið fer væntanlega í sína fyrstu veiðiferð fyrir Bolvíkinga eftir tvo daga. Það verður gert út á rækju og grálúðu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×