Ófrjó en ól samt barn 24. september 2004 00:01
Belgískri konu, sem varð ófrjó vegna geislameðferðar, hefur nú verið gert kleift að eignast barn með aðferð sem talin er byltingarkennd í læknisfræðinni og gæti valdið straumhvörfum fyrir ungar konur sem fá krabbamein. Konan fékk eitlakrabbamein fyrir sjö árum og þurfti að gangast undir bæði geisla- og lyfjameðferð til að vinna á krabbameininu. Áður en hún fór í meðferðina voru hins vegar tekin vefsýni úr eggjastokki hennar og sýnin fryst. Í fyrra, þegar konan hafði lokið krabbameinsmeðferðinni og sýnt þótti að hún hefði unnið á meininu, voru þessi vefsýni aftur grædd í eggjastokk hennar. Aðeins fjórum mánuðum síðar byrjuðu blæðingar á nýjan leik, konan varð ófrísk á hefðbundin hátt og hefur nú eignast heilbrigt stúlkubarn. Þessi meðferð gæti valdið straumhvörfum því ungar konur sem fá krabbamein hafa hingað til, oftar en ekki, þurft að gefa allar barneignir upp á bátinn. Læknarnir við kaþólska háskólann í Leuven í Belgíu, sem gerðu þessa tilraun, hafa fryst vefsýni úr eggjastokkum hundrað fjörutíu og sex annarra kvenna og binda vonir við að í framtíðinni verði öllum konum á barneignaraldri, sem fara í krabbameins meðferð, boðið upp á þetta val. Af þessu hafa hins vegar sprottið þær siðfræðilegu vangaveltur að konur geti með sömu aðferð leikið á náttúruna og náttúruleg tíðahvörf með því að láta geyma slík vefsýni á unga aldri og látið síðan græða þau aftur í eggjastokkana, hvenær sem er á lífsleiðinni, þegar þær telja sig reiðubúnar að eignast börn.
Erlent Fréttir Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira