Innlent

Framseldur frá Hollandi?

Fíkniefnadeild lögreglunnar óskar að öllum líkindum eftir að Íslendingur, sem býr í Hollandi, verði framseldur í tengslum við rannsókn á fíkniefnasmyglinu sem greint var frá í gær. Það ræðst endanlega á fundi sem nú stendur yfir og fari svo verða fimm menn í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna rannsóknarinnar. Smásöluandvirði amfetamínsins, sem lögreglan og tollgæslan hafa gert upptækt við rannsókn málsins, hefði numið allt að 150 milljónum króna miðað við að efnið hafi komið óblandað til landsins. Alls voru ellefu kíló af amfetamíni gerð upptæk, tvö þúsund skammtar af LSD og verulegt magn af kókaíni, eins og lögreglan orðar það, auk þess sem lagt var hald á kíló af kókaíni í Hollandi í tengslum við rannsókn málsins. Búið er að leggja hald á rúm fimmtán kíló af amfetamíni það sem af er árinu sem er meira en nokkru sinni fyrr. Sumir þeirra sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins hafa áður komið við sögu í stórum fíkniefnamálum. Það sem af er árinu hefur lögreglan rannsakað 1185 fíkniefnamál, eða u.þ.b. tvö hundruð færri en allt árið í fyrra.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×