Fleiri fréttir

Samninganefndinni ekki skipt út

Formaður Kennarasambands Íslands telur ekki tímabært að skipta út samninganefnd kennara. Þá segir hann það í hendi sveitarfélaganna hvort börnum verði bættur upp sá námstími sem tapast í yfirstandandi verkfalli.

Gæta verði að mannréttindum

Gæta verður að mannréttindum í baráttunni gegn hryðjuverkum, sagði Geir H. Haarde fjármálaráðherra þegar hann ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í gær, en þar hvatti hann einnig til þess að öryggisráðið verði stokkað upp. 

Óvíst um afdrif Bigleys

Misvísandi fréttir berast um afdrif Kens Bigleys, breska gíslsins sem situr í haldi mannræningja í Írak. Bandaríkjaher gerði í morgun stórsókn á Falluja í enn einni tilrauninni til að uppræta hryðjuverkahóp Al-Zarqawis, sem er öfgahópurinn sem rændi Bigley og reyndar mörgum fleirum. 

Látið jafnt yfir alla ganga

Fulltrúi Kennarasambandsins í undanþágunefnd vegna verkfalls grunnskólakennara segist hafa hafnað öllum umsóknum um undanþágu, á þeirri forsendu að láta jafnt yfir alla grunnskólakennara ganga. Hún segir ekkert því til fyrirstöðu að sækja á ný um undanþágu, dragist verkfallið á langinn. 

Flugslys á Reykjavíkurflugvelli

Tilkynning barst um að kviknað hefði í flugvél með tugi manns innanborðs í lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Allt fór þó vel að lokum því þetta var flugslysaæfing sem á sjötta hundrað manns tók þátt í.

Ljósaperur gegn eiturlyfjanotkun

Ljósaperur með blárri birtu eru notaðar á salernum skiptistöðva Strætós við Hlemm og í Mjóddinni í Reykjavík til að gera fíkniefnaneytendum erfiðara fyrir að sprauta sig. Perurnar hafa reynst vel en töluvert ber á því að þeim sé stolið. 

Stófelldar kerfisbreytingar

Tillögur Reykjavíkurlistans um stórfelldar breytingar á stjórnkerfi borgarinnar eru nú til óformlegrar umfjöllunar meðal borgarfulltrúa. Þar er meðal annars lögð til sameining menningarmála og íþrótta- og tómstundamála.

Kennarar harma ummæli þingmanns

Ummæli Einars Odds Kristjánssonar, þingmanns Norð-vesturkjördæmis, í fjölmiðlum, þar sem hann sagði kennara brjóta niður stefnu þjóðarinnar með kjarabaráttu sinni, voru óheppileg að mati Kennarasambands Norðurlands vestra.

Olíuverð hækkar í kjölfar Ívans

Verð á olíu í heiminum hækkaði mikið í liðinni viku og hefur aldrei verið hærra. Áhyggjur af minnkandi birgðum í Bandaríkjunum og fellibylurinn Ívan eru talin valda hækkuninni að þessu sinni. Hækkunin nam fjórum bandaríkjadölum og var verðið 48,9 dalir á tunnu þegar markaðir lokuðu á föstudag, litlu hærra en 19. ágúst í sumar þegar það náði síðast hámarki.

Fangaflótti í Svíþjóð

Tveir hættulegir fangar brutust út úr sænsku fangelsi í grennd við Stokkhólm í gærkvöldi með því að taka fangavörð í gíslingu og hóta að skera hann á háls, ef ekki yrði opnað fyrir þeim. Gríðarleg leit er nú gerð að föngunum og gíslinum en annar fanginn er morðingi og hinn stórtækur fíkniefnasmyglari.

Amfetamínið 150 milljóna virði

Smásöluandvirði amfetamínsins, sem lögreglan og tollgæslan hafa gert upptækt við rannsókn fíkniefnamálsins sem greint var frá í gær, hefði numið allt að 150 milljónum króna miðað við að efnið hafi komið óblandað til landsins.

Matvælum dreift til fólksins

Keppst er við að dreifa mati og drykkjarvatni til íbúa Haítí sem búa enn við skort eftir að fellibylurinn Jeanne olli þar miklum flóðum. Verst er ástandið í borginni Gonaives þar sem jafnframt er skortur á lyfjum og læknisaðstoð.

Meiri skemmdir en talið var

Vatnsleiðslurnar til Vestmannaeyja eru meira skemmdar en talið var og eru þær í sundur á fjögurra metra kafla. Bráðabirgðaviðgerð á annarri þeirra hefst í dag en óljóst er hvenær hún kemst í gagnið.

Náðarhögg ESB?

Hafni margar Evrópusambandsþjóðir nýrri stjórnarskrá sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslum gæti það reynst náðarhögg evrópska verkefnisins að mati Romanos Prodis, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hafni eitt ríki stjórnarskránni sé hægt að bjarga því, en verði þau mörg sé úti ævintýri.

Hver og einn kennari verði metinn

Engar vísbendingar eru um að deilendur í kennaradeilunni séu að undirbúa nýtt útspil til að liðka fyrir lausn deilunnar. Samband ungra sjálfstæðismanna telur að eðlilegra væri að kennarar tækju það skref í faglega átt í deilunni að hefja umræðu um mat á hæfni og dugnaði hvers og eins kennara.

Olíuverð nálgaðist sögulegt hámark

Olíuverð nálgaðist sögulegt hámark í gær þegar fatið var komið yfir fjörutíu og níu dollara þegar lokað var á markaði í Bandaríkjunum. Í morgun hefur það lækkað nokkuð á ný í Asíu. Litlar olíubirgðir eru sagðar ástæða þessa og virðist engu hafa breytt að Bandaríkjastjórn ákvað að opna neyðarbirgðir sínar til að auka framboð.

Kennarar flykkjast til útlanda

Fjölmargir grunnskólakennarar eru nú staddir erlendis eða eru á leið utan á meðan verkfalli þeirra stendur. Engir samninganefndafundir verða haldnir fyrr en seint í næstu viku og því er auðvelt að skipuleggja slíkar ferðir.

Nýr krani í Sundahöfn

Jarl annar hefur störf í Sundahöfn eftir helgi en þessi arftaki Jarls hins fyrsta er hátt í sextíu metra hár hafnarkrani með hundrað og tíu tonna lyftigetu. Jarl annar er stærsti hafnarkrani landsins. Hann er þýsk smíði og kostaði rúmar 200 milljónir króna.

Mikið hvassviðri í borginni

Meira hvassviðri hefur orðið á höfuðborgarsvæðinu í morgun en reiknað var með og fauk vinnupallur við hús um koll í vesturborginni. Þá gripu lögreglumenn járnplötu á flugi við Klapparstíg og maður sem ætlaði að líta eftir þakinu á Lágafellsskóla fauk ofan af þakinu og var fluttur á Slysadeild. Hann mun ekki vera alvarlega slasaður.

Ókeypis laxveiði í Noregi

Norsk yfirvöld hafa gripið til þess ráðs að bjóða almenningi til ókeypis laxveiða í ám í Suður- Hörðalandi og er fólk hvatt til að veiða allt hvað það getur. Það er þó ekki fyrir gjafmildi eða ummhyggju fyrir þegnunum að stjórnvöld gera þetta heldur hefur orðið vart við tugi þúsunda strokulaxa á svæðinu.

Grátbað stjórnina um miskunn

Utanríkisráðherra Breta segir að breska ríkisstjórnin reyni allt sem í hennar valdi standi til að reyna að tryggja lausn breska gíslsins, Ken Bigley. Breskir ráðamenn hafa þó útilokað með öllu að semja eða ræða beint við öfgahópinn sem heldur honum föngnum.

Útflutningur þrefaldaðist á árinu

Fiskvinnslan virðist ekki hafa notið góðs nema af um það bil helmingi af stórauknum ýsuafla á síðasta fiskveiðiári því útflutningur á óunninni ýsu í gámum hátt í þrefaldaðist á fiskveiðiárinu. Hann jókst úr sex þúsund og fimm hundruð tonnum upp í sautján þúsund tonn.

Ófrjó en ól samt barn

Belgískri konu, sem varð ófrjó vegna geislameðferðar, hefur nú verið gert kleift að eignast barn með aðferð sem talin er byltingarkennd í læknisfræðinni og gæti valdið straumhvörfum fyrir ungar konur sem fá krabbamein.

Framseldur frá Hollandi?

Fíkniefnadeild lögreglunnar óskar að öllum líkindum eftir að Íslendingur, sem býr í Hollandi, verði framseldur í tengslum við rannsókn á fíkniefnasmyglinu sem greint var frá í gær. Það ræðst endanlega á fundi sem nú stendur yfir og fari svo verða fimm menn í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna rannsóknarinnar.

Valgerður samstarfsráðherra

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, tók í morgun við því hlutverki að vera samstarfsráðherra Norðurlandanna. Á ríkisstjórnarfundi í morgun var ákveðið að Valgerður myndi taka við þessu embætti sem Siv Friðleifsdóttir gegndi áður.

Sjómenn halda öryggisviku

Öryggisvika sjómanna hófst í gær, en hún er haldin í tengslum við alþjóða siglingadaginn sem verður haldinn hátíðlegur á morgun.

Ráðist á danska sendiráðið

Mótmælendur réðust á danska sendiráðið í Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun, brutu þar rúður og skvettu rauðri málningu á veggina til að mótmæla stuðningi dönsku ríkisstjórnarinnar við stríðið í Írak. Thomas Lehmann, sendifulltrúi í sendiráðinu, segir að hópur sem kallar sig Global Intifada hafi staðið fyrir aðgerðunum. Danir hafa sent hersveitir til Íraks.

12 umsóknir borist undanþágunefnd

Það mun væntanlega skýrast þegar líður á daginn hvort, eða hvaða undanþágubeiðnir, svonefnd undanþágunefnd mun veita vegna kennaraverkfallsins en tólf umsóknir hafa borist. Engar vísbendingar eru um að deilendur séu að undirbúa nýtt útspil til að liðka fyrir lausn deilunnar. 

ÍÚ braut jafnréttislög

Íslenska útvarpsfélagið og yfirmenn fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar brutu jafnréttislög þegar þeir ráku fjóra kvenfréttamenn fyrir rúmu ári, samkvæmt niðurstöðu Kærunefndar jafnréttismála.

Blóðug borgarastyrjöld möguleg

Blóðug borgarastyrjöld gæti brotist út í Súdan, leysist friðarviðræður stjórnvalda og aðskilnaðarsinna upp. Þetta er mat æðsta fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Súdan. Hann óttast að ástandið yrði þá sambærilegt við hörmungarnar í Sómalíu.

Pútín neitar ásökunum

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, neitar því að stjórnarhættir hans séu afturhvarf til sovéskra hátta. Hann segir frelsi og lýðræði lykilinn að bjartri framtíð. Ýmsar hugmyndir, sem Pútín hefur kynnt undanfarnar vikur, hafa vakið undrun á Vesturlöndum og þótt benda til þess að hann safni sífellt meiri völdum til sín.

Skemmdir á leiðslum alvarlegar

Í ljós hefur komið að skemmdir á leiðslunum tveimur sem flytja ferskt vatn til Vestmannaeyja eru alvarlegar og mun taka nokkurn tíma að gera við þær að fullu.

Flugi flýtt vegna fellibylsins

Áætlunarflugi Icelandair frá Orlando á morgun verður flýtt vegna fellibylsins Jeanne sem talinn er geta haft áhrif á flugumferð til og frá Orlando. Samkvæmt áætlun er brottför frá borginni klukkan sjö annað kvöld en fluginu hefur verið til klukkan tíu í fyrramálið að staðartíma, eða klukkan 14 að íslenskum tíma.

Guðni forsætisráðherra

Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra verður starfandi forsætisráðherra næstu daga vegna fjarveru Halldórs Ásgrímssonar og Davíðs Oddssonar.

Halldór hittir Raffarin

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra hittir Jean-Paul Raffarin, forsætisráðherra Frakklands í París á mánudag.

Ný fisktegund við Íslandsstrendur

Ný fisktegund hefur fundist við Íslandsstrendur. Fiskurinn, sem nefndur hefur verið pétursfiskur á íslensku en heitir <em>zeus faber</em> á latnesku, kom í veiðarfæri Helgu RE á þriðjudaginn á hafsvæðinu út af Sandgerði.

Engar undanþágur veittar

Engar undanþágur verða veittar vegna kennaraverkfallsins en svonefnd undanþágunefnd fór yfir umsóknirnar á fundi sínum í dag. Þrettán umsóknir bárust en að sögn Þórörnu Jónasdóttur, fulltrúa kennara í nefndinni, voru ekki allar umsóknir fullnægjandi. Hinum var hafnað.

Opið allan sólarhringinn?

Þjóðverjar velta því nú fyrir sér hvort þeir kæri sig um að verslanir geti verið opnar allan sólarhringinn. Efri deild þýska þingsins skoðar nú frumvarp til laga sem gefur verslunartímann frjálsan. Það yrði þá í verkahring sambandslandanna að ákveða opnunartíma.

Bara hörð leikföng

Efni sem gera plast mjúkt hafa verið bönnuð innan Evrópusambandsins. Mjúkt plast er gjarnan notað í barnaleikföng og það er meginástæða bannsins, þar sem óttast er að efnin geti verið hættuleg heilsu barna. Vísindamenn telja að efnin geti meðal annars haft áhrif á æxlunarfæri barnanna þegar þau eru komin á fullorðinsaldur.

Vilja umboðsmann neytenda

Jóhannes Gunnarsson lagði áherslu á stofnun embættis umboðsmanns neytenda í ræðu sinni á þingi Neytendasamtakanna í gær. Jafnframt flutti erindi Hagen Jörgensen umboðsmaður neytenda í Danmörku.

Ekki vitað um afdrif Bigleys

Ekki er vitað hvort Bretinn Kenneth Bigley, sem hefur verið í haldi mannræningja í Írak, er lífs eða liðinn en mannræningjarnir hafa hótað að drepa hann. Öldruð móðir Bigleys bað honum griða í sjónvarpi í gærkvöldi og féll að því loknu saman. 

120 lögmenn styðja Jón Steinar

Um hundrað og tuttugu starfandi lögmenn hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista til stuðnings Jóni Steinari Gunnlaugssyni í embætti Hæstaréttardómara. 

Orðalagið rýrir gildi samninganna

Samninganefnd kennara segir loðið orðalag hafa rýrt gildi samninganna sem gerðir voru við sveitarfélögin árið 2001. Meðal kennara heyrast þær raddir að tími sé kominn til að skipta út nefndarmönnum. 

Öllum undanþágubeiðnum hafnað

Öllum undanþágubeiðnum um að kenna fötluðum börnum á meðan á verkfalli grunnskólakennara stendur hefur verið hafnað. Búast má við neyðarástandi á heimilum margra barnanna. Tveir fulltrúar eiga sæti í nefndinni sem fjallaði um beiðnirnar og greindi þá á um niðurstöður þeirra allra. 

Sjá næstu 50 fréttir