Innlent

Meiri skemmdir en talið var

Vatnsleiðslurnar til Vestmannaeyja eru meira skemmdar en talið var og eru þær í sundur á fjögurra metra kafla. Bráðabirgðaviðgerð á annarri þeirra hefst í dag en óljóst er hvenær hún kemst í gagnið. Á meðan hafa Eyjamenn upp á að hlaupa vatnsbirgðir úr fimm þúsund tonna geymi og með sparnaði ætti vatnið úr honum að duga í tvo til þrjá daga í viðbót. Þá er unnið að viðgerð á annarri vatnsleiðslunni til Ólafsfjarðar sem fór í sundur í vatnavöxtunum. Nægilegt vatn er þó í bænum en þrýstingur er sumstaðar allt of lítill.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×