Se og hör fær dóm í Danmörku 13. október 2005 14:41
Ritstjórar og blaðamenn danska tímaritsins Se og hör voru dæmdir til greiðslu sektar að andvirði tæplega átta hundruð þúsunda íslenskra króna fyrir dönskum dómstólum í gær. Blaðið fjallaði í nóvember 2002 um ástamál Önju Andersens sem er þekktasta handboltakona Danmerkur. Hún var þá þjálfari kvennaliðs Slagelse og stóð í ástarsambandi við einn leikmanna liðsins. Anja stefndi blaðinu og vann sigur í gær. Í dóminum segir að umfjöllun blaðsins hafi ekki haft nokkurn þann vinkil sem tengja mætti við íþróttaiðkun kvennanna. Eingöngu hafi verið fjallað um einkalíf þeirra og að blaðinu mátti vera ljóst að það var gegn vilja beggja kvennanna. Ritstjórinn var því dæmdur til greiðslu 40 þúsund danskra króna og tveir blaðamenn til greiðslu 15 þúsund króna, eða samtals andvirði átta hundruð þúsund íslenskra króna. Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður telur þetta vera skynsamlegan dóm. Hann segir að ef réttur og dómar einhvers lands hafi fordæmisgildi hér á landi þá sé það í Damörku því fyrirmynd íslensku stjórnarskrárinnar komi þaðan. Verði þetta endanlegur dómur í málinu í Danmörku megi því með mjög svipuðum hætti sækja mál fyrir íslenskum rétti. Systurblað hins danska Se og hör hér á landi, Séð og heyrt, hefur löngum fjallað um einkalíf fólks með svipuðum hætti og danska blaðið. Sveinn Andri telur í ljósi þessa dóms að Séð og heyrt megi búast við málsóknum af svipuðum toga á næstunni. Hægt er að hlusta á viðtal við Svein Andra úr hádegisfréttum Bylgjunnar með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
Erlent Fréttir Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira