Innlent

Olíulykt af heita vatninu

Héraðsbúum brá sumum í brún á dögunum þegar olíufnyk lagði af heita vatninu úr krönum þeirra. Skipt var um dælu í einni af borholum Hitaveitu Egilsstaða og Fella og var notast við sérstaka feiti til að skrúfa dæluna saman. Liggur þar hundurinn grafinn. Fnykinn lagði af feitinni. Guðmundur Davíðsson hitaveitustjóri sagði í samtali við Fréttablaðið að feitin væri notuð í matvælaiðnaði og vitaskuld algjörlega hættulaus. Hann sagði upp og ofan hvort lyktin hefði fundist, sums staðar hefði það gerst en annars staðar ekki. Sjálfur fann Guðmundur lyktina og varð auðvitað ekki meint af, frekar en öðrum. Lyktin fannst í tvo til þrjá daga en síðan ekki söguna meir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×