Innlent

Vatnsskortur úr sögunni að sinni

Í gær tókst að gera við aðra leiðsluna sem flytur vatn frá fastalandinu til Vestmannaeyja. Neysluvatn streymir nú til Eyja og ótti þeirra við vatnsskort er úr sögunni, í bili að minnsta kosti.  Fyrsta viðgerð annarrar leiðslunnar sem flytur neysluvatn á milli lands og Eyja mistókst í fyrradag þar sem þéttingar leiðslunnar gáfu sig. Þá voru búnar til nýjar þéttingar og segir Ívar Atlason, tæknifræðingur Hitaveitu Suðurnesja, að útlit sé fyrir að síðari bráðabirgðaviðgerðin hafi tekist vel. Hann segir að nú sé fullt streymi á neysluvatni frá fastalandinu til Eyja, birgðatankarnir séu því smám saman að fyllast og því ljóst að vatnsskortur vofi ekki lengur yfir Vestmannaeyingum. Hin leiðslan er hins vegar enn í sundur en Ívar segir að undirbúningur að varanlegri viðgerð leiðslnanna sé hafinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×