Innlent

Viðgerðum enn ólokið

Enn hefur ekki tekist að gera við vatnsleiðsluna til Vestmannaeyja sem skemmdist í fyrradag. Viðgerð sem fram fór í gær mistókst að sögn Sigurjóns Ingólfssonar, veitustjóra hjá Hitaveitu Suðurnesja í Vestmannaeyjum, og hafa áframhaldandi viðgerðir staðið yfir í allan dag. Sigurjón segir að 1200 tonn séu eftir af ferskvatni í Eyjum. Það séu sólarhringsbirgðir og biður hann fólk um að spara vatnið eins og mögulegt er.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×