Innlent

Ný fisktegund við Íslandsstrendur

Ný fisktegund hefur fundist við Íslandsstrendur. Fiskurinn, sem nefndur hefur verið pétursfiskur á íslensku en heitir zeus faber á latnesku, kom í veiðarfæri Helgu RE á þriðjudaginn á hafsvæðinu út af Sandgerði. Helstu heimkynni pétursfisks eru í Miðjarðarhafi og austanverðu Atlantshafi og fiskurinn því kominn glæfralega langt frá heimkynnum sínum. Pétursfiskur getur orðið um 70 sentímetra langur og um 8 kíló að þyngd en þetta er í fyrsta skipti, svo vitað sé, að þessi tegund veiðist við Ísland. Frá þessu greinir á vefsíðu Hafrannsóknastofnunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×