Fleiri fréttir

Nauðlenti vegna sprengjuhótunar

Farþegaflugvél gríska flugfélagsins Olympic Airlines nauðlenti á Stansted-flugvelli í London nú síðdegis eftir að hringt hafði verið í dagblað í Grikklandi og tilkynnt að sprengja væri um borð í vélinni. Tvö hundruð nítíu og þrír farþegar voru um borð ásamt tólf manna áhöfn.

Tveir hafa látist á Flórída

Að minnsta kosti tveir hafa látist á Flórída í dag en fellibylurinn Jeanne gekk þar á land snemma í morgun. Jeanne er fjórði fellibylurinn sem gengur yfir Flórídabúa á örfáum vikum.

Vatnsskortur úr sögunni að sinni

Í gær tókst að gera við aðra leiðsluna sem flytur vatn frá fastalandinu til Vestmannaeyja. Neysluvatn streymir nú til Eyja og ótti þeirra við vatnsskort er úr sögunni, í bili að minnsta kosti. 

Enn neyðarástand á Haítí

Á Haítí gætir ennþá áhrifa þess þegar Jeanne reið þar yfir. Þar hafa óeirðir og slagsmál brotist út vegna skorts á matvælum og drykkjarvatni. Friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna urðu að skjóta upp í loft til að hrekja frá múg manna sem réðst á flutningabíla fyllta neyðarbirgðum.

Störfum fækkar jafnt og þétt

Erfiðleikar eru í atvinnumálum Siglufjarðar. Gífurlegur samdráttur á undanförnum árum, segir formaður verkalýðsfélagsins. Verðum að vera bjartsýn, segir formaður bæjarráðs. </font /></b />

Kemur ef hann kemur

Íbúar Miami á suðurodda Florída kipptu sér vart upp við fellibylinn Jeanne í fyrrinótt og gærmorgun. Hann gekk enda yfir nokkuð norðan við borgina og lét finna fyrir sér í grennd við Fort Pierce og Okeechobee. </font /></b />

Of lítið samráð innan Framsóknar

Tveir þingflokksfundir hafa verið afboðaðir hjá Framsóknarflokknum undanfarna viku þar sem tilkynna átti um breytingar á nefndarsetum þingmanna. Sumir þingmanna flokksins telja of lítið samráð hafa verið haft við þingmenn vegna málsins en endanleg ákvörðun verður tilkynnt á þingflokksfundi á þriðjudag.

Mótmælir orðum og athöfnum

Erla Gunnarsdóttir, skólastjóri Safamýrarskóla, er óhress með að forysta Kennarasambandsins noti nafn skólans til að réttlæta og styðja ákvörðun fulltrúa síns í undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga. </font /></b />

Olíulykt af heita vatninu

Héraðsbúum brá sumum í brún á dögunum þegar olíufnyk lagði af heita vatninu úr krönum þeirra. Skipt var um dælu í einni af borholum Hitaveitu Egilsstaða og Fella og var notast við sérstaka feiti til að skrúfa dæluna saman. Liggur þar hundurinn grafinn. Fnykinn lagði af feitinni. </font /></b />

Nota sér neyðarástand fatlaðra

Neyðarástand hjá fjölskyldum fatlaðra barna er notað sem vopn í kjarabaráttu kennara. Þetta segir formaður Þroskahjálpar sem einnig spyr hvers vegna undanþágunefnd, sem ekki veitir undanþágur, starfi yfirleitt. 

Höfnun beiðnanna óskiljanleg

Skólastjóri Safamýrarskóla, sérskóla fyrir fyrir börn með alvarlega fjölfötlun, segir óskiljanlegt að fulltrúi kennara í undanþágunefnd skuli hafa hafnað beiðni um undanþágu til kennslu. Ekki síst í ljósi þess að fulltrúinn er sérkennari og starfar í Safamýrarskóla.

Fjórði bekkur í samræmd próf?

Óvissa er um samræmd próf fjórða bekkjar í 180 grunnskólum sveitarfélaganna. Prófa á börnin í stærðfræði og íslensku dagana 10. og 12. október.

Fá börn í dagvistun

Fá börn í Hornafirði sækja í Hafnarskóla eftir klukkan tvö á daginn þó starfsemi dagvistunarinnar sé í fullum gangi. Um 400 börn sitja heima vegna verkfalls kennara.

Enginn varanlegur skaði

Barnasálfræðingur segir ólíklegt að verkfall valdi fötluðum börnum varanlegum skaða. Þau geti þó þurft sinn tíma til að jafna sig. Móðir fatlaðs drengs segir stöðuna vonlausa til lengri tíma. </b />

Ísraelar teygja sig til Sýrlands

Bílasprengja grandaði einum leiðtoga Hamas-samtakanna í Damaskus í Sýrlandi viku eftir að Ísraelar gáfu út viðvörun um að yfirmönnum herskárra múslima yrði þar ekki vært.</ />

Undrast ásakanir kennara

Formaður samninganefndar sveitarfélaganna undrast ásakanir forsvarsmanna kennara um að loðið orðalag hafi rýrt gildi samninga sem kennarar gerðu við sveitarfélögin árið 2001. Hann segir ekki hægt að lofa því að komið verði til móts við kennara á fimmtudaginn, haldi þeir áfram tali um ófrávíkjanlegar kröfur.

Fjórði fellibylurinn á sex vikum

Fjórði fellibylurinn á sex vikum gerði Flórídabúum lífið leitt í dag. Fellibylurinn Jeanne lagði í rúst það sem björgunarsveitir voru enn að reyna að bæta eftir yfirreið síðasta byls.

Blóðug borgarastyrjöld framundan?

Blóðug borgarastyrjöld gæti brotist út í Súdan takist ekki að semja frið í Darfur-héraði innan skamms. Hundruð þúsunda flóttamanna halda enn til í flóttamannabúðum og fleiri eru á leiðinni.

Heita herferð gegn Síonistum

Hefndum er heitið fyrir drápið á einum leiðtoga Hamas-samtakanna í Sýrlandi í morgun. Hamas heitir herferð gegn Síónistum um allan heim.

Keppt í samlokugerð

Samloka er ekki bara tvær brauðsneiðar með áleggi sem búið er að skella saman. Það kom í ljós í hörkuspennandi keppni í samlokugerð sem fram fór í dag, þeirri fyrstu sinnar tegundar hér á landi. 

Breytingar breytinganna vegna

Forsvarsmenn íþróttahreyfinga Reykjavíkur óttast að breytingar á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar dragi úr fjármagni til íþrótta- og tómstundamála sé litið til lengri tíma, segir Ragnar Reynisson formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur.

Ríkið leysi deiluna úr sjálfheldu

Sífellt fleiri sveitarstjórnarmenn telja að ekki sé hægt að leysa kjaradeilu kennara nema að ríkið auki tekjur sveitarfélaganna. Talið er að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti ekki nægilegri hörku í viðræðum við ríkið.

Fréttahaukur hleypur á sig

Dan Rather, fréttamaður hjá CBS, gerði alvarleg mistök í umfjöllun sinni um Bandaríkjaforseta þegar hann birti fölsuð minnisblöð um herþjónustu hans. Hætt er við að orðstír þessa farsæla fréttamanns hafi beðið varanlegan hnekki. </font /></b />

Jeanne veldur usla í Flórída

Fellibylurinn Jeanne, sem farið hefur um Karabíska hafið undanfarna viku og valdið dauða um 1.500 manns, skall á austurströnd Flórída á miðnætti á laugardag.

Lítill vilji til lagasetningar

Lítill hljómgrunnur er meðal þingmanna fyrir því að binda enda á kennaraverkfall með lögum. Vinsti-grænir útiloka lagasetningu. Þingmenn Samfylkingar áttu fund með sveitarstjórnarmönnum í vikunni. </font /></b />

Ók á hliðstólpa

Maður ók á hliðstólpa skammt frá Bíldudal um fimmleytið á sunnudagsmorguninn. Stólpinn gekk í gegnum framrúðuna á bílnum og í höfuð ökumannsins sem hlaut af því töluverða áverka. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF, á Borgarspítalann.

Sigruðu Frakka í skák

Íslendingar voru sigursælir á árlegu skákmóti öldungadeildar franska þingsins í París um helgina. Ísland sigraði Frakkland 3-1 í landskeppni og síðan sigraði Helgi Ólafsson í hraðskákmóti fjögurra stórmeistara frá hvoru landi.

Darfur verður að fá heimastjórn

"Skýrt framsal á völdum verður að eiga sér stað í Darfur," sagði Ruud Lubbers, flóttamannafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, þegar hann hvatti til þess að íbúar Darfur fengju heimastjórn. Súdönsk stjórnvöld hafa hingað til sagst reiðubúin að semja um slíkt en hafa ekki viljað ganga jafn langt og uppreisnarmenn krefjast.

Áhyggjur af hnignun atvinnulífs

Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði lýsir þungum áhyggjum af hnignun atvinnulífs á Siglufirði í ályktun félagsfundar Vöku sem haldinn var í gær. Þar segir að störfum fækki með hverju árinu sem líði og atvinnulífið verði fábreyttara.

Átta féllu í Fallujah

Bandaríkjaher hóf enn eina stórsóknina á Fallujah í Írak í nótt. Að minnsta kosti átta eru fallnir. Með árásinni á enn einu sinni að reyna að uppræta öfgamenn í hryðjuverkahópi Abu Musab al-Zarqawi sem staðið hefur fyrir flestum voðaverkum í Írak að undanförnu.

Þörf á umbótum innan Sþ

Íslensk stjórnvöld telja að þörf sé á umbótum á skipulagi Sameinuðu þjóðanna, sérstaklega innan öryggisráðsins. Geir H. Haarde fjármálaráðherra fjallaði meðal annars um þetta í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna seint í gærkvöld í fjarveru Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra.

Ein milljón manna flýr Flórída

Tæplega ein milljón manna á Flórída í Bandaríkjunum hefur neyðst til þess að flýja heimili sín vegna fellibyljarins Jeanne en óttast er að bylurinn kunni að valda miklum usla á svæðinu. Jeanne er sá fjórði sem ríður yfir Flórída á undanförnum vikum.

Fjáröflun fyrir börn í stríði

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun hefja fjáröflunarátak Rauða krossins fyrir börn í stríði, „Göngum til góðs“, í Smáralind nú klukkan hálfellefu. Auk forsetans munu Ellert B. Schram, forseti Íþróttasambands Íslands, Kristján Sturluson, varaformaður Rauða krossins, og Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, kynna landssöfnunina.

Ölvun, hass og haglabyssa

Lögreglan á Akureyri stöðvaði ökumann á 137 kílómetra hraða á ellefta tímanum í gærkvöld við Ytri vík á Ólafsfjarðarvegi á milli Dalvíkur og Akureyrar. Ökumaðurinn sem er á fimmtugsaldri er grunaður um ölvun við akstur. Í bílnum fannst smáræði af hassi, sem og haglabyssa og skotfæri.

Mikið hvassviðri í nótt

Mikið hvassviðri var á suður- og suðvesturhorni landsins í nótt. Lögregla á Akranesi var á ferðinni og tíndi til lausamuni ásamt bæjarstarfsmönnum.

Búið að lífláta Bigley?

Breski gíslinn Kenneth Bigley, sem haldið er föngnum af mannræningjum í Írak, hefur verið tekinn af lífi samkvæmt tilkynningu sem birt var á íslamskri vefsíðu í dag. Breska utanríkisráðuneytið segist ekki taka tilkynninguna trúanlega, enda hafi vefsíðan áður birt tíðindi af gíslum í Írak sem svo hafi komið í ljós að ekki áttu við rök að styðjast.

Tíu verkfallsbrot staðfest

Um tíu fyrirtækjum og stofnunum hefur verið bent á það skriflega að það tómstundastarf sem börnum starfsmanna er boðið upp á sé verkfallsbrot. Bréfin eru frá verkfallsnefnd kennara en ekki fæst uppgefið hvaða fyrirtæki þetta eru.

Umbylting skipulags Sþ

Það þarf að umbylta skipulagi Sameinuðu þjóðanna, sérstaklega öryggisráðsins, að mati Geirs H. Haarde fjármálaráðherra sem í gær hélt ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York.

Se og hör fær dóm í Danmörku

Ritstjórar og blaðamenn danska tímaritsins <em>Se og hör</em> voru dæmdir til greiðslu sektar að andvirði tæplega átta hundruð þúsunda íslenskra króna fyrir dönskum dómstólum í gær. Blaðið fjallaði í nóvember 2002 um ástamál Önju Andersens sem er þekktasta handboltakona Danmerkur.

Gargandi þvæla segir Sveinn Andri

Alls hafa um 120 lögmenn skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við Jón Steinar Gunnlaugsson um að hann verði skipaður í stöðu hæstaréttardómara. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segist ekki vita hversu margir hafi verið beðnir um að skrifa undir áskorunina.

KSNV harmar ummæli Einars Odds

Kennarasamband Norðurland vestra, KSNV, harmar óheppileg ummæli þingmanns kjördæmisins, Einars Odds Kristjánssonar, í fjölmiðlum þar sem hann segir kennara vera að brjóta niður stefnu þjóðarinnar með kjarabaráttu sinni, eins og segir í ályktun sambandsins sem send var fjölmiðlum í dag.  

Viðgerðin í Eyjum mistókst

Viðgerð á vatnsleiðslunni til Vestmannaeyja mistókst í gær. Þetta kemur fram á fréttavefnum Eyjar.net. Sigurjón Ingólfsson, veitustjóri hjá Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum, segir í samtali við vefinn að viðgerð verði haldið áfram í dag.

Engin verkfallsbrot fyrir vestan

Kennarar á Ísafirði segjast ekki hafa orðið varir við nein verkfallsbrot þar í bæ að sögn fréttavefjarins Bæjarins besta. Aðspurðir hvort þeir telji sig njóta stuðnings almennings eða hafi orðið fyrir aðkasti segja kennarar að flestir taki máli þeirra vel.

Viðgerðum enn ólokið

Enn hefur ekki tekist að gera við vatnsleiðsluna til Vestmannaeyja sem skemmdist í fyrradag. Viðgerð sem fram fór í gær mistókst að sögn Sigurjóns Ingólfssonar, veitustjóra hjá Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum, og hafa áframhaldandi viðgerðir staðið yfir í allan dag.

Upplausn á Haítí

Aðframkomnir íbúar Haítís reyndu í gær að brjótast inn í matvælageymslur hjálparstofnana til að verða sér úti um mat og vatn. Fellibylurinn Jeanne, sem lagði norðurhéruð Haítís í rúst fyrr í vikunni, stefnir nú á Flórída-ríki þar sem hátt í milljón manns hefur flúið heimili sín.

Sjá næstu 50 fréttir