Innlent

Misréttið jarðsett

Fimmtán mannúðarfélög boðuðu til táknrænnar athafnar á Arnarhóli í gær þar sem misrétti breitt gegn konum að hálfu réttarkerfisins var jarðsett. Fjölmargir hlýddu á ávarp Jóhönnu K. Eyjólfsdóttur, framkvæmdastjóra Íslandsdeildar Amnesty, sem sagði að yfirvöldum bæri skylda til að tryggja vernd kvenna gegn hvers konar misrétti og ofbeldi. Það væri þó í höndum allra að stöðva ofbeldi. Jóhanna sagði að yfirvöld kæmust upp með að draga ofbeldismenn ekki til saka: "Réttarkerfið er gegnsýrt þeirri hugsun að [konur] séu sjálfar ábyrgar fyrir ofbeldinu, að þær hafi hvatt til ofbeldisins eða komið því af stað með hegðun sinni." Þar vísar Jóhanna meðal annars í margumræddan dóm Héraðsdóms Reykjaness þar sem refsingu í heimilisofbeldismáli var frestað. Látið var að því liggja að kona hefði unnið til ofbeldis gegn sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×