Innlent

Útflutningur þrefaldaðist á árinu

Fiskvinnslan virðist ekki hafa notið góðs nema af um það bil helmingi af stórauknum ýsuafla á síðasta fiskveiðiári því útflutningur á óunninni ýsu í gámum hátt í þrefaldaðist á fiskveiðiárinu. Hann jókst úr sex þúsund og fimm hundruð tonnum upp í sautján þúsund tonn. Heildaraflinn á milli ára jókst um tuttugu og tvö þúsund tonn. Verðmætið jókst úr 830 milljónum í rúmlega tvo milljarða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×